Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1909, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.03.1909, Blaðsíða 8
4 einnig æfinlega í viljanum. Það, sem guð sýnir þér, maðr! í kærleiks-opinberan sinni, það, sem liann býðr þér eða bannar þér í orði sínu, það, sem Jesós Kristr liefir fyrir þig gjört með endrlausnarverki sínu, — hver áhrif hefir það á vilja þinn? Þetta er aðal-spurningin til livers einasta manns. Dregr þetta þig að guði ? Eða lirindir það þér, ef til vill, burt frá guði ? Hrífr það vilja þinn svo, að hann rít af því stefni til ljóssins og lífsins? eða út í myrkrið og dauðann? Eða hefir það engin áhrif á þig, svo að vilji þinn sé af því ósnortinn, eins og væri það ekki til fyrir þig? Nei, þetta þriðja er ekki til. 1 reyndinni er það ómögulegt, að vilji nokkurs manns lialdi sér óháðr andspænis hinum drottinlega vilja, sem til mannanna talar í kristindóms-orðinu. Guð spyr ætíð að því, hvað vilja manna líði. Brenni- depill trúarlífsins því æfinlega í viljanum. Og þunga- miðja hins siðferðislega lífs sömuleiðis þar. Vilja- stefnan og vilja-styrkleikrinn — það er mælikvarði liins kristilega trúarlífs. En þó að svo sé, þá iná því þó ekki gleyma, að ef viljinn stefnir í rétta átt, þangað sem guð fyrir Jesúm Krist kallar synduga menn, sé viljinn ein- lægr og í sannleik innblásinn af heilögum anda, þá lilýtr það vilja-ástand lijá manninum að hafa álirif á gjörvallt líf lians, og því auðvitað á tilfinningarnar, bæði tilfinn- ingar gleðinnar og sorgarinnar. Margar raddir má og heyra úr gnðs orði, sem skora á menn ýmist að vera glaðir ellegar hryggir, drottinleg boðorð um að menn skuli fagna af öllu hjarta, eða að menn skuli syrgja og gráta. Að sumu leyti temprar kristindómrinn tilfinningar manna, en að sumu leyti örvar hann þær. Til er synd- samleg gleði, og til er svndsamleg sorg. Þær tilfinning- ar geta orðið að loganda eldi, hræðilegu báli. Kristiri dómrinn slekkr þann eld, fái hann fullt vald vfir viljan- um. En til er og lieilög gleði og heilög sorg. Kristindómr inn glœðir hvoratveggja. Og þar sem ekkert slíkt hefir áðr verið fvrir í lífi einhvers manns lætr lrann hvort- tveggja fœðast. Heilt haf af nýrri gleði er komið inn í mannkynssöguna með kristindóminum; það hlýtr svo að

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.