Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 58

Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 58
13. maí 2011 FÖSTUDAGUR42 sport@frettabladid.is MARGRÉT LÁRA VIÐARSDÓTTIR heldur áfram að fara á kostum í sænska kvenna- boltanum. Hún tryggði liði sínu, Kristianstad, sigur á Tyresö í gær með eina marki leiksins. Kristianstad hefur komið skemmtilega á óvart í upphafi tímabils og er í öðru sæti deildarinnar. FÓTBOLTI Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu spila sinn fyrsta leik í undankeppni EM 2013 þegar Búlgarar mæta á Laugar- dalsvöllinn í næstu viku. Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálf- ari er búinn að velja 22 manna hóp fyrir leikinn. „Við rennum aðeins blint í sjó- inn því við höfum aldrei spilað við Búlgaríu en ég er búinn að sjá nokkra leiki með þeim á DVD og þær eru sýnd veiði en ekki gefin,“ sagði Sigurður Ragnar, en þetta verður einn af skyldusigrum stelpnanna í riðlinum. „Þær töp- uðu nokkrum leikjum frekar stórt í síðustu undankeppni en þeim tókst líka að ná jafntefli við Dan- mörku úti í Búlgaríu þannig að þær virðast geta varist. Við þurf- um að sýna þolinmæði og reyna að brjóta þær niður,“ segir lands- liðsþjálfarinn, en þetta er fyrsta verkefni liðsins síðan það komst í úrslitaleikinn á hinu sterka Algarve-móti. „Við spiluðum mjög vel á Algarve og þá var liðið sérstak- lega öflugt varnarlega og mark- varslan mjög góð. Núna reikna ég með að það muni reyna meira á hversu gott liðið er að sækja. Ég hugsa að við verðum miklu meira með boltann í þessum leik og þá snýst þetta aðallega um að reyna að brjóta niður vörnina hjá þeim. Algarve á að gefa okkur byr í segl- in en það hjálpar okkur ekki beint því við fáum ekki gefins mark fyrir að hafa gengið vel í mars,“ segir Sigurður. Sigurður Ragnar valdi þær stelpur sem voru í aðalhlut- verki þegar liðið náði öðru sæti í Algarve-bikarnum og þá kemur Hólmfríður Magnúsdóttir aftur inn í hópinn eftir meiðsli. Hann valdi líka þrjá nýliða í hópinn, Stjörnustelpuna Eyrúnu Guðmundsdóttur, KR-inginn Katrínu Ásbjörnsdóttur og hina sautján ára gömlu Guðmundu Brynju Óladóttur frá Selfossi. „Ég hef haldið mig við þessa stefnu því við höfum ekkert 21 árs lið. Þetta er aðeins til að brúa bilið og til að ungir og efnilegir leik- menn fái nasaþefinn af A-lands- liðinu,“ segir Sigurður Ragnar. „Við höfum séð unga leikmenn vinna sér sæti í liðinu, eins og Söru Björk Gunnarsdóttur, Dag- nýju Brynjarsdóttur og Rakel Hönnudóttur,“ segir Sigurður Ragnar, en Guðmunda hefur verið í aðalhlutverki með 17 ára lands- liðinu sem komst alla leið í loka- úrslit EM. „Hún er aðeins eldri en Sara var þegar ég valdi hana fyrst. Í gegnum tíðina hafa okkar bestu leikmenn byrjað í landsliðinu á þessum aldri og núna höfum við aldrei átt jafn gott 17 ára lands- lið. Mér finnst mikilvægt að senda þau skilaboð út að ungir leikmenn geti unnið sér sæti í landsliðinu með því að standa sig vel. Ef leik- menn eru nógu góðir á ekki að skipta neinu máli hvað þeir eru gamlir eða hvar þeir spila,“ sagði Sigurður Ragnar að lokum. - óój Sigurður Ragnar Eyjólfsson valdi 22 manna hóp fyrir fyrsta leikinn í EM 2013: Við fáum engin gefins mörk fyrir að ganga vel í mars SIGURÐUR RAGNAR EYJÓLFSSON Á leið í þriðju undankeppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI „Það var grátlegt að þetta mark skyldi ekki duga til sigurs. Enda lamdi ég fast í jörðina þegar þeir jöfnuðu,“ sagði Matthías Vil- hjálmsson, fyrirliði FH, sem taldi sig hafa tryggt FH sigur í Keflavík er hann skoraði glæsilegt mark úr aukaspyrnu af um þrjátíu metra færi. Gamla brýnið Grétar Ólafur Hjartarson sá aftur á móti til þess að FH fór aðeins með eitt stig í Hafnarfjörðinn er hann jafn- aði leikinn fyrir heimamenn í uppbótartíma. „Við vorum að vonast til þess að byrja mótið aftur. Við erum þó með fjögur stig og það er jafn mikið og eftir fjórar umferðir í fyrra. Ef við vinnum næsta leik er byrjunin betri en fyrir ári. Þetta er því ekki alslæmt en þetta gæti verið betra,“ sagði Matthías, en FH er búið að vinna einn leik, gera eitt jafntefli og tapa einum leik. Liðið er þó aðeins þrem stigum á eftir toppliði KR. „Það hefur ýmislegt vantað upp á hjá okkur. Við þurfum að taka betri ákvarðanir á síðasta þriðj- ungi vallarins og nýta færin okkar betur. Svo er svolítið einbeitingar- leysi hjá okkur í föstum leikatrið- um. Mér finnst við hreinlega hafa verið klaufar í þessum leikjum þar sem við höfum misst stig. Við klár- um ekki færin okkar og þá er okkur refsað. Þessu verður að breyta.“ FH-ingum var spáð titlinum fyrir tímabilið enda liðið ákaflega vel mannað og hópurinn breiður. Matthías segir að menn finni ekk- ert sérstaklega fyrir pressunni enda ætli FH sér alltaf stóra hluti. „Pressan hefur engin áhrif á okkur. Þetta hefur alltaf verið svona síðan ég byrjaði í meistara- flokki. Pressan ætti frekar að kalla á að menn væru enn einbeittari en ella,“ sagði Matthías, sem var ekki ánægður með fyrstu tvo leikina hjá sér í mótinu. „Það eru margir góðir leikmenn í FH og reyndir. Við hjálpumst allir að en ég set alltaf mjög mikla pressu á sjálfan mig. Fyrstu tveir leikirnir voru vonbrigði hjá mér persónulega en mér leið mun betur í Keflavík. Ég vona að með hækk- andi sól verði ég enn betri.“ Matthías fór utan til Englands í vetur þar sem hann var í láni hjá enska C-deildarliðinu Colchester. Dvölin þar var styttri en áætlað var enda fékk Matthías lítið sem ekkert að spreyta sig hjá félaginu. „Dvölin þar gerði mér samt mjög gott og ég lærði heilmikið sem ég get nýtt mér. Það var gott að fá smjörþefinn af atvinnumennsk- unni því nú veit ég betur hvað þarf til ef ég ætla að komast í atvinnu- mennsku. Ég bað um að koma heim fyrr þar sem mig vantaði leikæf- ingu. Ég vildi koma heim og spila þó svo að æfingarnar úti hefðu verið ágætar. Það var nauðsynlegt að fá leiki í Lengjubikarnum svo ég yrði klár fyrir sumarið,“ sagði Matthías. Þó svo að FH-vélin hafi hikstað örlítið í fyrstu leikjunum segir Matthías engar líkur vera á því að leikmenn liðsins fari á taugum. „Við erum alveg rólegir. Við þurfum ekkert að panikka fyrr en í svona 20. umferð ef staðan verður slæm þá,“ sagði Matthías léttur. henry@frettabladid.is Set mikla pressu á sjálfan mig FH-ingurinn Matthías Vilhjálmsson er leikmaður 3. umferðar í Pepsi-deild karla. Matthías lék afar vel gegn Keflavík og skoraði glæsilegt mark beint úr aukaspyrnu. Matthías fékk smjörþefinn af atvinnumennsk- unni í vetur er hann var lánaður til Englands. Hann segir FH-inga vera rólega þrátt fyrir misjafna byrjun. KOMINN Í GANG Matthías átti magnaðan leik gegn Keflavík og skoraði eitt af mörkum ársins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Lið umferðarinnar 4-4-2 Magnús Pétursson Stjarnan Guðmundur Reynir Gunnarsson KR Haraldur Freyr Guðmundsson Keflavík Jón Orri Ólafsson Fram Rasmus Christiansen ÍBV Tómas Óli Garðarsson Breiðablik Matthías Vilhjálmsson FH Viktor Bjarki Arnarsson KR Þórarinn Ingi Valdimarsson ÍBV Robbie Winters Grindavík Garðar Jóhannsson Stjarnan HANDBOLTI Þjálfarinn Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson er heldur betur að gera það gott með þýska B- deildarliðið Eisenach þessa dag- ana, en það hefur tryggt sér sæti í nýrri B-deild þýska boltans á næstu leiktíð. „Það er búið að vera gríðarlega mikið undir í vetur og félög að berjast fyrir lífi sínu. Þetta hefur verið merkilegt ár,“ sagði Aðalsteinn, en hans lið er taplaust í tíu leikjum í röð. Þar af unnust níu leikj- anna. B-deildin er tvískipt í ár en verður sameinuð í eina á næsta ári. Aðeins níu lið af átján í deild Eisenach fá sæti í nýrri sameiginlegri B-deild á næsta ári. Þeirra félaga sem falla bíður nýtt rekstr- arumhverfi og jafnvel gjaldþrot. „Það má segja að framtíð félaganna hafi verið undir á þessu tímabili,“ sagði Aðalsteinn, sem tók við liðinu í lok síðasta tímabils. „Það er vel staðið að öllu hér. Vel stutt við liðið, fjórtán atvinnu- menn í hópnum og ekki yfir neinu að kvarta. Þetta er það besta sem ég hef komist í á mínum ferli,“ sagði Aðalsteinn, sem verður áfram þjálfari þar sem liðið verður áfram í B-deild. Ef það hefði mistekist væri hann án samnings. „Þetta var mitt fyrsta ár í þessari deild og ég varð því að sanna mig. Þetta er því mik- ill sigur fyrir mig persónulega. Ég líki þessu við að vinna titil. Ég vissi ekki hvernig ég átti að vera eftir að áfang- anum var náð. Svo var tómarúm daginn eftir en ég er að ná áttum,“ sagði Aðalsteinn léttur. - hbg Aðalsteinn vann þrekvirki með þýska liðið Eisenach: Mikill sigur fyrir mig FÓTBOLTI Kenny Dalglish skrifaði í gær undir þriggja ára samning við Liverpool og getur nú farið að huga að því að setja saman leik- mannahóp liðsins fyrir næsta tímabil. Dalglish tók við liðinu tímabundið í janúar en fékk nýjan samning eftir að hafa ger- breytt spilamennsku og gengi liðsins. „Það skiptir ekki máli hvort leikmenn eru keyptir fyrir háar eða lágar fjárhæðir heldur er aðalatriðið að eyða peningunum af skynsemi. Ég hef peninga til þess að eyða í leikmenn en það mun ekki tryggja eitt eða neitt. Ég ætla að eyða skynsamlega í leikmenn í sumar,“ sagði Kenny Dalglish. „Eins og hjá öllum fótbolta- klúbbum verða einhverjar hreyf- ingar á mönnum inn eða út og ég er viss um að það verður nóg af pælingum um hve sér að koma eða fara. Þið munið jafn- vel þekkja einhver nöfnin,“ sagði Dalglish léttur að vanda. „Við ætlum að stunda góð við- skipti í sumar og því betur sem það tekst, þeim mun betur mun ganga í framhaldinu,“ sagði Dalglish. - óój Dalglish framlengdi: Ætlar að eyða skynsamlega KENNY DALGLISH Hefur slegið í gegn með Liverpool eftir áramót. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.