Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.03.1909, Side 34

Sameiningin - 01.03.1909, Side 34
30 W Keisarinn lét sér þó ekki nœgja aS svifta Arkelás em- W bættinu; hann veitti Jerúsalemsbúum þann áverka, sem auðmýkti þá til muna, og einkum særöi hann mjög mikiö hina stœrilátu valdhafendr Musterisins, sem öllum öörum voru viökvæmari í þeim efnum. Hann gjörði Júdeu aö rómversku skattlandi og tengdi það við stjórnarumdœmi jarlsins, er settr var yfir Sýrland. Svo í stað þess að hafa yfir sér konung, sem stjórnaði með Iþeim höfðingskap, er slíkum valdsmanni hœfði, frá höllinni, sem Heródes lét eftir sig á Síonsfjalli, komst Jerúsalem undir yfirráð minna- háttar embættismanns, er nefndr var procurator og stóð í sambandi við keisarahirðina í Róm gegn um Sýrlands- jarlinn, sem aðsetr hafði í Antiokkíu. Til þess að Gyð- ingar fyndi enn meir til áverkans var prókúratornum ekki leyft að setjast að í Jerúsalem, heldr var Sesarea gjörð að stjórnarsetri hans. Það, sem þó auðmýkti þá mest og særði, enda var einmitt í þeim tilgangi gjört, var (það, að Samaría, sem þeir fyrirlitu meir en nokkurn annan blett í heimi, var tengd við Júdeu sem partr af sama skattlandi. Má nærri geta, hve óheyrilega sárt Faríseum, hinum kredduföstu sértrúarmönnum, hefir sviðið það að verða fyrir olnbogaskotum og háði í návist prókúratorsins í Sesareu af hálfu hinna hálf-heiðnu Samverja, sem helgistöð höfðu á Gerizim-fjalli. í þessu dimmviðri hörmunganna var þó fyrir hinn fallna lýð ein — að eins ein — huggunar-skíma: Œðsti prestrinn sat í höll Heródesar á torginu og hafði þar nokk- urskonar hirð um sig. Það er hœgt að átta sig á því, í hverju embættisvald hans var í raun og veru fólgið. Dómsvald í málum, sem vörðuðu dauðahegning, heyrði prókúratornum til. Réttarhald allt fór fram í nafni lagafyrirmæla keisaradœmisins rómverska og þeim samkvæmt. Enn meira máli skifti þó það, að em- bættismaðr sá, sem stóð fyrir tollheimtunni af hálfu róm- versku stjórnarinnar, var sambýlismaðr prókúratorsins í hinu konunglega stórhýsi, með öllum hinum mörgu aðstoð- armönnum hans, bókhöldurum, gjaldkerum, undir-toll- heimtumönnum, uppljóstrsmönnum og njósnurum. Sú var þó bót í máli fyrir þá, er síðar voru að láta sig dreyma um frelsi þjóðarinnar, að helzti valdsmaðrinn í höllinni var Gyðingr. Návist hans þar dag eftir dag var út af fyrir sig nóg til þess að minna á sáttmálana og fyrirheiti spámanp- anna og á þær tíðir, er Jehóva stjórnaði kynkvíslum þjóð- arinnar með sonum Arons að verkfœrum sínum; þetta var þeim til sannindamerkis um það, að hann hefði ekki sleppt af þeim hendi sinni. Von þeirra lifði því, efldi þá að þol- $

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.