Fréttablaðið - 13.05.2011, Side 19

Fréttablaðið - 13.05.2011, Side 19
FÖSTUDAGUR 13. maí 2011 Komdu í heimsókn í Háskólann í Reykjavík föstudaginn 13. maí á milli kl. 13:00 og 16:00 og kynntu þér hagnýt verkefni nemenda í tækni- og verkfræðideild HR. DAGSKRÁ: 8:30 Þjóðhagsleg áhrif orkunýtingar Fundarröð Samtaka iðnaðarins og Háskólans í Reykjavík um orkumál. Stofa: M.2.09, Herkúles 5. 13:00 Opnun Tæknidags í Sólinni Dr. Gunnar Guðni Tómasson, forseti tækni- og verkfræðideildar, býður gesti velkomna og minnist þess að 40 ár eru liðin frá útskrift fyrstu tæknifræðinga á Íslandi. Sérstakir boðsgestir Tæknidags HR 2011 eru 40 ára tæknifræðingar. 13:15 Viðurkenningar fyrir bestu lokaverkefni í tæknifræði Formaður Tæknifræðingafélags Íslands, Bergþór Þormóðsson, veitir viðurkenningar fyrir framúrskarandi lokaverkefni. Nýútskrifaðir tæknifræðingar kynna verkefni sín. Stofa: V1.02, Betelgás. Afmæliskaffi 14:15 Uppskeruhátíð 3ja vikna námskeiða tækni- og verkfræðideildar HR Nemendur sýna verkefni sín, innandyra sem utan, í Háskólanum í Reykjavík, Nauthólsvík. Mannvirki í Öskjuhlíð – samstarfsverkefni tæknifræðinema við HR og arkitektanema við Listaháskóla Íslands. Gagnvirk listaverk í Sólinni – samstarfsverkefni tæknifræðinema við HR og myndlistarnema við Listaháskóla Íslands. Sjálfvirkur kafbátur leikur listir sínar í Djúpinu – verkefni meistaranema í verkfræði. Kafbáturinn verður framlag HR í alþjóðlegri keppni í Bandaríkjunum í sumar. Sjálfráður iðnróbot í fullu fjöri Stofa: V2.09, Rafmagnstæknistofa. Vindgöng, stór og smá, til kennslu og rannsókna Stofa: V1.12, Orkutæknistofa. Frá bensíni yfir í rafmagn – rafbílaverkefni HR. Stofa: V1.12, Orkutæknistofa. Vélabekkur til prófunar á mismunandi eldsneyti Stofa: V1.12, Orkutæknistofa. Nýstárlegt byggingarefni í ljósastaura Stofa: V1.13, Byggingartæknistofa. Tölvustudd hönnun, álagsgreining, smíði og prófun Stofa: V1.13, Byggingartæknistofa og stofa V1.10. Tölvustudd hönnun og hreyfigreining á róbot Stofa: V1.11, Vélsmiðjan. Heilbrigðistækni, svefn og íþróttir Stofa: V1.14, Heilbrigðistæknistofa. Sjálfvirk gagnaskráningartæki Fyrir framan stofu V1.12, Orkutæknistofa. Hagnýt verkefni í raforkukerfum – opnar varnir á verkefnum nemenda. Stofa: V1.05. Burðarvirkjahönnun húsbygginga Stofa: V1.16. Vöruþróun frá upphafi til enda – opnar varnir á verkefnum nemenda. Stofa: V1.02, Betelgás. Verkefnastjórnun – leiðin til árangurs. Stofa: M2.01. ALLIR VELKOMNIR! Föstudaginn 13. maí í Nauthólsvík TÆKNIDAGUR TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILDAR HR Fram undan er Eurovision. Sumir líta á Eurovision sem söngkeppni, ég lít á hana sem margvítt reikningsdæmi. Keppnin hefur nefnilega á undanförnum árum orðið mörgum merkum fræðimönnum tilefni vandaðra skrifa í virt vísindatímarit. Jæja, kannski ekki mjög virt. Og kannski hafa skrifin ekki alltaf verið vönduð. Og kannski hafa fræðimennirnir hvorki verið margir né merkir. En eitthvað hafa þeir nú fundið út. Klíkur Auðvitað vita allir að söngurinn er ekki alltaf aðalatriðið. Þær rann- sóknir sem hafa verið gerðar á klíkumyndun í Eurovision sýna að sterkasta klíkan í Euro- vision samanstendur af tveimur löndum: Grikk- landi og Kýpur. Ekki er nóg með að löndin skipt- ist ávallt á fullu húsi stiga heldur er tónlistar- smekkur þeirra þegar kemur að stigagjöf í garð annarra landa mjög svipaður. Grikkland og Kýpur saman eru því eins og eitt ríki sem fær forgjöf og tvöfalt atkvæðavægi. Næststerkasta klíkan er stór- norræna klíkan sem samanstend- ur af Norðurlöndunum fimm auk Eistlands. Lönd innan klíkunnar gefa hvort öðru miklu frekar stig en löndunum utan, til dæmis tóku öll þessi sex lönd þátt í úrslitum árið 2009 og gáfu þau þá sjálf- um sér yfir helminginn af stig- unum. Öll hin nítján löndin fengu þannig samanlagt 45 prósent af heildarstigum klíkunnar meðan 55 prósentum var úthlutað „inn- byrðis“. Skyndibitatónlist Norrænu lögin í Eurovision gera tónlistarsmekk Íslendinga það sama og viðbættur hvítur sykur gerir mataræði þeirra. Ganga má að því sem vísu að stór hluti íslenskra kjósenda muni leita í þá snöggu umbun sem Abba-lagið sem Svíar hafa sent sleitulaust frá áttunda áratugnum veitir. Annað: Það er félagslega áhættulaust að kunna að meta danska eða norska lagið, á sama hátt og það er örugg- ara val að baka súkkulaðiköku fyrir kaffiboðið en að bjóða upp á speltvefjur með spínatmauki. Íhaldssemin ræður för. Sigurlag- ið hennar Lenu frá Þýskalandi í fyrra fékk þrjú stig frá Íslending- um. Skömm. Við verðum stundum að hugsa suður fyrir Slésvík. Velvild þjóða Í ársgamalli rannsókn sem undirritaður gerði ásamt Sigrúnu Helgu Lund tölfræðingi var reynt að meta velvild milli þátttökuþjóða Eurovision. Velvildin er mæld í tölu frá -12 og upp í +12. Velvild milli Kýpur og Grikklands er þannig +12 á báða vegu, sem þýðir að hvort landið gefur hinu að jafnaði fullt hús stiga, sama hve drulluléleg bæði lögin kunna að vera. Tafla 1 sýnir síðan velvild Íslendinga í garð nokkurra annarra Euro- vision-þjóða. Talan +8 við hlið Noregs tákn- ar þannig að Íslendingar gefi Norðmönnum að jafnaði 8 stigum meira en þeir síðarnefndu eiga skilið. Talan -10 við hlið Make- dóníu þýðir að sama skapi að jafnvel þótt Makedónía væri með besta lagið í keppninni og ætti skilið að fá 12 stig gæfu Íslend- ingar því ekki nema 2. Velvild annarra í garð Íslands má sjá í töflu 2. Við sjáum því að Íslendingar eiga þó nokkra góða vini í keppn- inni og það sem meira er, fá lönd virðast búa yfir óvild í garð Íslendinga. Með góðu framlagi eru okkur því allir vegir færir. Enginn er að leggja okkur í einelti. Stærðfræði er ekki allt Þegar klíkutengsl Eurovision hafa verið rannsökuð í þaula er ekki úr vegi að velta því fyrir sér hvort ekki sé hægt að nota alla þessa stærðfræði til að spá fyrir um úrslit keppna. Vopnaður þungavigtartölfræðilíkunum líkt og þeim sem lýst er að ofan tókst mér að að giska fyrir fram rétt á 5 af þeim 10 lögum sem komust áfram fyrra undanúrslitakvöldið. Það er svipaður árangur og vænta mætti af simpansa sem fengi í hendur fána allra þáttökuríkja og þyrfti að skipta þeim í bunka. Unnusta mín, raunar stærðfræð- ingur einnig, giskaði rétt á átta lög af tíu. Hún notaði þá frumlegu aðferð að hlusta á lögin. Rétt eins og um söngvakeppni væri að ræða en ekki margvítt reikningsdæmi. Klókt. Pawel Bartoszek stærðfræðingur Í DAG Hverjir elska okkur mest? Tafla 1: Gefins stig frá Íslandi Danmörk + 8 Finnland + 7 Svíþjóð + 5 Noregur + 4 ... Rússland -8 Georgía -9 Aserbaídjan -10 Makedónía -10 Tafla 2: Gefins stig til Íslands Noregur +10 Danmörk +10 Svíþjóð +9 Finnland +7 Ungverjaland +5 Portúgal +5 Malta +5 Bretland +5 ... Næst- sterkasta klíkan er stórnorræna klíkan sem samanstend- ur af Norður- löndunum fimm auk Eistlands. FATA MARKA ÐUR LAUGA RDALS HÖLL LAUGA RDALH ÖLLIN Opið frá 12:00-19:00 Glænýjar vörur beint frá London!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.