Fréttablaðið - 01.06.2011, Qupperneq 2
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR2
Laddi, hatar þú strumpa?
„Nei, þeir verða alltaf strumpugóðir.“
Þórhallur Sigurðsson, Laddi, mun ekki
tala fyrir einn einsta strump í nýju
strumpakvikmyndinni sem frumsýnd
verður í sumar. Laddi mun þó ljá Kjartani
galdrakarli rödd sína.
HEILBRIGÐISMÁL Alþjóðleg sérfræð-
inganefnd á vegum Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar, WHO, segir
að farsímar geti hugsanlega verið
krabbameinsvaldandi. Þetta er nið-
urstaða sérfræðinganna eftir að
hafa skoðað á annan tug rannsókna.
Rannsókn þeirra beindist að
tengslum krabbameins við rafseg-
ulbylgjur af þeirri gerð sem finna
má í farsímum, örbylgjuofnum og
ratsjám. Niðurstaða þeirra er ekki
byggð á því að örugglega séu tengsl
milli farsímanotkunar og krabba-
meins, heldur eingöngu á því að
ekki sé hægt að útiloka slík tengsl.
Á síðasta ári var birt rannsókn
sem leiddi ekki í ljós nein tengsl far-
síma og krabbameins. Sú rannsókn
var gagnrýnd fyrir það að byrjað
var á að finna krabbameinssjúk-
linga og þeir spurðir út í farsíma-
notkun sína.
Farsímanotkun er reyndar það
útbreidd að erfitt er fyrir vísinda-
menn að rannsaka tengsl þeirra við
krabbamein með því að bera saman
hópa fólks sem annars vegar notar
farsíma og hins vegar notar þá ekki.
Þróun krabbameins tekur oft
langan tíma, þannig að erfitt er að
rannsaka hvort farsímanotkun geti
haft þar einhver áhrif. Þær rann-
sóknir sem gerðar hafa verið til
þessa ná aðeins til farsímanotkun-
ar fólks áratug aftur í tímann. - gb
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur skoðað tengsl farsíma og krabbameins:
Valda hugsanlega krabbameini
TALAÐ Í GEMSA Sérfræðingarnir vilja
hafa allan varann á þótt ekkert hafi
verið sannað. NORDICPHOTOS/AFP
ÞÝSKALAND, AP Sextán manns hafa
látið lífið í Þýskalandi og fleiri
löndum norðanverðrar Evrópu af
völdum E.coli bakteríunnar, sem
talið var að hafi borist úr gúrkum
frá Spáni.
Rannsókn hefur hins vegar
leitt í ljós að E.coli bakterían, sem
fannst í gúrkunum, er ekki sömu
gerðar og E.coli bakterían sem
valdið hefur dauðsföllunum.
Alls hafa nú 1.150 manns veikst
í átta löndum af völdum bakterí-
unnar, sem er óvenju mannskæð.
Hún ræðst á nýru fólks og hefur
dregið um fimm prósent sýktra til
dauða. - gb
Gúrkurnar sýknaðar af grun:
Ekkert vitað
um uppruna
GÚRKUR Í FRAKKLANDI Gúrkurnar frá
Spáni reyndust ekki banvænar.
NORDICPHOTOS/AFP
AKUREYRI Nýr samningur um með-
ferðarúrræði fyrir unglinga með
hegðunarerfiðleika eða neyslu-
vanda og fjölskyldur þeirra á
Akureyri var undirritaður í gær.
Eiríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri og Bragi Guðbrands-
son, forstjóri Barnaverndarstofu,
samþykktu tveggja ára framleng-
ingu á samstarfi um meðferðar-
úrræði fyrir unglingana.
Þegar hafa átján fjölskyldur
fengið meðferð á grundvelli samn-
ingsins. Boðið hefur verið upp á
þessi meðferðarúrræði í sam-
vinnu við Barnaverndarstofu frá
árinu 2009. - sv
Meðferð fyrir ungt fólk :
Áframhaldandi
starf samþykkt
RÚSSLAND, AP Rustam Makhmudov,
maðurinn sem grunaður er um
að hafa árið 2006 myrt rúss-
nesku blaða-
konuna Önnu
Politkovsköju,
var handtekinn
í Téténíu í gær.
Rússnesk
stjórnvöld hafa
þó ekki látið
neitt uppi um
það, hver gæti
hugsanlega
hafa fengið
hann til að
fremja þetta morð.
Makhmudov hafði verið í
felum í Belgíu, en fór þaðan til
ættingja sinna í Téténíu eftir
að hringurinn um hann tók að
þrengjast þar.
Þrír menn, þar á meðal tveir
bræður Makhmudovs, voru
handteknir fyrir aðild að morð-
inu. Þeir voru sýknaðir árið
2009 en hæstiréttur hefur ógilt
þann úrskurð og sent málið
aftur til saksóknara. - gb
Morðið á Politkovsköju:
Hinn grunaði
handtekinn
ANNA POLITKOV-
SKAJA
LÖGREGLUMÁL Sérstakur saksóknari
gerði í gær húsleit í höfuðstöðv-
um tryggingafélagsins VÍS og
hjá Existu vegna gruns um ólög-
mætar lánveitingar sem nema
milljörðum króna.
Fjórir voru handteknir í gær-
morgun vegna rannsóknar máls-
ins; Guðmundur Örn Gunnarsson,
fyrrverandi forstjóri VÍS, Lýður
Guðmundsson, fyrrverandi eig-
andi og stjórnarformaður Existu,
aðaleiganda VÍS, Erlendur Hjalta-
son, fyrrverandi forstjóri Existu,
og Bjarni Brynjólfsson, fram-
kvæmdastjóri eigin viðskipta
Existu.
Fjórmenningarnir voru yfir-
heyrðir fram eftir degi og þeim
síðustu ekki sleppt fyrr en á
tíunda tímanum í gær-
kvöldi.
Fleiri voru
b o ð a ð i r t i l
skýrslutöku
vegna málsins í
gær, ýmist sem
sakborningar
eða vitni, að sögn
Ólafs Þórs Hauks-
sonar, sérstaks
saksóknara.
Til rannsóknar er
„fjöldi lánveitinga til
ýmissa félaga og
aðila,“ að því er
segir í tilkynn-
ingu frá sér-
stökum sak-
sóknara.
Stöð 2 hefur
sagt frá því
að Fjármála-
eftirlitið
hafi látið
endurskoðunarskrifstofuna Grant
Thornton vinna skýrslu um starf-
semi VÍS þar sem fram koma
margháttaðar athugasemdir við
lánastarfsemina. VÍS hafi lánað
Existu og tengdum félögum stórfé,
og jafnframt einstaklingum sem
tengjast Existu, til dæmis Sigurði
Einarssyni, stjórnarformanni
Kaupþings, sem var að stórum
hluta í eigu Existu.
Fjármálaeftirlitið kærði málið í
kjölfarið til sérstaks saksóknara.
Guðmundur Örn Gunnarsson lét
af störfum sem forstjóri VÍS í síð-
ustu viku eftir að Fjármálaeftir-
litið komst að þeirri niðurstöðu að
vegna aðkomu forstjórans að lán-
veitingum væri rétt að hann viki.
Lánin eru talin varða við hegn-
ingarlagaákvæði um umboðs-
svik, það er að með þeim hafi þeir
sem þau ákváðu valdið hluthöf-
um VÍS tjóni. Ekki er útilokað að
fleiri ákvæði auðgunarbrotakafla
hegningarlaga komi jafnframt til
skoðunar.
Aðgerðirnar í gær voru viða-
miklar og tóku um þrjátíu starfs-
menn embættisins þátt í þeim, auk
liðsinnis frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Búist er við að fleiri verði kall-
aðir í skýrslutöku vegna málsins á
næstu dögum.
Sérstakur saksóknari hefur
fleiri mál til rannsóknar sem
varða eignarhaldsfélagið Existu
og hefur áður tekið skýrslur af
Lýði Guðmundssyni og Erlendi
Hjaltasyni vegna þeirra.
stigur@frettabladid.is
Handteknir vegna
milljarðalána VÍS
Sérstakur saksóknari handtók fjóra menn í gærmorgun og gerði húsleit hjá VÍS
og Existu vegna rannsóknar á fjölda vafasamra lánveitinga upp á nokkra millj-
arða. Lánin voru einkum veitt móðurfélaginu Existu og fleiri tengdum aðilum.
GUÐMUNDUR ÖRN
GUNNARSSON
STJÓRNMÁL Stjórnarþingmenn
óttast að sjálfstæðismenn ætli
að beita málþófi til að koma í
veg fyrir að minna kvótafrum-
varp ríkisstjórnarinnar verði að
lögum. Frá þessu greindi frétta-
stofa Stöðvar 2 í gærkvöldi.
Forseti Alþingis hyggst funda
með þingflokksformönnum í dag
vegna málsins.
Umræða um frumvarpið stóð
til miðnættis á mánudag og var
ekki lokið þegar Fréttablaðið fór
í prentun í gærkvöldi. Þá voru
enn 11 þingmenn á mælenda-
skrá, allt stjórnarandstæðingar
utan tveir.
- mþl
Rætt um kvótafrumvarpið:
Stjórnarliðar
óttast málþóf
LÝÐUR
GUÐMUNDSSON
ERLENDUR
HJALTASON
SPURNING DAGSINS
2000 FLUGSÆTI Á ÓTRÚLEGU VERÐI
Tilboðin á Hópkaup gilda
aðeins í 24 tíma.
Ekki bíða - kíktu á hópkaup.is
HÓPKAUP.IS Í DAG
í krafti fjöldans
hópkaup.is
14.900 kr.
OSLÓ
14.900 kr.
EDINBORG
ÞJÓÐKIRKJAN Efnt verður til kirkjuþings 14. júní
næstkomandi vegna skýrslu rannsóknarnefndar
þjóðkirkjunnar sem skilar niðurstöðum sínum í
næstu viku.
Í tilkynningu frá forsætisnefnd kirkjuþings segir
að tekið verði við skýrslu rannsóknarnefndar um
morguninn 10. júní næstkomandi og fjórum dögum
síðar mun þingið taka málið til umfjöllunar.
„Kirkjuþing samþykkti einum rómi í nóvember
á liðnu ári að setja á laggirnar rannsóknarnefnd til
að kanna starfshætti og viðbrögð þjóðkirkjunnar
vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um
kynferðisbrot,“ segir í tilkynningunni. „Kirkjuþing
taldi einboðið að hreinsa þyrfti andrúmsloftið og
leggja mat á hvort um mistök, vanrækslu eða vísvit-
andi þöggun hefði verið að ræða af hálfu kirkjunnar
þegar þessar alvarlegu ásakanir voru komnar fram
og hverjir kynnu að bera ábyrgð á því.“
Nefndin sendi út andmælabréf fyrr í mánuðinum
til þeirra sem hún taldi að hefðu gerst sekir um eitt-
hvert af ofangreindum atriðum. Karl Sigurbjörns-
son biskup var þeirra á meðal, en ekki liggur fyrir
hversu mörg bréf voru send út. Frestur til svara er
nú útrunninn. - sv
Efnt til kirkjuþings 4. júní vegna skýrslu rannsóknarnefndar Þjóðkirkjunnar:
Sannleiksnefnd skilar í næstu viku
ÓLAFUR SKÚLASON BISKUP Rannsóknarnefnd þjóðkirkjunnar
hefur nú skoðað viðbrögð kirkjunnar vegna ásakana á hendur
fyrrverandi biskupi. FRÉTTABLAÐIÐ/BRYNJAR GAUTI
DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt íslenska ríkið
til að greiða karlmanni rúmlega
23 milljónir króna í skaðabæt-
ur vegna mistaka sem urðu í
meðhöndlun hans á Landspítala
háskólasjúkrahúsi.
Maðurinn varð fyrir líkams-
tjóni í kjölfar bráðakransæða-
stíflu sem starfsfólki Landspítal-
ans hafði yfirsést fyrir mistök
að greina og veita meðferð við
í tæka tíð. Þetta átti sér stað í
febrúar 2003 þegar maðurinn var
37 ára. - jss
Röng sjúkdómsgreining:
Fær 23 milljónir
vegna mistaka