Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1925, Blaðsíða 18

Sameiningin - 01.09.1925, Blaðsíða 18
272 og leiðarstein að því er snertir leiðbeinandi grundvallarreglur trúarbagðanna.” Sönn mentun á að leiða til jafnvægis í þroska, sem van- rækir ekki siðferðislega og andlega hlið lifsins hjá unga fólk- inu. Hún á að leggja til heilbrigðar hugsjónir fyrir líf manna og kvenna. Kenslan í skólanum ætti að leggja námsmanninum til vegvisunarstólpa, er sýna leiðina til að þroska hið göfugasta innræti. Og margir skólar leggja ekki til neina slíka vegvísun- arstólpa. Dr. John R. Mott hafa farist svo orð: “Það gagnar ekki, hvað vel mentaður sem maðurinn er, ef hann fer út í heiminn með spilt hjarta, ótaminn vilja og auðvirðilegar hugsjónir. Mann- félaginu 'stafar þá af honum hætta, og hann er til veiklunar í þjóðlífinu. Það iþarf að innræta réttar hugsjónir. Þaö þarf að ná að upptökum breytninnar. Er það jafngildi þess að segja, að líf, andi og kenning Jesú Krists þurfi að ná til allra manna sem einstaklinga og til alls samlífs þeirra.” Þetta er að viðurkenna, að það að hugsa, er siðferðileg1 at- 'höfn og á aö miða að ákveðnu takmarki. Lærdómur og1 vísindi aðskilið frá því að móta innrætið, og íblind fyrir gildi andlegrar í- kveikju, getur aldrei upphafið mannlífið. Einlægur efi getur verið vottur um einlga viðleitni að finna veruleikann, en hann leitar ávalt veruleikans til að lifa hann. Rétt íbreytni getur aldr- ei hvílt á rangri hugsun. Sá, sem i einlægni hugsar, vill sýna fasta trygð við það bezta, sem hann þekkir. Jafn, áriðandi er nauösyn þess, að leiðtogar í hópi unga fólksins finni í fullri alvöru til áhyrgðar þeirrar, s'em á þeim hvílir. Og þessari ábyrgð þurfa þeir að taka með hugrekki og einbeittum hug. Þeir verða gagngjört að ganga að því, aö eign- ast ljósa sannfæringu viðvíkjandi lífsins mestu verðmætum. Eina áríðandi bending í þessu samiband'i viljum vér bjóða til hjálpar þeim, sem hafa hug á því að láta sér hepnast að lifa lífi, sem verulegt gildi hefir. Það er að temja sér þá afstöðu 'í öllum efnum, sem þeir gefa gaum, að viljalbyggja, upp, fremur en að rífa niður. Fyrir skömmu beiddist ungur rnaður eftir því, að eiga við- tal við þann, er þetta ritar, um trúarleg efni. Hann kannaðist við, að hann væri óánægður með sína eigin afstöðu, enda var hún all-mótspyrnukend; en honum fanst hann- réttlættur í þessu vegna þess, að hann eklci gæti fundið fullnægjandi grundvöll fyrir trú, sem hugsandi maSur. Hann mintist á ummæli ýmsra

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.