Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 12
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR12 EFNAHAGSMÁL Þingmenn Fram- sóknarflokksins lögðu nýverið fram ýtarlegar tillögur til átaks í atvinnumálum á Alþingi. Til- lögurnar eru 46 talsins, og áætla þingmennirnir að verði þær að veruleika gæti störfum fjölgað um tólf þúsund á næstu árum. Í tillögunum, sem unnar voru af atvinnumálanefnd Framsóknar, er meðal annars lagt til að skulda- meðferð lítilla og meðalstórra fyrirtækja sem talin eru rekstr- arhæf fari fram með gegnsæjum hætti og ljúki sem fyrst. Framsóknarmenn vilja einnig endurskoða skattaumhverfi atvinnulífsins til að tryggja sam- keppnishæfi landsins. Lagt er til að ríkið leggi í kynn- ingarátak til að efla ferðaþjón- ustuna allt árið. Til þess verði varið 350 milljónum króna gegn því að fyrirtæki í ferðaþjónustu leggi fram aðra eins upphæð. Þá er lagt til að endurgreiðslur til kvikmyndagerðar verði hækk- aðar, sparisjóðir verði endurskipu- lagðir, loðdýrarækt verði tryggt samkeppnishæft umhverfi og skattaumhverfi vegna olíuleitar í landhelginni verði bætt. - bj Þingmenn Framsóknarflokksins leggja fram 46 tillögur til átaks í atvinnumálum: Störfum gæti fjölgað um 12 þúsund TILLÖGUR Birkir Jón Jónsson, varafor- maður Framsóknarflokksins, var for- maður atvinnumálanefndar Framsóknar, sem kom fram með tillögurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KJARNORKUVERI BREYTT Í TÍVOLÍ Gamalt kjarnorkuver í Kalkar í Þýska- landi, skammt frá landamærum Hollands, er nú notað sem skemmti- garður. NORDICPHOTOS/AFP HAÍTÍ, AP Líklega hafa mun færri látist í jarðskjálftanum á Haítí í upphafi síðasta árs en opinberar tölur segja til um. Þetta er niður- staða skýrslu sem unnin var fyrir Þróunarstofnun Bandaríkjanna, USAID. Skýrslan hefur ekki verið birt enn þar sem lokafrágangur stendur yfir. Í niðurstöðum skýrslunnar, sem fréttaveitan AP hefur undir hönd- um, segir að líklega hafi á milli 46 þúsund og 85 þúsund manns látist í jarðskjálftanum, sem er víðs fjarri þeim 316 þúsund sem stjórnvöld á Haítí segja að hafi látist. Þá segir í skýrslunni að 895 þús- und manns hafi flúið heimili sín og 375 þúsund búi enn í bráðabirgða- skýlum á meðan opinberar tölur segja að 1,5 milljónir manna hafi flúið að heiman og 680 þúsund séu enn á vergangi. Þetta þykir skipta miklu máli þar sem Haítí fékk tugmilljarða í framlög frá stofnunum og öðrum löndum til uppbyggingarstarfs á grundvelli þess fjölda sem lést eða þeirra sem þurfa hjálp sökum hamfaranna. Stjórnvöld í Haítí sögðust ekki hafa séð skýrsluna og gátu því ekki tjáð sig um efni hennar. Talsmaður Jean-Max Bellerive, fyrrum forsætisráðherra, sagði hins vegar í samtali við AP að skýrslan væri ófullkomin og rétt tala látinna væri sennilega mun nær opinberum tölum. - þj Skýrsla Þróunarstofnunar Bandaríkjanna um afleiðingar jarðskjálftans á Haítí: Segja færri látna en áður var talið EYMD Þrátt fyrir að enginn efist um að mikil eymd sé á Haítí, eru skiptar skoðanir um hversu margir létu þar lífið í skjálftanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP EVRÓPUMÁL Útflutningur írska hagkerfisins eykst um sjö prósent árið 2011, samkvæmt útreikning- um írska þjóðarbankans í skýrslu um erlendar fjárfestingar. Þá er meðtalin útseld þjónusta. Blaðið Irish Times segir þetta líkt frammistöðunni 2010, þegar vöruútflutningur jókst um sjö prósent en þjónusta til erlendra um tíu prósent. Laun hafa lækkað á Írlandi og samkeppnishæfni landsins aukist. Bein erlend fjárfesting jókst um átján prósent í fyrra. - kóþ Efnahagsmál Íra ekki alsvört: Útflutningur eykst frá Írlandi SAMGÖNGUR Sýslumaðurinn í Kópavogi setti lögbann á þjónustu fyrirtækið Kynnisferðir í gær. Bannið gerir það að verkum að fyrirtækið má hvorki auglýsa né aka áætlunarferðir á sérleyfis- leiðum Bíla og fólks ehf., sem sér um sérleyfisakstur um Suður- landið undir nafninu Sterna. Forsvarsmenn Bíla og fólks fóru fram á það við sýslumann að bannið yrði sett á og var það sam- þykkt. Kynnisferðir mótmæltu banninu á grundvelli þess að þjónusta fyrirtækisins sé annars eðlis en þess fyrrnefnda. Ekki var fallist á þau rök. - sv Lögbann sett á Kynnisferðir: Beiðni Bíla og fólks samþykkt ÁRÓSAR Borgaryfirvöld í Árósum í Danmörku hafa þurft að skipta um lása í um 250 stofnunum í borginni með kostnaði sem hleypur á millj- ónum. Þjófar komust yfir lykla og lykilnúmer, merkt viðeigandi stofnunum, í innbroti á skrifstofur hreingerningafyrirtækis. Strax fór að bera á innbrotum í stofnanir, en nú hefur verið lagt í úrbætur. Fyrirtækið hefur beðist afsökunar og ræðir nú við borgar- yfirvöld um skaðabætur. - þj Vandræði í Árósum: Lyklaþjófar ollu milljónatjóni LYKLAMÁL Borgaryfirvöld í Árósum hafa skipt um læsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞORGILS ZÜRICH, AP Aðalþing alþjóðaknattspyrnusam- bandsins, FIFA, var sett í gær í skugga hneykslis- mála sem komið hafa upp síðustu vikur. Í opnunarræðu sinni sagði Sepp Blatter, for- seti FIFA, uppljóstranirnar um mútuþægni æðstu embættismanna skekja stoðir sambands- ins. „Ég hélt að fótboltaheimurinn einkenndist af prúðmennsku, virðingu og aga en því miður hef ég séð að svo er ekki lengur,“ sagði Blatter, sem gegnt hefur stöðu forseta frá árinu 1998. Forsetakjör FIFA fer fram í dag en Blatter er einn í framboði eftir að Mohammed bin Hammam, forseti Knattspyrnusambands Asíu, dró framboð sitt til baka á sunnudag í kjölfar ásakana um mútur. Knattspyrnusambönd Eng- lands og Skotlands hafa síðan sagt kosningarn- ar skorta trúverðugleika og kallað eftir því að þeim verði frestað þar til óháð rannsóknarnefnd hafi kannað málið til hlítar. Bin Hammam, sem hefur átt sæti í aðalstjórn FIFA, hefur verið vikið úr stjórninni tímabundið ásamt öðrum stjórnarmanni vegna ásakana um að FIFA-fulltrúum frá Karíbahafsríkjum hafi verið greiddar umtalsverðar fjárhæðir fyrir stuðning við forsetaframboð bin Hammams. Hafa ásakanirnar á hendur bin Hammam, sem er frá Katar, einnig vakið spurningar um kosningarnar sem fram fóru í desember um keppnisstaði heimsmeistaramótanna 2018 og 2022. Niðurstaða þeirra kosninga var sú að Rússland hlaut mótið 2018 og Katar 2022. Þann- ig hefur komið upp á yfirborðið tölvupóstur sem Jerome Valcke, aðalritari FIFA, skrifaði þar sem hann segir bin Hammam hafa áformað að kaupa forsetastólinn rétt eins og „þeir“ keyptu heimsmeistaramótið. Valcke hefur síðan neitað því að hann hafi verið að vísa til mútanna, og að sama skapi hafa talsmenn framboðs Katar harðneitað því að hafa brotið af sér. Áður hafa komið upp ásakanir um að tveimur afrískum FIFA-fulltrúum hafi verið grett fyrir að kjósa Katar. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem upp hafa komið hneykslismál hjá FIFA í forsetatíð Sepps Blatter. Hann hefur alla tíð verið umdeildur og raunar verið kallaður teflon-maðurinn af augljósum ástæðum. Í þetta skiptið beinast ásakanirnar þó ekki að honum, en Blatter var næstum hrakinn úr embætti árið 2002 þegar lá við gjaldþroti FIFA í kjölfar þess að markaðsfyrirtækið ILS fór á hausinn. Engu minna fjaðrafok var í kringum forseta- kjörið 1998 þegar Blatter bar sigurorð af Sví- anum Lennart Johansson, þáverandi forseta Knattspyrnusambands Evrópu. Flugu ásakanir um mútur og baktjaldamakk á báða bóga. magnusl@frettabladid.is Mútur og baktjaldamakk í knattspyrnuhreyfingunni Mikill fjölmiðlasirkus er í kringum aðalþing FIFA, alþjóðaknattspyrnusambandsins, sem sett var í Zürich í gær. Hafa komið upp vísbendingar um mútuþægni og baktjaldamakk meðal æðstu embættismanna FIFA í aðdraganda þess. Í þetta skiptið beinast spjótin þó ekki að hinum umdeilda forseta Sepp Blatter. FRÁ ÞINGINU Sepp Blatter þótti ólíkur sjálfum sér við setningu FIFA-þingsins í gær. Blatter lætur sér sjaldan bregða þótt fjölmiðlamenn þjarmi að honum en æsti sig í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP KSÍ fylgir Evrópuþjóðunum að málum Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, situr aðalþing FIFA fyrir hönd Íslands. Vísir hafði samband við Geir í gær og spurði hann um afstöðu KSÍ til forsetakjörsins. Englendingar og fleiri þjóðir hafa sagst ætla að sitja hjá í kosningunni og kallað eftir óháðri rannsóknarnefnd. Geir segir KSÍ ekki ætla að fylgja fordæmi þeirra. „Evrópuþjóðirnar hafa hist og við fylgjum foringja vorum, Platini, og framkvæmdastjórn UEFA eins og staðan er núna,“ sagði Geir og bætti við: „Við höfum sest niður með Norður- landaþjóðunum og þar vilja allir gjarnan fá niðurstöðu í þessi mál. Það þarf að leiða fram hvað er satt og rétt.“ Spurður hvort KSÍ væri að leggja blessun sína yfir spillinguna með því að kjósa Blatter sagði Geir: „Við höfum stutt Blatter áður og vorum búnir að taka ákvörðun um að styðja hann í þessu kjöri. Það er bara hægt að styðja þá sem eru í framboði. Maður veltur því líka fyrir sér af hverju þeir bjóða sig ekki fram sem vilja stuðla að framgangi annarra mála.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.