Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 34
8 föstudagur 13. maí
Anna Clausen
Hvað verður heitast í sumartískunni? Ég tel að hvítar flíkur með þungum, fallandi línum í anda
sumarlínu Celine verði vinsælar í sumar. Þetta fer fullkomlega við heita sumardaga. Notið sterka liti
við til að glæða hvítu flíkina lífi.
Hvað telur þú nauðsynlegt að eiga fyrir sumarið og af hverju? Tösku! Í sumar verða minni töskur
vinsælar þannig að veljið svokallað „clutch“ eða áberandi tösku eins og þessa frá Hildi Yeoman; slík
taska mun hressa upp á hvaða fatasamsetningu sem er. Sólgleraugu eru líka skyldueign fyrir sum-
arið. Eins og töskur og skór geta þær breytt heildarútlitinu til hins betra og hvet ég fólk til að finna
sér ein í anda sjöunda eða tíunda áratugarins. Ef þið ætlið á ströndina í sumar er sniðugt að
fjárfesta í nýju handklæði.
Hver eru plön þín fyrir sumarið? Ég ætla til New York!
Í byrjun vikunnar fengu landsmenn loks svolítið sumarveður og vakti
það upp þrána eftir betri tíð með blóm í haga. Borgarbúar hafa tekið
sólinni fagnandi og dregið fram stuttbuxur, sandala og ermalausa kjóla
henni til heiðurs.
Sé einhver í vafa um hvað sé heitt í tískunni í sumar þarf ekki að ör-
vænta mikið lengur því Föstudagur leitaði til þriggja landsþekktra stíl-
ista og fékk þá til að deila því með lesendum hvað þarf að eignast fyrir
sumarið. - sm
Stílistar gefa ráð fyrir sumartískuna:
FLOTT FYRIR
SUMARIÐ
Eyrnalokkur
eftir Hildi
Yeoman, fæst í
KronKron Verð
fæst uppgefið í
verslun.
„Íþrótta-
taska“ eftir
Hildi Yeo-
man, fæst í
KronKron
Verð fæst
uppgefið í
verslun.
Kjóll
frá
Plea-
sure
Prin-
ciple,
fæst í
Aftur 43.000 kr.
Gallajakki frá
Aftur 75.000 kr.
Samfesting-
ur frá Siggu
Mæju Verð
fæst uppgefið
hjá hönnuði.
Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir
Hvað verður heitast í sumartísk-
unni? Ég er heitust fyrir síðum kjól-
um og síðum pilsum. Bleiserum,
þröngum stuttum kjólum og bara
persónulegum stíl. Mestu máli
skiptir hvað klæðir mann vel. Hverri
konu er nauðsynlegt að eiga vel
gerða og fallega skó, tösku og
sólgleraugu.
Hvað telur þú nauðsynlegt
að eiga fyrir sumarið og af
hverju? Góða sólarvörn, af því
að öll brúnka er bruni. Tjald, af
því að það er frábært að tjalda á
Íslandi. Síðan kjól, sólgleraugu
og fullt af höttum. Gott ilmvatn
er líka algjör nauðsyn.
Hvaða vor/sumarlínu ert
þú hrifnust af? Alexander
McQueen, Ann Demulemees-
ter, Givency, Haider Ackerman,
Comme des Garcons og Yohji
Yamamoto. Þetta eru hönnuð-
ir sem mér finnst alltaf sam-
kvæmir sjálfum sér og höfða
mest til mín. Og mig langar
í allar vorlínurnar þeirra.
Núna!
Taska
frá Next
6.490 kr.
Sólgleraugu frá
Jack and Jones
2.990 kr.
Alda B. Guðjónsdóttir
Hvað verður heitast í sumartískunni? Skærir litir og
fólk á að vera alveg óhrætt við að blanda þeim saman.
Hattar! Það eru allir vitlausir í hatta eftir konunglega
brúðkaupið.
Hvað telur þú nauðsynlegt að eiga fyrir sumarið og
af hverju? Sólgleraugu og sólarvörn. Þau hafa bæði
sama tilgang, sem er að verja húðina fyrir hrukkum,
enginn vill fá þær.
Hvað kemur þér í sumarskap? Sólin og mojito.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Handklæði frá Scin-
tilla, fæst í Spark
Design Space
4.500 kr.
Sundbolur
frá Ac-
cessorize
6.990 kr.
Handgerð
sólgleraugu
frá Kador,
fást í Linsunni
19.800 kr.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Viltu starfa í frábærri atvinnugrein
– eða ertu starfandi í ferðaþjónustu!
Kynntu þér spennandi nám sem býður upp á mörg tækifæri og möguleika.
Innritun lýkur 20. maí
STARFSTENGT FERÐAFRÆÐINÁM
Ferðamálaskólinn sími: 594 4020
Ævintýralegur
starfsvettvangur
FERÐAMÁLA
SKÓLINN
WWW.MK.IS