Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.03.1909, Page 5

Sameiningin - 01.03.1909, Page 5
amcuúngtii. Mánadarrit til stuð'nings kirJcju og kristindómi íslendinga, gefið út af hinu ev. lút. kirkjufélagi ísl. í Vestrheimi. RITSTJÓRI JÓN BJAJINASON. XXIV. áeg. WINNIPEG, MARZ 1909 Nr. i. Tilfinningalífið í Ijósi trúarinnar á Jesúm, er hann gengr út í friðþægingar-pislirnar. Langafastan stendr nú yfir. Það er sú tíð ársins, sem öllum öðrum árstíðum fremr leiðir fólk innan kristinnar kirkju vorrar að dýpsta og alvarlegasta atriði trúarinnar, — kirkjuárs-tíðin, sem frá alda-öðli hefir helguð verið minning píslarsögu drottins vors Jesú Krists. „Svo elskaði guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn til þess að liver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldr hafi eilíft lífJ‘ Þetta er hjartað í kristindóms- opinberaninni, og' út frá þessu hjarta streyma hinir ó- teljandi andlegu straumar vatnsins lifanda, sem náðar- þyrstar mannssálirnar eru leiddar að með prédikan guðs orðs — að sínu leyti eins og slagæðarnar, sem kvíslast út um alla parta líkama vors, koma allar með hlóðið frá sameiginlegri uppsprettu, hjartanu í brjósti voru. Að þessum miðdepli trúar vorrar, þessarri uppsprettu allra kristilegra huggunarorða, erum vér leiddir með píslar- sögunni. Út af því óviðjafnanlega kærleikserindi, sem nú sérstaklega um þetta leyti árs kveðr við í kirkjunni, ætti angrblíð trúartilfinning að gagntaka sálir allra. Það ætti í því efni að vera eins ástatt fyrir kirkjulýðnum öllum eins og forðum var fyrir krossfara-hópnum, sem á löngu liðinni öld var á leið vestan úr Evrópu í anstr- veg til þess að vinna landið helga úr höndum Múhameðs-

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.