Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.03.1909, Qupperneq 12

Sameiningin - 01.03.1909, Qupperneq 12
8 með sér inn á þessar venjulegu bœnarstöðvar, en verð- andi fyrir þeirri raun, að þeir gátu ekki baldið sér vak- andi, heldr sváfu eins og ekkert væri um að vera, þá er hann nálega fast hjá þeim háði hina voðalegu sálar- baráttu. Jesús, er hann hvað eftir annað rís upp frá bœn sinni til þess með kærleiksorðum sínum, hinum blíðu hryggðarorðum, að vekja þá af hinum líkamlega dvala og vara þá við að falla í andlegan svefn. Jesús, er hann er að virða fyrir sér fyrirfram allar hinar ókomnu písl- ir, sem yfir honum vofa, og tekr svo mikið út af þeirri hugsan, að hann sveitist blóði, hann allr líkamlega í slíku sveitabaði, að blóðhnyklarnir falla af andliti hans niðr á jörð. Þvílík sjón! Auðsætt er, þá er þetta kemr fyrir í fyrsta þætti hinnar miklu harmsögu, að á þeirri stund sér hann skelf- ingarnar allar, líkamlegar og andlegar, er þá vofðu yfir honum. Hann horfir yfir kvalahafið allt, er fyrir fram- an hann lá. Hann er staddr á strönd þess úthafs, lítr það í allri þess œgilegu breidd og lengd, sér öldurnar rísa> eina annarri hærri og hræðilegri, óteljandi slíkar öldur, sem allar hljóta yfir hann að falla með þunga eilífðar- innar. Þvílíkar öldur! Þvílík kvöl! Þvílíkt dauðahaf! Og hver einasti einn af oss, hver einasti maðr, fœddr og ófœddr, um víða veröld átti, á enn og mun ætíð eiga ítak í þessu hafi. Því synd mannkynsins hafði myndað það kvalahaf. Þá er Jesús var skírðr í Jórdan, hafði hann látið vígjast til þess að friðþægja fyrir mann- kynssyndina og hinar óteljandi syndir mannlegra ein- staklinga, en þá einnig til þess að kasta sér út í þetta dauðahaf. Og nú er stundin komin, þá er þetta hlýtr að verða. Þá grípr hin voðalega angist hann. Enginn skilr þann sársauka til fulls, því þar er um dýpsta leynd- ardóm endrlausnarverksins að rœða. Með skynseminni alls ekki, og með hjartanu að eins að nokkru leyti. Guðs sonr var hann — elskulegr sonr guðs eins og röddin frá himnum heyrðist votta við skírn hans og seinna á fjall- inu helga, þá er hann ummyndaðist. Guðdóminn átti hann, og var sér þess fullkomlega meðvitandi ávallt. En þjáningar verðr hann að taka út eins og væri hann að

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.