Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.09.1925, Qupperneq 16

Sameiningin - 01.09.1925, Qupperneq 16
270 frábitnir allri umgengni viÖ heiöna menn, eins og ættmenn þeirra á Gyðingalandi. Tarsus var verzlunarborg og víÖfræg mentastöö, eins og sagt var áÖur. ÞangaÖ safnaðist fólk úr öllum áttum. Páll, eins1 og aðrir GyÖingar í borginni, hlaut aÖ hafa umgengni viÖ 'þann lýð; á gatnamótum og kauptorgum, á samkomustöðum og i verzlunarlífinu. Og jafnvel þótt hann væri elcki settur til menta i heiðnum skólum, þá gat ekki hjá því farið, að unglingur svo gáfaður og mannblendinn, eins og hann var, fengi all-glöggan skilning á hugsunarhætti heiðinna manna, og yröi fyrir kynningar-áhrifum, sem síðar meir komu í góðar þarfir við boðun trúarinnar. Og hver veit, nema Páll hafi snemma kent í brjósti um óupplýstan og vegviltan heiðingja- lýöinn i Tarsus; hafi geymt hjá sér von um aö geta einhvern tíma leitt marga menn úr ihópi þeim til þekkingarinnar á sönnum og heilögum Guði. Trúboðsáhuginn var ekki óþektur meðal Gyðinga á þeirri tíð ("Matt. 23, 15J. Svo mikið er vist, aö Páll var ekki ófyrirsynju til þess kiörinn aö boöa heiðingjum fagn- aðarerindið. Og sjálfur segist hann hafa verið útvalinn til þeirrar köllunar “frá móðurlífi” fGal. x, 15, 16.) G. G. Ungt hugsandi fólk, Hvert ár flytur fjölda af ungu fólki að dyragættum sann- leikans, þar sem það stendur a.ugliti til auglitis við það hlutverk, að hugsa fyrir sig sjálft um ráðgátur lífsins og skyldur. ; Þetta hlutverk getur enginn annar leyst af hendi fyrir það. Tilbúna lífsskoðun má fara í eins og flík, án alva.rlegrar rannsóknar og án baráttu við efasemdir og vafamál, en hún nær ekki valdi til að endurnýja huga mannsins og skapa hjá honum þá ljósu sann- færingu, sent verður að knýjandi reglu fyrir daglegri breytni. Trúarbrögðin þurfa að vera raunveruleg í þeirri merkingu, að þau sé í skynsamlegu samræmi við mat manns á verðmætum lífsins', og mega aldrei misbjóða skynseminni. Einlægur náms- maður getur einungis trúað því, isem hann finnur skynsamlega ástæðu til að aðhyllast. Það er ekki gengið að' neinu sem vísu á vorri tíð. Vér heyrum efast um a.lt: Guð, bibliuna, stjórnarfarið og jafnvel helgi heimilisins. Það er ráðist á alt mannfélagsfyrirkomu- lagið og grundvöll þess. Mjög verulegir erfiðleikar verða því fyri unga fólkinu á svæði hugsunarinnar, í sambandi við það, a.ð ná traustri afstöðu í mörgum efnum.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.