Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 46
13. maí 2011 FÖSTUDAGUR30 30 menning@frettabladid.is HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Föstudagur 13. maí 2011 ➜ Tónleikar 21.00 Tuborg og Bar 11 bjóða til tón- listarveislu á Bar 11 í sumar. Frítt verður inn á alla tónleikana. Hljómveitin Leg- end spilar í kvöld og opnar húsið kl. 21. 22.00 Hljómsveitin Árstíðir heldur tónleika á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 22. Spiluð verða lög af væntanlegri plötu Árstíða. ➜ Opnanir 10.00 Opnun sýningarinnar Þetta vilja börnin sjá verður í dag kl. 10. Hollar veitingar í boði. Allir velkomnir. ➜ Kvikmyndir 13.00 Borgarbókasafn Reykjavíkur sýnir þýskar teikni- og hreyfimyndir frá árunum 2000-2007 dagana 13.-24. maí. Fjölmargar stuttmyndir sýndar. Sýning- arnar hefjast kl. 13 alla dagana. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is Takmarkaður sýningafjöldi Miðasölusími: 551 1200 eða á leikhusid.is Sprenghlægileg og smart sýning! EB, Fbl. Sun 15.maí kl.19 Fös 20.maí kl.22 Lau 21.maí kl.22 Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is „Mikið er nú gaman í leikhúsi þegar það er gaman!“ – EB, Fbl „Skemmtileg og hressandi leikhúsupplifun, öðruvísi og ögrandi“ – IÞ, Mbl HRYLLILEGA KRASSANDI RUSLÓPERA MEÐ TÓNLIST TIGER LILLIES Eva Gabrielsson, ekkja Stiegs Larsson, segist seint munu fyrirgefa föður og bróður metsöluhöfundarins fyrir að neita henni um arf- inn sem Larsson lét eftir sig. Málinu verði líklega aldrei lokið af hennar hálfu en hún láti það þó ekki stjórna lífi sínu. Eva Gabrielsson var sambýlis- kona sænska rithöfundarins Stiegs Larsson í rúma þrjá ára- tugi. Larsson féll skyndilega frá 2004, nokkrum mánuðum áður en fyrsta bókin í Millennium-þrí- leiknum, Karlar sem hata konur, kom út og sló í gegn um allan heim. Framhaldið þekkja allir. Þar sem parið hafði aldrei gift sig erfðu faðir og bróðir Larssons réttinn að bókum hans og auðæfin sem fylgdu. Gabrielsson hefur átt í harðvítugum, opinberum deil- um við feðgana allar götur síðan. Fyrr á árinu gaf hún út tvær bækur. Gabrielsson var gestur á höfundakvöldi í Norræna húsinu í gærkvöldi en fyrr á árinu gaf hún tvær bækur; „Sambo: ensammare än du tror“ og „Millennium, Stieg & jag“. Í þeirri fyrri fjallar hún um sambúðarlöggjöfina í Svíþjóð, en í þeirri síðari reifar hún þætti úr sambandi sínu og Larssons, sem hún segir að hafi ratað í bækurnar. „Fyrri bókina skrifaði ég í þeirri von að geta breytt löngu úreltum sambúðarlögum í Sví- þjóð,“ segir Gabrielsson í samtali við Fréttablaðið. „Það er órétt- látt að löggjafinn líti ekki á sam- býlisfólk sem pör bara vegna þess að það vantar einhverja pappíra. Veruleikinn á að fá að tala sínu máli. Í tólf ríkjum Bandaríkj- anna gengur löggjafinn einfald- lega úr skugga um hvort um raun- verulega sambúð var að ræða ef skera þarf úr um arf. Hafi parið verið með sameiginlegan fjárhag eða búið á sama stað í ákveðinn tíma er slíkt samband talið jafn- gilda hjónabandi hvað erfðarétt varðar.“ Síðari bókina skrifaði Gabriels- son til að varpa ljósi á til dæmis tilurð Millennium-þríleiksins. „Þetta er ekki endurminninga- bók eða ævisaga, ég vildi einfald- lega koma því á hreint hvernig þessar bækur urðu til og hvernig ýmislegt úr okkar sambandi rataði beint í bækurnar, þar á meðal hug- myndir frá mér og fleira sem ég lagði til.“ Gabrielsson segist ekki líta á sig sem meðhöfund bókanna hvað sjálfar skriftirnar áhrærir; þær hafi Stieg séð alfarið um. „En inni- haldið er að mörgu leyti afrakstur samstarfs sambands okkar. Eng- inn hefði vefengt það hefðum við verið gift.“ Lætur deilurnar ekki ráða lífi sínu Deilurnar um arfinn og höfunda- réttinn hafa nú staðið í á sjöunda ár. Gabrielsson fullyrðir að hún hafi hins vegar aldrei látið þær heltaka líf sitt. „Ég skrifaði þessa bók meðal annars til þess að þurfa ekki að svara mikið fleiri spurningum um þetta mál. Það sem gerðist þegar fyrsta bókin kom út 2005 var ég sú eina sem þekkti Stieg og verkið virkilega vel. Ég neyddist þannig hálfpartinn til að verða hinn opin- beri fulltrúi bókarinnar, mæta í við- töl og gera það sem Stieg hefði þurft að gera hefði hann lifað. Ég geri ráð fyrir að gera það áfram. Ég var aftur á móti aldrei háð Stieg með líf mitt eða afkomu. Ég er í minni eigin vinnu, á áhugamál sem ég sinni og svo framvegis. Ég hef því ekki látið þetta mál verða ráðandi í lífi mínu. Ég held hins vegar að því verði aldrei lokið af minni hálfu því óréttlætið verður ávallt til staðar.“ Gagnrýnir Larsson-iðnaðinn Gabrielsson er afar gagnrýnin út í það sem hún kallar „Stieg Larsson- iðnaðinn“, sem ekki ber að rugla saman við „Millennium-iðnaðinn“. „Sá síðarnefndi gerir út á sjálf- ar bækurnar, sem er fínt. Þær voru skrifar til að vera lesnar sem víðast. „Stieg Larsson-iðnaðurinn gengur hins vegar út á að reyna að græða á persónu Stiegs; að gera heimildar- myndir um hann, blaðagreinar og jafnvel ævisögur. Markmiðið er fyrst og fremst að búa til vöru með tengingu við nafn Stiegs Larsson og vonast eftir skjótvinnum gróða. Ég hef fengið ótal fyrirspurnir frá fólki um samstarf við slík verkefni en ávallt afþakkað. Ég hef engan áhuga á taka þátt í því að að búa til söluvöru úr persónunni.“ Hef enga ástæðu til að fyrirgefa Því trúir hún hins vegar vel upp á Larsson-feðgana, sem hún segir hafa nálgast höfundarverk Stiegs Larssons fyrst og fremst með því hugarfari að græða á því. Spurð hvort reiðin í þeirra garð hafi hjaðnað með árunum verður Gabrielsson ströng á svipinn. „Ég verð reið eins lengi og þess þarf. Ég hef enga ástæðu til ann- ars. Til að fyrirgefa einhverjum þarf viðkomandi að iðrast gjörða sinna og breyta rétt. Þar til það gerist á ég ekki eftir að fyrirgefa þeim. Hvort það sé líklegt til að ger- ast er ekki mitt vandamál heldur þeirra. Skömmin er þeirra og allur umheimurinn veit það. bergsteinn@frettabladid.is Verð reið svo lengi sem óréttlætið er til staðar EVA GABRIELSSON Þau Stieg Larsson bjuggu saman í 32 ár en þar sem þau voru ógift fékk hún engan arf. Hún vinnur að því að bæta réttarstöðu para í óstaðfestri sambúð í Svíðþjóð. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI ÞAÐ SEM ER Í KAOLIN Sigríður Júlía Bjarnadóttir myndlistarmaður sýnir olíumálverk á sýningunni „Það sem er“ í Gallerí KAOLIN Ingólfsstræti 8. Sýningin stendur til 23. maí og er opin alla virka daga klukkan 12 til 18 og frá 11 til 15 langa laugardaga. Ég verð reið eins lengi og það þarf. Ég hef enga ástæðu til annars. Til að fyrirgefa einhverjum þarf viðkomandi að iðrast gjörða sinna og breyta rétt. EVA GABRIELSSON EKKJA STIEGS LARSSON
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.