Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 4
13. maí 2011 FÖSTUDAGUR4
GENGIÐ 12.05.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,953
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
115,35 115,91
187,50 188,42
162,95 163,87
21,853 21,981
20,841 20,963
18,140 18,246
1,4249 1,4333
183,04 184,14
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
22°
19°
15°
21°
23°
15°
15°
22°
17°
25°
22°
33°
16°
19°
15°
16°Á MORGUN
3-8 m/s. Stöku skúrir en
rigning V-til annað kvöld.
SUNNUDAGUR
5-10 m/s.
5
8
9
3
7
6
5
7
8
8
8
7
1
2
3
4
4
3
3
3
2
4
10
7
6
9
12
7
7
10
8
6
EVRÓVISJÓN-
VEÐRIÐ verður
heilt á litið nokkuð
gott og einkum
suðaustanlands.
Það eina sem gæti
trufl að gleðskapinn
er væta um suð-
vestan og vestan-
vert landið seinna
um kvöldið. Vindur
verður þokkalega
hægur og hitinn
svipaður og í dag.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
LÖGGÆSLUMÁL „Við þurfum að
sjálfsögðu að skoða fjárveiting-
arnar og tryggja nægilegt fjár-
magn til þessara mála. Þær hafa
verið af skornum skammti eins
og til annarra opinberra stofnana
og starfsemi.“
Þetta segir Ögmundur Jónas-
son innanríkisráðherra, spurður
um viðbrögð við fréttum af aukn-
um fjölda kæra, til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu, vegna
kynferðisbrota.
„Svo er hitt, sem við hljótum að
velta fyrir okkur líka, og það snýr
að forgangsröðun á rannsóknum
glæpamála,“ útskýrir Ögmundur.
Ráðherra segist telja skýr-
ingar á fjölgun kærumála vegna
ofbeldisbrota af þrennum toga.
„Í fyrsta lagi skal nefna að það
sé að eiga sér stað vitundarvakn-
ing í þjóðfélaginu, sem gerir fórn-
arlömbunum auðveldara að sækja
rétt sinn. Í annan stað að um
sé að ræða aukið traust til lög-
reglunnar og vaxandi traust til
réttarkerfisins á þessu málasviði.
Í þriðja lagi er náttúrlega sú
skýring að í kreppuástandi kunni
ofbeldisglæpum að fjölga.“
Ögmundur segir að séu tvær
fyrstnefndu skýringarnar réttar
þá eigi að kappkosta að halda
áfram á þeirri braut. - jss
Innanríkisráðherra um fjölgun kæra vegna kynferðisbrota til lögreglu:
Tryggja þarf nægilegt fjármagn
ÖGMUNDUR JÓNASSON Segir að skoða
þurfi fjárveitingar til þeirra sem rannsaka
kynferðisbrot.
MENNTAMÁL Háskólaráð Íslands hefur skipað
þriggja manna sérfræðinganefnd til að rannsaka
vinnubrögð siðanefndar skólans þegar hún hafði
til meðferðar kæru Vantrúar á hendur guðfræði-
kennara við skólann. Formaður nefndarinnar er
meðal annars sakaður um að
leka trúnaðarupplýsingum um
málið til formanns Vantrúar
og eiga við hann náin sam-
skipti.
Málið á sér eins og hálfs árs
sögu og hefur á síðustu stig-
um þess verið afskaplega við-
kvæmt innan skólans og vald-
ið miklum titringi, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins.
Tuttugu manna hópur kenn-
ara á hugvísindasviði hittist
meðal annars á fundi vegna málsins, en einn úr
þeirra hópi hefur mótmælt framferði siðanefnd-
arinnar harðlega með bréfaskrifum til stjórnenda
skólans og nemenda Bjarna.
Forsaga þess er sú að Vantrú kvartaði til siða-
nefndar yfir námsefni guðfræðingsins Bjarna
Randvers Sigurvinssonar. Í glærukynningu nám-
skeiðs sem Bjarni kenndi fjallaði hann um Van-
trú á hátt sem félagsmönnum þótti ósæmilegur
og birti meðal annars myndasyrpu af forvígis-
mönnum félagsins sem þeim þóttu líkjast saka-
mannauppstillingu.
Siðanefndin, undir forystu Þórðar Harð-
arsonar læknisfræðiprófessors, tók málið til
meðferðar eftir kvörtunina.
Gögn málsins, sem Fréttablaðið hefur undir
höndum, bera með sér að Þórður hafi í kjöl-
farið átt nokkur samskipti við formann Van-
trúar og haldið honum vel upplýstum um gang
málsins. Hann hafi jafnvel sent á hann trún-
aðarsamskipti sín við stjórnendur í háskólan-
um. Á sama tíma var ekkert samband haft við
Bjarna.
Þetta er Bjarni Randver afar óánægður
með og lögmaður hans, Ragnar Aðalsteinsson,
hefur gagnrýnt vinnubrögðin harðlega í grein-
argerðum sem hann hefur sent háskólarektor,
siðanefndinni og fleirum.
Eftir að gagnrýnin kom fram sagði Þórður
sig frá málinu og var nýr formaður settur yfir
málið í hans stað. Þórður hefur síðan verið skip-
aður formaður siðanefndarinnar á nýjan leik.
„Ég tel að hann hafi brotið á mér með slíkum
hætti að hann geti ekki verið í siðanefnd,“ segir
Bjarni í samtali við Fréttablaðið. Hann bætir
við að þegar niðurstaða þremenninganna liggi
fyrir muni hann kanna mögulegan bótarétt
sinn, enda hafi málið verið honum dýrt.
Vantrú hefur síðan fallið frá málinu, að sögn
vegna þess að ófriðurinn sem skapaðist í kring-
um málið hafi eyðilagt það. stigur@frettabladid.is
Rannsaka vinnubrögð siða-
nefndar HÍ í máli Vantrúar
Óháð nefnd fer yfir störf siðanefndar Háskóla Íslands. Formaðurinn sakaður um þjónkun við Vantrú og
óheiðarleg vinnubrögð en nýtur trausts rektors. Mikill titringur í skólanum. Kennari íhugar skaðabótamál.
HÁSKÓLI ÍSLANDS Talsverðrar ólgu hefur gætt í skólanum vegna málsins, ekki síst undanfarnar vikur og mánuði.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
BJARNI RANDVER
SIGURVINSSON
LÖGREGLUMÁL Lögregla rannsak-
ar nú dýraníðsmál sem komið er
upp á Eskifirði, að sögn Óskars
Bjartmarz yfirlögregluþjóns hjá
lögregluembættinu á Seyðisfirði.
Grunur leikur á að eggvopni
hafi verið beitt á kynfæri hryssu
og hún skorin inni í skeiðinni,
þannig að mikið blæddi úr. Málið
var kært til lögreglu sem hóf
þegar rannsókn. Samkvæmt upp-
lýsingum Fréttablaðsins var egg-
vopnið ófundið í gær.
Auk lögreglu hefur málið verið
kært til Matvælastofnunar. - jss
Hrottaskapur gegn hryssu:
Lögregla rann-
sakar dýraníð
Rannsakendurnir þrír
Þrennt hefur verið skipað í nefndina sem fara á
yfir vinnubrögðin og leggja til úrbætur á starfs-
reglum siðanefndarinnar. Þau eru:
■ Elín Díanna Gunnarsdóttir, sálfræðidósent við
Háskólann á Akureyri.
■ Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendur-
skoðandi.
■ Þórhallur Vilhjálmsson, aðallögfræðingur
Alþingis.
Eitt margra erfiðra mála
Kristín Ingólfsdóttir, rektor
Háskóla Íslands, vill ekki tjá
sig efnislega um mál Bjarna
og Vantrúar meðan á þessu
ferli stendur. Spurð um áhrif
málsins á andann í skól-
anum svarar Kristín: „Þetta
er stór stofnun og það er
ekkert óeðlilegt í svona
umhverfi að fólk hafi sterkar
og skiptar skoðanir. Það eru
mörg erfið mál sem þarf að
leysa og þetta er eitt af þeim.“
Þórður Harðarson, formaður siðanefndarinnar,
hefur hlotið talsverða gagnrýni vegna fram-
göngu sinnar í málinu. „Þetta er bara önnur hlið
málsins og hann nýtur míns fyllsta trausts,“ segir
Kristín.
KRISTÍN
INGÓLFSDÓTTIR
BANDARÍKIN John McCain, öldunga-
deildarþingmaður og fyrrverandi
forsetaframbjóðandi Repúblik-
anaflokksins, segir ekkert hæft í
fullyrðingum
um að pynting-
ar á grunuðum
hryðjuverka-
mönnum hafi
gegnt lykilhlut-
verki í því að
afla upplýsinga
sem leiddu til
þess að Osama
bin Laden
fannst og var síðan ráðinn af
dögum. McCain segist hafa fengið
staðfestingar á þessu hjá Leon
Panetta, yfirmanni leyniþjónust-
unnar CIA, sem stangist á við
fullyrðingar Michaels Mukasey,
fyrrverandi dómsmálaráðherra í
stjórn George W. Bush, um gagn-
semi pyntinga.
McCain er sjálfur fyrrverandi
stríðsfangi frá Víetnam og mátti
þá sæta pyntingum. - gb
McCain ósáttur við Mukasey:
Ekkert gagn
að pyntingum
JOHN MCCAIN
MÜNCHEN, AP John Demjanjuk var
í gær dæmdur til fimm ára fanga-
vistar fyrir aðild sína að dauða
þúsunda manna í Sobibor-útrým-
ingarbúðum nasista á styrjaldar-
árunum.
Demanjuk var varðmaður í
Sobibor um nokkurra mánaða
skeið árið 1943 og þótti því sam-
sekur um morð á þeim 28 þúsund-
um sem létust þar á þeim tíma.
Demjanjuk, sem er 91 árs,
fæddist í Úkraínu en fluttist til
Bandaríkjanna eftir stríð. Hann
hefur um árabil neitað þáttöku
í grimmdarverkum nasista og
segir sönnunargögnin fölsuð. - þj
Fyrrverandi fangavörður:
Samsekur um
morð nasista