Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 40
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR28 28
menning@frettabladid.is
Álfar og huldufólk, sumar-
sýning Minjasafns Akureyrar,
verður opnuð í dag.
Sýningin samanstendur af
útskurðarverkum listakon-
unnar Ingibjargar H. Ágústs-
dóttur sem tengjast gripum
og sögum af huldufólki og
samskiptum þeirra við menn,
gripa úr hulduheimum sem
varðveittir hafa verið í Þjóð-
minjasafni Íslands ásamt grip-
um í einkaeign. Við þetta bæt-
ist fróðleikur um þjóðtrúna
sem tengd er álfum og huldu-
fólki og gefur gestum safnsins
góða innsýn inn í hulduheima.
Eiríkur Björn Björgvinsson
bæjarstjóri opnar sýninguna
klukkan 17.
Álfasýning
á Akureyri
VIÐ ÁLFAKLETT Ingibjörg H. Ágústs-
dóttir skar út verkin á sýningunni.
Núið og hverfulleiki andar-
taksins eru inntak bók-
verksins Júní eftir Hörpu
Árnadóttur myndlistar-
mann, sem kemur út í dag.
Bókin er nátengd sýning-
unni Mýraljós en báðar
byggja þær á eins konar
dagbókarbrotum Hörpu frá
dvöl hennar á Bæ á Höfða-
strönd í fyrrasumar.
„Það var ekki meiningin í upp-
hafi að þetta yrði bókverk. En
þegar uppi var staðið hafði svo
mikið efni raðast upp á vinnu-
stofuvegginn hjá mér, með frek-
ar línulegri frásögn og eitt leiddi
af öðru,“ segir Harpa Árnadóttir
myndlistamaður um tilurð bókar-
innar Júní sem kemur út í dag á
vegum Crymogeu.
Bókin samanstendur af texta-
brotum og myndum, texti sem oft
er í raun mynd og unnin er upp
úr eins konar dagbókarfærslum
Hörpu þegar hún dvaldi á Bæ á
Höfðaströnd í Skagafirði í boði
Steinunnar Jónsdóttur fyrir
ári síðan. Útgáfa bókarinnar er
nátengd sýningunni Mýrarljósi
í Listasafni ASÍ, sem er hluti af
Listahátíð í Reykjavík og byggir
á sömu vinnubókum.
„Þetta eru persónulegar og
hversdagslegar hugleiðingar
sem endurspegla augnablik sem
ég upplifði og minningar sem
streyma fram. Svona eins og
að hugsa beint á blöðin. Það má
kannski segja að þetta sé tilraun
til að fanga andblæ sumarsins,
ilm, birtu og veðrabrigði, að lýsa
hverfandi andrá; hvernig maður
upplifir augnablikið og rennur
saman við það. Þetta snýst um
að lifa í núinu og að njóta þess.“
Mikil vinna var lögð í hönn-
un og frágang bókarinnar, sem
líkist innbundu safni nýgerðra
vatnslitamynda og textablaða
sem smeygt hefur verið inn í
möppu. Um hönnun sáu Hildi-
gunnur Gunnarsdóttir og Snæ-
fríð Þorsteins sem unnið hafa að
unnið að fleiri bókum Crymogeu,
þar á meðal hina víðfrægu Flora
Islandica eftir Eggert Péturs-
son. Í tilefni útgáfunnar verð-
ur efnir Crymogea til móttöku í
Listasafni ASÍ milli klukkan 17
og 19 í dag.
bergsteinn@frettabladid.is
Að fanga hverfandi andrá
HARPA ÁRNADÓTTIR
Harpa Árnadóttir er fædd árið 1965 á Bíldudal í Arnarfirði. Eftir háskólanám
í sagnfræði og bókmenntum fór hún í Myndlista- og handíðaskóla Íslands
og lauk framhaldsnámi við Listaháskólann í Valand, Gautaborg. Harpa hefur
sýnt víða og eru verk hennar í eigu ýmissa opinberra safna og einkasafnara
á Íslandi og í Svíþjóð. Hún hefur hlotið verðlaun fyrir teikningar hjá Þjóð-
listasafni Svíþjóðar.
HARPA ÁRNADÓTTIR Júní er sambland af textabrotum og vatnslitamyndum sem
endurspegla ákveðin augnablik sem Harpa upplifði á Höfðaströnd í Skagafirði í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Leikhús ★★★
Rebbasögur
Listahátíð í Reykjavík
Höfundur og leikstjóri: Jean-Luc Penso Brúðustjórnun: Jean-Luc
Penso og Erika Capello Raddir: Þór Tulinius og Vigdís Gunnarsdóttir
Íslensk þýðing: Friðrik Rafnsson Söngtextaþýðing: Sölvi Björn
Sigurðsson Tæknimaður: David Dubois. Rebbasögur í Tjarnarbíói. Le
roman de Renart, Leikhús litla spegilsins.
Skuggaleikhús í Tjarnarbíói
Refurinn Renart beitir öllum klækjum sem hann getur til þess að stríða
hinum dýrunum; sérstaklega tekur hann úlfinn Ysengrin og fjölskyldu hans
fyrir. Svona hrekkjusvínasögur eru víða þekktar. Hér birtust þær í kínverskri
skuggaleikhúshefð, þó leikhúsið sjálft væri franskt. Þetta var sýning ætluð
alyngstu áhorfend-
unum enda voru
þeir óþreyjufullir
og margir á þessari
sýningu.
Hér var flókin
saga sögð með
líklega alltof
mörgum orðum.
Vigdís Gunnarsdóttir
og Þór Tulinius
töluðu fyrir dýrin.
Betur hefði farið
á því að rebbinn
hefði haft karl-
mannsrödd. Þetta
var engu að síður
mikið sjónarspil og gaman að sjá þessa gömlu hefð í fullu fjöri. Skuggar og
litir. Leikið á þremur tjöldum sem voru kannski í minnsta lagi fyrir einmitt
þennan sal. Tónlistin og hljóðin voru skemmtileg.
Rebbasaga var frumsýnd í Taílandi árið 1993 og hefur ferðast um allar
koppagrundir síðan; um Indónesíu, Kína, Frakkland og víðar. Sýningin er
samstarfsverkefni Listahátíðar, franska sendiráðsins og Alliance française.
Höfundurinn og leikstjórinn Jean-Luc Penso lærði þessa tækni af Kínverjum
og stofnaði Leikhús litla spegilsins 1978.
Það er svolítið erfitt að átta sig á brúðunum úr salnum en þær eru allar
búnar til úr nautshúðum og þær festar á þunnar stangir sem nema við
útlimi brúðunnar þannig að hver fígúra getur fett sig og brett bæði aftur-
ábak og áfram. Sérstaklega skemmtilegt þegar þrír litlir pollar dönsuðu
einhvers konar breikdans í dýraheimi.
Salurinn var nú heldur farinn að ókyrrast þegar á leið enda sýningin full
löng og hefði mátt þétta söguna betur og gera persónu rebbans skýrari.
Það sem var þó eftirminnilegast að sögn lítillar persónu sem leikinn sá, var
þegar rebbinn datt oran í brunninn djúpa og þegar hann gabbaði hinn til
þess að hjálpa sér. Það að fingur stjórnandans sést er hluti af töfrum þessa
leikhúsforms.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Haganlega gerð leiksýning fyrir yngstu kynslóðina en helst til
löng.
JÓN INGI SÝNIR Í EDEN Jón Ingi Sigurmundsson hefur opnað málverkasýningu í Eden í Hveragerði. Jón Ingi hlaut nýlega menningar-
viðurkenningu Árborgar 2011 á hátíðatónleikum í tilefni hátíðarinnar Vor í Árborg, þar sem Kjartan Björnsson,formaður menningarnefndar, og
Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs, afhentu Jóni Inga viðurkenninguna. Sýningu Jóns Inga í Eden lýkur 13. júní (annan í hvítasunnu).
Óttar M. Norðfjörð gerir viðreist
þessi dægrin. Óttar var staddur á
einni stærstu bókahátíð Spánar um
helgina, Fería del Libro, í Madríd.
Tilefnið var útgáfa bókarinnar Sól-
kross, sem kom út þar í landi á dög-
unum undir heitinu La Cruz Solar.
Að sögn Tómasar Hermanns-
sonar, útgefanda hjá Sögum, vakti
Óttar nokkra athygli á bókahátíð-
inni. „Spánverjar eru spenntir fyrir
bókinni; henni er vandlega stillt
upp í bókabúðum og það myndaðist
röð við básinn hans á hátíðinni þar
sem hann áritaði bókina.“
Þá hafa stærstu fréttaveitur
Spánar rætt við Óttar, til dæmis
dagblaðið El Mundo og Radio
Nacional. Sólkross er spennu-
saga með sögulegu ívafi og kom
út á Íslandi 2008 og er væntanleg
í Þýskalandi í júlí. Nýjasta bók
Óttars, Áttblaðarósin, kom út fyrir
síðustu jól. - bs
Sólkross kemur út á
spænsku og þýsku
ÓTTAR NORÐFJÖRÐ Sólkross er komin út á Spáni og kemur út á þýsku í sumar.
Miðvikudaginn
1. júní kl. 20.00
Kajsa Ingimarson á
höfundakvöldi
í Norræna húsinuÞórdís Gísladóttir, þýðandi, ræðir við Kajsu um verk hennar.Léttar veitingar í boði.
Aðgangur ókeypis og allir
velkomnir.
NORRÆNA
HÚSIÐ KYNNIR:
HÖFUNDA-
KVÖLD #5
„Bækur eru saklausir hlutir, en rithöfundar eru ægilegar verur“.Þórbergur Þórðarson, Mitt rómantíska æði.
Sturlugata 5 101 Reykjavík S. 5517030 nh@nordice.is www.norraenahusid.is