Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 13.05.2011, Blaðsíða 22
22 13. maí 2011 FÖSTUDAGUR Engar heimildir fyrir niðurníðslu Fréttablaðið og aðrir fjöl-miðlar hafa að undanförnu fjallað um fjölda niðurníddra húsa í miðborginni. Sú umfjöllun hefur verið málefnaleg og hún er mjög þörf. Niðurníðslan er óþol- andi. Hún skaðar okkur öll því hún setur slæman svip á verð- mæta sameign okkar, miðborg- ina. Hún verðfellir eignir í næsta nágrenni. Hún skapar íkveikju- hættu. Hún býr til hættuleg leik- svæði fyrir börn. Niðurníðslan hefur viðgengist árum saman. Ástæðurnar eru margvíslegar. Í sumum tilvik- um stafar hún af hreinni og klárri vanrækslu. I öðrum til- vikum hafa menn ætlað sér um of. Þeir hafa keypt gömul hús á uppsprengdu verði í trausti þess að geta rifið þau og byggt stærra í staðinn. Það hefur ekki gengið eftir og við sitjum uppi með hús í niðurníðslu. Það sannar sig líka enn og aftur að góð fyrirheit geta leitt til vondrar niðurstöðu. Fyrir 10 árum kepptist borgarstjórnin við að koma í veg fyrir að stóru verslunarmiðstöðvarnar, Kringlan og Smáralind, gerðu endanlega út af við verslun og mannlíf í gamla miðbænum. Viðamikil þróunaráætlun um eflingu miðborgarinnar var sam- þykkt aldamótaárið 2000. Hún fól meðal annars í sér miklar uppbyggingarheimildir á nokkr- um miðborgarreitum. Til að liðka fyrir keypti borgin fjölda lóða, einkum milli Hverfisgötu og Laugavegs, seldi þær til fjár- festa, með leyfi fyrir sameiningu þeirra í stórum stíl og fyrirheit um stóraukið nýtingarhlutfall. Eftir á að hyggja virðast borg- aryfirvöld hafa sett af stað of stórvirk tæki til efla miðborg- ina. Þar sem nýir miðborgar- kjarnar áttu að rísa blasir við auðn og niðurnídd hús. En þar sem náðist að byggja ný mið- borgarhús virka þau nokkrum númerum of stór fyrir hina smá- sköluðu Reykjavíkurbyggð. Í bók sinni 101 Tækifæri skrifar Snorri Freyr Hilmarsson að borgaryfir- völd hafi notað jarðýtur þar sem betra hefði verið að nota skóflur. Eitt af því sem flækir málin er hinn sterki „óefnislegi eign- arréttur“ sem ríkir hér á landi. Hann hefur meðal annars leitt til þess að fjárfestar, sem fyrir nokkrum árum fengu vilyrði fyrir miklu byggingarmagni á tilteknum reitum, líta á vilyrðin sem ígildi fasteignar enn þann dag í dag, jafnvel þótt þeir hafi enga getu til að byggja og bæði borgarbúar og borgaryfirvöld telji byggingarmagnið allt of mikið. Hótanir um skaðabætur vofa yfir, verði byggingarmagnið minnkað. Flest þeirra svæða þar sem nýju miðborgarkjarnarnir áttu að rísa eru nú í pattstöðu. Meðan á því stendur grotna húsin niður sem áttu að víkja fyrir hinni nýju byggð. Það á ekki að viðgangast. Við töpum öll á því. Ágreiningur um byggingarmagn veitir enga heimild fyrir niður- níðslu. Í borgarstjórninni eru allir sammála um að þetta megi ekki ganga lengur svona. Meirihluti í skipulagsráði lagði fram bókun og nokkurs konar stefnuyfirlýs- ingu á miðvikudaginn. Þar segir að ekki verði lengur hikað við að beita dagsektum og öðrum þving- unarúrræðum, svo sem nauð- ungarsölu, gagnvart eigendum niðurníðsluhúsa og lóða ef þeir sinna ekki áskorun byggingar- fulltrúa um úrbætur. Dagsekt- irnar geta orðið allt að 50.000 krónum á dag. Þar er einnig tekið fram að við beitingu sekta og þvingunarúrræða verði „ekki tekið tillit til þess hvort slæmt ásigkomulag fasteigna megi rekja til heimilda í deiliskipulagi, mögulegra óska lóðarhafa um breytinga á skipulagi eða ann- arra áhrifaþátta enda eru engar heimildir fyrir því í lögum að slíkar aðstæður veiti lóðarhöfum rétt á að sinna viðhaldi fasteigna illa eða ekki“. Niðurnídd hús Hjálmar Sveinsson varaformaður skipulagsráðs Niðurníðslan hefur viðgengist árum saman. Ástæðurnar eru margvíslegar. Í sumum tilvikum stafar hún af hreinni og klárri vanrækslu. NÁÐU ÁRANGRI. ÚTILÍF – HOLTAGÖRÐUM. GLÆSIBÆ. KRINGLUNNI. SMÁRALIND. WWW.UTILIF.IS Í DAG VERÐUR SÉRFRÆÐINGUR FRÁ NIKE Í ÚTILÍF SMÁRALIND FRÁ KL. 17–19. ÍS L E N SK A SI A .I S U T I 54 97 3 05 /1 1 TILBOÐ: 21.592 KR. PEGASUS +27. Vinsælustu hlaupaskórnir frá Nike. Almennt verð: 26.990 kr. TILBOÐ: 17.992 KR. AIR MAX MOTO +8. Góðir hlaupaskór. Almennt verð: 22.490 kr. TILBOÐ: 21.592 KR. LUNARGLIDE +2. Léttir hlaupaskór. Almennt verð: 26.990 kr. TILBOÐ: 11.192 KR. DART 8. Ódýrir og þægilegir skór. Almennt verð: 13.990 kr. 20% KYNNINGAR- AFSLÁTTURAF VÖLDUM NIKE HLAUPASKÓM OG HLAUPAJÖKKUM Ég hef verið gagnrýnd Fyrir 20 árum var örkreppa á Íslandi og Hjálparstarf kirkjunnar fór að deila út matarpokum. Strax var tekin sú skynsamlega ákvörðun að setjast niður með hverjum og einum, fara í gegnum hans mál og skrá helstu staðreyndir. Var þar lagður grunnur að mikil- vægu talsmannshlutverki Hjálp- arstarfs kirkjunnar sem æ síðan hefur byggst á staðreyndum, áreiðanlegum upplýsingum um fátækt en ekki tilfinningu. Stjórnvöld farin að hlusta – aðgerða óskað Fyrir um 8 árum var félagsráð- gjafi ráðinn til Hjálparstarfs- ins. Á þeim tíma deildu tvö hjálparsamtök út matarpokum, Mæðrastyrksnefnd Reykja- víkur á höfuðborgarsvæðinu og Hjálparstarfið sem sinnti öllu landinu. Stjórnmálamenn skutu á samtökin og muna allir orð Davíðs Oddssonar um að Íslendingar hefðu alltaf verið tilbúnir að elta það sem er ókeypis. Þau orð endurspegla áralanga afstöðu stjórnvalda að vilja ekki ræða vandann. Nú hefur bágstöddum fjölgað til muna. Ekki er hægt að skella skollaeyrum við. Hjálpar- samtökin eru orðin þrenn. Enn bólar ekki á lausnum frá stjórnvöldum þótt vissulega séu þau farin að hlusta. Ráðgjöf, fjölbreytt og einstak- lingsbundin aðstoð Ég hef verið gagnrýnd fyrir að segja að margir þurfi aðra aðstoð en að fá matarpoka – þótt enginn lifi án matar. Þess vegna leggur Hjálparstarf kirkjunnar, eitt góðgerðar- félaga ef þessu tagi, mikla áherslu á faglega ráðgjöf og fleiri úrræði en mat. Þau fela í sér hjálp vegna skólagöngu og tómstunda barna og ung- menna, styrki fyrir lyfjum og lækniskostnaði, fatnað og fleira. Um þetta má lesa í árs- skýrslu á www.help.is, undir liðnum Um starfið. Aðstoð okkar er sveigjanleg og sniðin að þörfum hvers og eins. Inneignarkort í stað matarpoka – nauðsynlegt samstarf Nú 1. maí hófst ný tegund mataraðstoðar, inneignar- kort í stað matarpoka. Um leið var ákveðið að Hjálpar- starf kirkjunnar myndi aðeins aðstoða barnafólk með mat en vísa öðrum til hinna hjálpar- samtakanna, þar sem þau starfa. Séu engin slík, veitum við öllum aðstoð. Þetta er gert vegna þess að inneignarkortin eru dýrari leið og vegna þess að rannsóknir sýna að barna- fjölskyldur hafa það verst í kreppu. Um leið ýtum við við áragamalli ósk okkar til hinna samtakanna um að við vinnum saman, skiptum með okkur umsækjendahópnum. Þann- ig komum við í veg fyrir að sumir fari á marga staði eftir aðstoð. Þannig getum við sniðið aðstoðina hver að sínum hópi. Allir sem sækja um aðstoð hjá okkur þurfa að koma með gögn um tekjur og útgjöld. Það sem er afgangs ræður því hvort við- komandi fái aðstoð. Þannig fá aðeins þeir verst settu hjálp. Við veitum neyðaraðstoð en ekki viðbót við framfærslu. Fjármálaráðgjöf hefur bæst við hjá okkur. Strax bókaðist í hana. Skjólstæðingum okkar gefst nú líka nýr kostur – ein- staklings- og fjölskylduráðgjöf. Tilboðin byggja á þúsundum viðtala sem ég hef tekið um þörfina. Tekið skal fram að öll önnur aðstoð okkar en mat- araðstoð er ætluð öllum, bæði barnafólk og öðrum, hvar sem er á landinu. Hvað veist þú í alvöru um fátækt á Íslandi? Fylgstu með sjónvarpsþættinum Hjálparstarfið hefur gerst aðili að Evrópusamtökum gegn fátækt og félagslegri einangr- un. Við væntum samstarfs og frjórra hugmyndaskipta um þennan alheimsvanda. Hér á landi hefur vantað góða og upp- lýsta umræðu meðal almenn- ings og ráðamanna. Fimmtu- dagskvöldið 26. maí verður, í opinni dagskrá, þáttur á Stöð 2 með viðtölum við þá sem búa við fátækt á Íslandi og fræði- menn um vandann. Ég skora á þig að fylgjast með. Við verð- um að vita hvernig ástandið er. Svo verðum við að bregðast við – þú og ég, íslenskir sam- borgarar. Ég hef verið gagnrýnd fyrir að segja að margir þurfi aðra aðstoð en að fá matarpoka – þótt enginn lifi án matar. Hjálparstarf Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar vhs spólu í kolaportinu Stöð 2, Stöð 2 Bíó og Stöð 2 Extra kosta aðeins 229 krónur á dag í Stöð 2 Vild. Tryggðu þér áskrift í dag! FYRIR 229 KRÓNUR FÆRÐ ÞÚ: frábæra skemmtun í heilan sólarhring fyrir alla fjölskylduna eða 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.