Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 54
13. maí 2011 FÖSTUDAGUR38
Katy Perry segir að eigin-
maður sinn, Russell Brand,
haldi henni jarðtengdri. Hún
eigi það til að missa stund-
um fótanna í glamúr og glys
fræga fólksins. Þetta kemur
fram í Vanity Fair.
Perry sló eftirminnilega í
gegn árið 2008 og viðurkenn-
ir í viðtalinu að frægðin eigi
það stundum til að stíga henni
til höfuðs. Þá hafi hún mann-
inn sinn til að koma sér niður
á jörðina aftur. „Hann kemur
mér alltaf í samband við
raunveruleikann og minnir
mig á hvað það er í lífinu sem
skiptir mestu máli.“
Heldur Perry á jörðinni
GLEYMIR SÉR Katy Perry gleymir sér stundum í
frægðinni en maðurinn hennar, Russell Brand,
er fljótur að kippa henni niður á jörðina aftur.
Leonardo DiCaprio er hættur með kærustu sinni, ísraelsku fyrirsætunni
Bar Rafaeli. Þetta kemur fram í New York Post. Þau hafa verið saman
í fimm ár og ákváðu í síðustu viku að þetta væri orðið gott. „Þetta var
óhjákvæmilegt, þau eru ennþá vinir og tala saman. Þau hafa bara þrosk-
ast hvort í sína áttina,“ hefur New York Post eftir heimildarmanni sínum.
Blaðið greinir jafnframt frá því að hvorki DiCaprio né
Rafaeli hafi verið reiðubúin til að binda sig til fram-
búðar; þau séu bæði ákaflega upptekin á
sínu sviði og hafi því vart tíma fyrir
hvort annað.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
DiCaprio og Rafaeli hætta saman,
þau voru í sundur í sex mán-
uði árið 2009 eftir að hafa verið
saman í fjögur ár. DiCaprio hefur
lýst því yfir að hann sé ekki viss
um að hjónaband sé rétti hlutur-
inn fyrir sig. „Ég hef séð allt of
mörg hamingjusöm hjónabönd
fara í súginn og þá hef ég
yfirleitt verið jafn hissa og
allir aðrir.“
DiCaprio á lausu
HÆTT SAMAN Leonardo DiCaprio
og Bar Rafaeli eru hætt saman
eftir fimm ára samband.
Bandaríska leikkonan Lindsay
Lohan hefur verið dæmd í 120
daga fangelsi fyrir að stela háls-
meni af skartgripasala í Kaliforníu
og rjúfa skilorð. Henni hefur jafn-
framt verið gert að gangast undir
sálfræðimeðferð vegna stelsýki.
Lohan getur þó prísað sig sæla þar
sem talið er líklegt að hún þurfi
ekki að afplána dóminn í fangelsi
því þau eru öll uppfull í Kaliforníu.
Er því talið líklegt að Lohan fái að
afplána dóminn í stofufangelsi.
Lohan hefur átt ákaflega erf-
itt uppdráttar undanfarin ár, en
þetta er annar dómurinn á fjórum
árum sem hún hlýtur. Upphafið að
þessum dómi má rekja til þess að
hún réðst að starfsmanni Betty
Ford-meðferðarheimilisins í des-
ember síðastliðnum. Samkvæmt
skýrslum sem lagðar voru fyrir
dómara í vikunni virðist Lohann
hafa stolist út um miðja nótt og
pantað sér drykki á veitingastöð-
um og börum. Með þeirri hegðun
sinni rauf hún skilorðið sem hún
var dæmd til að halda árið 2007
fyrir ölvunarakstur.
Lohan sendi frá sér yfirlýsingu
eftir að dómurinn var genginn í
gegn og sagðist vera þakklát fyrir
þá sanngirni sem hún hefði mætt
í dómsal. „Nú bið ég bara um að
fá að afplána minn dóm í friði frá
fjölmiðlum.“
Lohan á leið
í fangelsi
VANDRÆÐASEGGUR Lindsay Lohan er
vandræðagemlingur og hefur nú verið
dæmd í 120 daga fangelsi. Talið er
líklegt að hún fái að afplána þann tíma í
stofufangelsi.
Leikstjórinn Friðrik Þór
Friðriksson tekur þátt í
góðgerðaleik í fótbolta á
Cannes-hátíðinni í Frakk-
landi á morgun. Á meðal
þátttakenda verða Zinedine
Zidane, Eric Cantona og
Jude Law.
Friðrik Þór Friðriksson, leik-
stjóri og framleiðandi, tekur þátt
í góðgerðaleik í fótbolta á kvik-
myndahátíðinni í Cannes sem
nú stendur yfir í Frakklandi. Á
meðal þekktra einstaklinga sem
hafa boðað komu sína eru frönsku
landsliðsmennirnir fyrrverandi
Zinedine Zidane, Eric Cantona
og Youri Djorkaeff, auk leikarans
Jude Law.
„Maður má ekkert taka á því í
kvöld því maður verður að vera
„fitt“ fyrir laugardaginn,“ segir
Friðrik Þór, sem átti afmæli þegar
Fréttablaðið ræddi við hann í gær.
Hann lætur því eingöngu vatn inn
fyrir sínar varir fram að leik og
ætlar að sleppa kokteilunum og
kampavínsglösunum sem freista
gesta Cannes hvað eftir annað.
Friðrik Þór þarf að vera mættur
í boltann klukkan níu í fyrramál-
ið og er það fyrirtækið Nike sem
stendur fyrir uppátækinu. „Mig
grunar að þetta sé strandbolti því
Cantona er að kynna strandbolta
úti um allan heim. Hann er miklu
erfiðari fyrir gamla menn,“ segir
leikstjórinn og hlær. „En þetta
kemur bara í ljós á laugardaginn.“
Friðrik er í fínu formi enda spil-
ar hann fótbolta þrisvar í viku
með Lunch United. Hann ætlar
ekki að hika við að láta stjörnurn-
ar finna fyrir því ef hann lendir á
móti þeim í liði. „Jú, jú, það verð-
ur að hafa gaman af þessu.“
Hann hefur sótt kvikmyndahá-
tíðina í Cannes yfirleitt á hverju
ári síðan 1987 og þekkir því
hverja þúfu í borginni. Margt
frægt fólk spókar sig um á hátíð-
inni og stutt er síðan Friðrik hitti
leikarann Fisher Stevens, sem
lék undir hans stjórn í myndinni
Cold Fever. Hann fór einnig í
hádegisverð með ítölsku leikkon-
unni Claudiu Cardinale sem var
mikið kyntákn hér á árum áður
og lék í myndum eftir leikstjórana
Federico Fellini og Sergio Leone,
auk þess að fara með hlutverk í
The Pink Panther á móti Peter
Sellers. „Ég er að reyna að fá hana
til Íslands á kvikmyndahátíðina
RIFF í haust,“ sagði leikstjórinn,
sem verður í Cannes í eina viku.
freyr@frettabladid.is
Leikur knattspyrnu með
stjörnunum í Cannes
BOLTI MEÐ STJÖRNUNUM
Friðrik Þór Friðriksson spilar fótbolta með
stjörnum á borð við Zinedine Zidane, Eric
Cantona og Jude Law í Cannes.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
TILBOÐ 3
TILBOÐ 2
TILBOÐ 1
Komið og
prófið nýja
matseðilinn
okkar