Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 19
FÖSTUDAGUR 13. maí 2011
Komdu í heimsókn í Háskólann í Reykjavík föstudaginn
13. maí á milli kl. 13:00 og 16:00 og kynntu þér hagnýt
verkefni nemenda í tækni- og verkfræðideild HR.
DAGSKRÁ:
8:30
Þjóðhagsleg áhrif orkunýtingar
Fundarröð Samtaka iðnaðarins og Háskólans í Reykjavík um orkumál.
Stofa: M.2.09, Herkúles 5.
13:00
Opnun Tæknidags í Sólinni
Dr. Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni- og verkfræðideildar,
býður gesti velkomna og minnist þess að 40 ár eru liðin frá útskrift
fyrstu tæknifræðinga á Íslandi. Sérstakir boðsgestir Tæknidags HR
2011 eru 40 ára tæknifræðingar.
13:15
Viðurkenningar fyrir bestu lokaverkefni í tæknifræði
Formaður Tæknifræðingafélags Íslands, Bergþór Þormóðsson,
veitir viðurkenningar fyrir framúrskarandi lokaverkefni. Nýútskrifaðir
tæknifræðingar kynna verkefni sín. Stofa: V1.02, Betelgás.
Afmæliskaffi
14:15
Uppskeruhátíð 3ja vikna námskeiða
tækni- og verkfræðideildar HR
Nemendur sýna verkefni sín, innandyra sem utan,
í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík.
Mannvirki í Öskjuhlíð
– samstarfsverkefni tæknifræðinema við HR og arkitektanema
við Listaháskóla Íslands.
Gagnvirk listaverk í Sólinni
– samstarfsverkefni tæknifræðinema við HR og myndlistarnema
við Listaháskóla Íslands.
Sjálfvirkur kafbátur leikur listir sínar í Djúpinu
– verkefni meistaranema í verkfræði.
Kafbáturinn verður framlag HR í alþjóðlegri keppni
í Bandaríkjunum í sumar.
Sjálfráður iðnróbot í fullu fjöri
Stofa: V2.09, Rafmagnstæknistofa.
Vindgöng, stór og smá, til kennslu og rannsókna
Stofa: V1.12, Orkutæknistofa.
Frá bensíni yfir í rafmagn
– rafbílaverkefni HR. Stofa: V1.12, Orkutæknistofa.
Vélabekkur til prófunar á mismunandi eldsneyti
Stofa: V1.12, Orkutæknistofa.
Nýstárlegt byggingarefni í ljósastaura
Stofa: V1.13, Byggingartæknistofa.
Tölvustudd hönnun, álagsgreining, smíði og prófun
Stofa: V1.13, Byggingartæknistofa og stofa V1.10.
Tölvustudd hönnun og hreyfigreining á róbot
Stofa: V1.11, Vélsmiðjan.
Heilbrigðistækni, svefn og íþróttir
Stofa: V1.14, Heilbrigðistæknistofa.
Sjálfvirk gagnaskráningartæki
Fyrir framan stofu V1.12, Orkutæknistofa.
Hagnýt verkefni í raforkukerfum
– opnar varnir á verkefnum nemenda. Stofa: V1.05.
Burðarvirkjahönnun húsbygginga
Stofa: V1.16.
Vöruþróun frá upphafi til enda
– opnar varnir á verkefnum nemenda. Stofa: V1.02, Betelgás.
Verkefnastjórnun
– leiðin til árangurs. Stofa: M2.01.
ALLIR VELKOMNIR!
Föstudaginn 13. maí í Nauthólsvík
TÆKNIDAGUR
TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILDAR HR
Fram undan er Eurovision. Sumir líta á Eurovision sem
söngkeppni, ég lít á hana sem
margvítt reikningsdæmi. Keppnin
hefur nefnilega á undanförnum
árum orðið mörgum merkum
fræðimönnum tilefni vandaðra
skrifa í virt vísindatímarit.
Jæja, kannski ekki mjög virt. Og
kannski hafa skrifin ekki alltaf
verið vönduð. Og kannski hafa
fræðimennirnir hvorki verið
margir né merkir. En eitthvað
hafa þeir nú fundið út.
Klíkur
Auðvitað vita allir að
söngurinn er ekki alltaf
aðalatriðið. Þær rann-
sóknir sem hafa verið
gerðar á klíkumyndun
í Eurovision sýna að
sterkasta klíkan í Euro-
vision samanstendur af
tveimur löndum: Grikk-
landi og Kýpur. Ekki er
nóg með að löndin skipt-
ist ávallt á fullu húsi
stiga heldur er tónlistar-
smekkur þeirra þegar
kemur að stigagjöf í
garð annarra landa mjög
svipaður. Grikkland og
Kýpur saman eru því
eins og eitt ríki sem
fær forgjöf og tvöfalt
atkvæðavægi.
Næststerkasta klíkan er stór-
norræna klíkan sem samanstend-
ur af Norðurlöndunum fimm auk
Eistlands. Lönd innan klíkunnar
gefa hvort öðru miklu frekar stig
en löndunum utan, til dæmis tóku
öll þessi sex lönd þátt í úrslitum
árið 2009 og gáfu þau þá sjálf-
um sér yfir helminginn af stig-
unum. Öll hin nítján löndin fengu
þannig samanlagt 45 prósent af
heildarstigum klíkunnar meðan
55 prósentum var úthlutað „inn-
byrðis“.
Skyndibitatónlist
Norrænu lögin í Eurovision gera
tónlistarsmekk Íslendinga það
sama og viðbættur hvítur sykur
gerir mataræði þeirra. Ganga
má að því sem vísu að stór hluti
íslenskra kjósenda muni leita í þá
snöggu umbun sem Abba-lagið
sem Svíar hafa sent sleitulaust frá
áttunda áratugnum veitir. Annað:
Það er félagslega áhættulaust að
kunna að meta danska eða norska
lagið, á sama hátt og það er örugg-
ara val að baka súkkulaðiköku
fyrir kaffiboðið en að bjóða upp
á speltvefjur með spínatmauki.
Íhaldssemin ræður för. Sigurlag-
ið hennar Lenu frá Þýskalandi í
fyrra fékk þrjú stig frá Íslending-
um. Skömm. Við verðum stundum
að hugsa suður fyrir Slésvík.
Velvild þjóða
Í ársgamalli rannsókn
sem undirritaður gerði
ásamt Sigrúnu Helgu
Lund tölfræðingi var
reynt að meta velvild
milli þátttökuþjóða
Eurovision. Velvildin er
mæld í tölu frá -12 og
upp í +12. Velvild milli
Kýpur og Grikklands er
þannig +12 á báða vegu,
sem þýðir að hvort
landið gefur hinu að
jafnaði fullt hús stiga,
sama hve drulluléleg
bæði lögin kunna að
vera. Tafla 1 sýnir síðan
velvild Íslendinga í garð
nokkurra annarra Euro-
vision-þjóða.
Talan +8 við hlið Noregs tákn-
ar þannig að Íslendingar gefi
Norðmönnum að jafnaði 8 stigum
meira en þeir síðarnefndu eiga
skilið. Talan -10 við hlið Make-
dóníu þýðir að sama skapi að
jafnvel þótt Makedónía væri með
besta lagið í keppninni og ætti
skilið að fá 12 stig gæfu Íslend-
ingar því ekki nema 2.
Velvild annarra í garð Íslands
má sjá í töflu 2.
Við sjáum því að Íslendingar
eiga þó nokkra góða vini í keppn-
inni og það sem meira er, fá
lönd virðast búa yfir óvild í garð
Íslendinga. Með góðu framlagi
eru okkur því allir vegir færir.
Enginn er að leggja okkur í
einelti.
Stærðfræði er ekki allt
Þegar klíkutengsl Eurovision
hafa verið rannsökuð í þaula er
ekki úr vegi að velta því fyrir
sér hvort ekki sé hægt að nota
alla þessa stærðfræði til að spá
fyrir um úrslit keppna. Vopnaður
þungavigtartölfræðilíkunum líkt
og þeim sem lýst er að ofan tókst
mér að að giska fyrir fram rétt á
5 af þeim 10 lögum sem komust
áfram fyrra undanúrslitakvöldið.
Það er svipaður árangur og vænta
mætti af simpansa sem fengi í
hendur fána allra þáttökuríkja
og þyrfti að skipta þeim í bunka.
Unnusta mín, raunar stærðfræð-
ingur einnig, giskaði rétt á átta
lög af tíu. Hún notaði þá frumlegu
aðferð að hlusta á lögin. Rétt eins
og um söngvakeppni væri að ræða
en ekki margvítt reikningsdæmi.
Klókt.
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Hverjir
elska okkur mest?
Tafla 1:
Gefins stig frá Íslandi
Danmörk + 8
Finnland + 7
Svíþjóð + 5
Noregur + 4
...
Rússland -8
Georgía -9
Aserbaídjan -10
Makedónía -10
Tafla 2:
Gefins stig til Íslands
Noregur +10
Danmörk +10
Svíþjóð +9
Finnland +7
Ungverjaland +5
Portúgal +5
Malta +5
Bretland +5
...
Næst-
sterkasta
klíkan er
stórnorræna
klíkan sem
samanstend-
ur af Norður-
löndunum
fimm auk
Eistlands.
FATA
MARKA
ÐUR
LAUGA
RDALS
HÖLL
LAUGA
RDALH
ÖLLIN
Opið frá
12:00-19:00
Glænýjar
vörur beint
frá London!