Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 42
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR30 Tónlist ★★★★ MINØR/PIONÉR Flutt í Hörpu Tónlist eftir: Högna Egilsson, Davíð Þór Jónsson og President Bongó. Textar eftir: Atla Bollason. Fram komu: Karlakórinn Fóst- bræður kom fram undir stjórn Árna Hraðarsonar. Lýsing: Páll S. Ragnarsson. Tónskáldið Alexander Skrjabín skynjaði tónlist í litum. Hann dreymdi um tónleika þar sem áheyrendur myndu ekki aðeins heyra tónlist, heldur sjá hana líka sem hafsjó af litum. Tæknin í þá daga var auðvitað takmörkuð (Skrjabín lést árið 1915), en þetta er hægðarleikur í dag. Í einum af sölum Hörpu, Norðurljósum, eru veggirnir t.d. hálfgegnsæir, og þeir geta skipt litum. Gaman væri að hafa tónleika þar með tónlist eftir Skrjabín. Á laugardagskvöldið voru í Norðurljósum tónleikar með verkum eftir Högna Egilsson (úr Hjaltalín), píanóleikarann Davíð Þór Jónsson og hljóðstjórann President Bongó. Ljósatæknin var nýtt til fulls á tónleikunum. Veggirnir breyttu um lit eftir stemningu tónlistarinnar hverju sinni. Það var mögnuð upplifun. Litadýrðin gaf tónlistinni alveg nýja vídd. Auðvitað skipti það máli hvernig tónlistin hljómaði. Og hún var yfirleitt stórskemmtileg, auk þess sem hljómburðurinn var flottur. Framvindan í hverju lagi var í sjálfu sér ekki mikil, en andrúmsloftið var grípandi. Ein- faldar, mjög djúpar bassahend- ingar voru áberandi, bæði leikn- ar á píanó og úr tölvu. Yfir öllu svifu alls konar safaríkir píanó- hljómar. Högni söng – hann er með fallega rödd. Það var rík tilfinn- ing í öllu sem hann gerði, ein- lægni og fegurð. Karlakórinn Fóstbræður kom líka fram undir stjórn Árna Harðarsonar. Hugsanlega hefði hlutverk hans mátt vera veiga- meira. Hann var allur á rólegu nótunum, söng veikt og þægi- lega, sjaldnast meira en það. Hér hefði breiddin í tónlistinni mátt vera meiri. Fjölbreytnin var ríkulegri í hinu sjónræna. Á sviðinu var ekki bara flygill, heldur einnig gamall píanógarmur. Í kringum hann var hrúga af járnarusli; bárujárn og ryðguð púströr. Á tímapunkti rótaði Davíð í hrúg- unni, og hávaðinn bergmálaði í hljóðkerfi salarins og varð hluti af tónlistinni. Undir lok tón- leikanna réðst Högni svo á píanó- ið með sleggju og barði hljóm- borðið í klessu. Oft hefur mann langað til að gera það, he he! Niðurlæging píanósins var full- komnuð í lok tónleikanna, en þá var píanóið híft upp í loft og skil- ið þar eftir dinglandi. Gaman hefði verið að sjá það detta aftur á sviðið, með tilheyrandi braki og brestum. En sjálfsagt hefur ekki fengist leyfi fyrir því! Einstaka atriði var heldur lang- dregið, eins og t.d. þegar bókstaf- urinn A var búinn til úr járna- ruslinu (sem væntanlega vísaði til afmælis Amnesty Internation- al þann dag). Það tók óþarflega langan tíma, sem gerði tónlistina heldur endurtekningarsama. En í það heila voru tónleikarnir frum- legir og spennandi, og maður gekk glaður út að þeim loknum. Jónas Sen Niðurstaða: Athyglisverðir tónleikar með fallegri tónlist. Lýsingin var frábær. PÍANÓIÐ DREPIÐ Högni söng – hann er með fallega rödd. Það var rík tilfinning í öllu sem hann gerði, einlægni og fegurð. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Miðvikudagur 1. júní ➜ Tónleikar 12.00 Jóhann Friðgeir Valdimarsson tenór og Antonía Hevesi píanó- leikari koma fram á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag. Tónleikarnir hefjast kl. 12. 12.30 Lokatónleikar skólaárs HÍ fara fram í dag kl. 12.30. Svíta nr. 1 fyrir flautu og jasspíanótríó eftir Claude Bolling verður leikin. Tónleikarnir fara fram í Hátíðasal Aðalbyggingar HÍ. Aðgangur ókeypis. Allir velkomnir. 23.00 Hljómsveitirnar Agent Fresco, Benny Crespo’s Gang, Valdimar og Andvari koma allar fram á Sódóma í kvöld. Húsið opnar kl. 22 og hefjast tón- leikarnir kl. 23. Aðgangseyrir kr. 1000. ➜ Opnanir 17.00 Minjasafnið á Akureyri opnar sýninguna Álfar og huldufólk í dag kl. 17. Sýningin samanstendur af útskurðarverkum listakonunnar Ingibjargar H. Ágústsdóttur. Áshildur Haraldsdóttir, Einar Scheving, Neal Kirkwood og Richard Korn leika svítu nr. 1 fyrir flautu og jasspíanótríó eftir Claude Bolling á síðustu hádeg- istónleikum skólaársins í Háskóla Íslands í dag. Tónleikarnir verða haldnir í Hátíðasal Aðalbyggingar og hefjast klukkan 12.30. Aðgangur er ókeypis. DJASSSVÍTA Í HÍ JBK Ransu spjallar við gesti og segir þeim frá verkum sínum á sýningunni Abstrakt klukkan 20 í kvöld. Abstrakt er samsýning þeirra Jóns og Guðrúnar Bergsdóttur í samstarfi við listahátíðina List án landamæra, sem hefur það að markmiði að koma list fólks með fötlun á framfæri og að koma á samstarfi milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks. Ransu er þekktur fyrir sterk abstrakt málverk en Guðrún saum- ar út undraverðar myndir þar sem flæða saman litir og form. Hlið við hlið á veggnum mætast verk þeirra í heimi lita og forma. JBK Ransu ræðir Abstrakt Vigdís Jakobsdóttir leikstjóri var kjörin í yfirstjórn alþjóðlegu leiklistarsamtakanna ASSITEJ á heimsþingi samtakanna sem haldið var 23. til 26. maí í Kaup- mannahöfn og Malmö. Ísland hefu r ver ið félagi í sam- tökunum síðan 1990 en þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur fulltrúi á sæti í yfirstjórninni. ASSITEJ eru alþjóðleg sam- tök um barna- og unglingaleikhús. Um er að ræða regnhlífarsamtök yfir landsskrifstofum í meira ein áttatíu löndum um allan heim og að þeim koma þúsundir leikhúsa, stofnana og fagfólks í leikhúsi. Samhliða heimsþinginu var boðið upp á stóra alþjóðlega leik- listarhátíð í borgunum tveimur, þar sem boðið var upp á tugi leik- sýninga frá öllum heimshlutum. Sýning Þjóðleikhússins á Sindra silfurfiski var fulltrúi Íslands á hátíðinni. - bs Vigdís kjörin í yfirstjórn ASSITEJ VIGDÍS JAKOBSDÓTTIR Samkeppnin er opin öllum og eru verðlaunin fyrir 1. sætið að verðmæti 1.000.000 króna. Nánar auglýst síðar. HÖNNUNAR SAMKEPPNI Árið 2008 gjörbyltum við hjá Icelandair matseðlinum í vélum okkar Núna er komið að upplifun, útliti og umbúðum Icelandair óskar, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands, eftir hönnun á nýjum matarumbúðum fyrir Icelandair. Skiladagur er 15. september 2011. Úrslit samkeppninnar verða tilkynnt fimmtudaginn 29. september 2011. Kynningarfundur verður haldinn 9. júní kl. 15:00–18:00 á Keflavíkurflugvelli. Rútur fara frá Hótel Loftleiðum kl. 15:00. Skráning á kynningu fer fram á info@honnunarmidstod.is. ÍS L E N S K A S IA .I S I C E 5 52 26 0 6/ 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.