Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 31
H A U S MARKAÐURINN Ú T T E K T 5MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 2011 Bandaríski háskólaprófessorinn Michael Porter hefur um árabil talað fyrir mikilvægi klasastarfs. Hann skilgreinir klasa sem land- fræðilega þyrpingu tengdra fyrir- tækja, birgja, þjónustuaðila, fyrir- tækja í tengdum atvinnugreinum og stofnana sem starfi á sérhæfð- um sviðum og vinni bæði saman auk þess að eiga í samkeppni. Þeir sem rannsakað hafa klasa- myndun segja hana hafa jákvæð áhrif á samkeppnishæfni, mótun þekkingar og geta skapað verð- mæti. Porter sagði í erindi sem hann hélt í Háskólabíói í fyrravetur að eigi klasinn að virka þurfi reglu- verk hans að vera í lagi, framtíðar- sýn og skipulag að vera skýrt auk þess sem markmiðin þurfi að vera augljós. Hver er þessi klasi? MICHAEL PORTER Bandaríski fræðimaðurinn ræddi um þau tækifæri sem geta falist í auðlindum jarðvarmans hér í Háskólabíói í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Fyrstu niðurstöður rannsókna á sjávarklasanum benda til að allt að sjö hundruð fyrirtæki eiga teljandi hluta undir í viðskipt- um við sjávarútvegsfyrirtækin. Rannsókninni er hvergi nærri lokið og breytist því hlutfallið í samræmi við það sem myndin af sjávarklasanum verður gleggri. Taflan hér sýnir hvaða atvinnu- greinar það eru sem eiga mest undir í viðskiptum sínum við sjávarútvegsfyrirtækin. Að sama skapi telja forsvars- menn sjávarútvegsins að þessi fyrirtæki geti fundið fljótlega fyrir afleiðingunum ef afkoma greinarinnar breyttist hvort sem væri til hins betra eða hins verra. Margir eiga sitt undir sjávarútveginum Grein Hlutur Málmsmíði og viðgerðir* 50,75% Umboðsverslun** 26,57% Rafmagns-, gas- og hitaveita 18,4 Trjáiðnaður*** 15,5 Samgöngur og flutningar**** 5,0-10,0% Önnur viðsk. og sérhæfð þjónusta 8,66% Vátryggingafélög 6,5% Vélaleiga 4,6% Efnaiðnaður***** 4,2% Vélsmíði og vélaviðgerðir 1,4% Rannsóknir og þróun 1,2% * Öll slippþjónusta og einstaka tæknifyrirtæki ** Kaup á eldsneyti og innfluttum vélum og tækjum. *** Þarna á meðal eru fyrirtæki sem framleiða bretti og umbúðir **** Innan flutningaþjónustu er löndun ***** Þarna á meðal eru fyrirtæki sem selja málningu og hreinsiefni H L U T U R A T V I N N U G R E I N A Þau voru sum hver í nánum tengslum við nokkur sjávarút- vegsfyrirtæki, sem voru þeirra stærstu viðskiptavinir en lítið sín á milli. Í öðrum hugbúnaðar- geirum sá ég meiri samskipti og meiri tengsl á milli frumkvöðl- anna og fyrirtækja innan grein- arinnar,“ segir Þór sem í fram- haldinu tók að skoða hvernig efla mætti samskiptanet fyrirtækja innan sjávarklasans. „Í því felast gríðarleg verðmæti ef við náum að styrkja samstarf fólks í þró- unarstarfi og markaðssetningu. Mikil störf og verðmæti geta orðið til,“ heldur hann áfram. Þór telur ástæðu þess að fyrir- tæki sem tengjast sjávarklasan- um hafi lítil samskipti sín á milli þá að greinin sé gömul saman- borið við aðrar tæknigreinar. Það geti komið niður á markaðsstarfi þeirra í öðrum löndum. „Sumir halda að það nægi að vera frá Íslandi og að það eitt og sér geti opnað þeim næstum sjálfkrafa dyr í útlöndum. Það reynist oft því miður ekki vera,“ segir Þór. ÞÓR SIGFÚSSON Forsvarsmenn fyrirtækja í sjávarklasanum tengjast lítið öðrum fyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI nnatvinnuvegur þjóðarinnar ármálafyrirtækjum. Allir tengjast þeir sjávarútvegi FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON H V A R E R V Ö X T U R I N N ? Mikill vöxtur Lítill vöxtur Hefðbundin starfsemi Sjávartækni Fiskeldi Veiðar Heilsutækni Ný tækni Orka Lyfjaþróun prótíns og olíu-OMEGA Lífvirk efni hafsins Umhverfis tækni Fiskeldi Skynjarar Land- grunnið Skipaflutningar Tækni- þróun í búnaði Ferða- þjónusta Fiskveiðar Myndin sýnir að lítill vöxtur er í hefðbundn- um veiðum og vinnslu í sjávarútvegi. Öðru máli gegnir um fyrirtækin hægra megin á myndinni. Þar eru ýmir tæknifyrirtæki sem falla undir sjávarklasann. Velta sjávarútvegs nam um 290 milljörðum króna í fyrra, eða sem nemur nítján prósentum af vergri landsframleiðslu. Þá er áætlað að beint framlag sjávarútvegsins sem hlutfall af landsframleiðslu hafi verið 10,14 prósent í fyrra en óbeint framlag 8,63 prósent. Í veiðum og vinnslu hjá sjávar- útvegsfyrirtækjum í fyrra voru 8.700 störf. Til viðbótar starfa svo tíu þúsund manns við sjávar- útveg og heildarfjöldinn því nít- ján þúsund. Í útreikningunum er ekki tekið tillit til margföldunar- áhrifa, launa eða rentu sem skap- ast í greininni, að sögn Lindu. Samanburðartölur við fyrri ár liggja hins vegar ekki fyrir. Ekki er búið að kortleggja öll þau fyrirtæki sem tilheyra sjávarklasanum og greina þau með svipuðum hætti og fyrir- tæki í sjávarútvegi auk þess sem enn á eftir að sjá hvernig þau fyrirtæki sem tilheyra sjáv- arklasanum tengjast hvert við annað. Stefnt er að því að verk- efninu ljúki í haust. Greiningu á sjötíu tæknifyrir- tækjum er þó að mestu lokið. Niðurstaða yfirferðarinnar bend- ir til að velta geirans nam tæpum tíu prósentum af heildarveltu sjávarútvegsins, 26 milljörðum króna í fyrra. Linda bendir á að greinin öll sem atvinnuvegur sé að þróast í aðra átt. Tæknigeirinn í sjávar- klasanum sé orðin stuðningsgrein við sjávarútveginn og gefi henni samkeppnisforskot. „Það er ljóst að margar atvinnugreinar eiga mikið undir sjávarútveginum,“ segir hún. MEIRA EN GRUNNATVINNUVEGUR Linda segir sjávarútveginn hafa verið gagnrýndan að ósekju upp á síðkastið. „Umræðan fer oft á þann veg að mikilvægi sjávar- útvegs sé að minnka. Svo þarf alls ekki að vera. Starfsemin er að breytast. Það verður að líta á sjávarútveginn og tengda starf- semi hans sem eina heild. Þetta er meira en bara veiðar og vinnsla. Þótt vinnuafl í sjávarútvegi sé að dragast saman þá þýðir það ekki endilega að vinnuafl á heildina litið sé að dragast saman. Það er ekki hægt að horfa á þennan eina hluta, veiðar og vinnslu. Þetta er svo miklu meira,“ segir hún og bendir á að sjávarútvegurinn hér sé ólíkur öðrum greinum. Hann sé skilgreindur sem grunnatvinnu- vegur og hafi hann sem slíkur mikil margföldunaráhrif. „Það eru svo margar atvinnu- greinar sem eiga mikið undir sjávarútvegi. Ef hann myndi leggjast af yrðu þær fyrir miklu hnjaski, hugsanlega leggjast líka af,“ segir hún og bendir á sem dæmi að ef skósmiður loki verk- stæði sínu þá hafi það lítil ef nokk- ur keðjuverkandi áhrif. Öðru máli gegni í sjávarútvegi; sé greininni kippt út geti önnur fyrirtæki farið sömu leið. „Við höfum sýnt hversu um- fangsmikil starfsemin er. Burt- séð frá því hver áhrif frumvarps- ins verða, ef það verður að lögum, hvort heldur þau verða jákvæð eða neikvæð, þá mun áhrifanna gæta umfram veiðar og vinnslu. Tengdar greinar munu að öllum líkindum finna fyrir því mjög fljótlega. Fólk verður svo að geta sér til um hvort áhrifin eru já- kvæð eða neikvæð,“ segir hún. Umræðan fer oft á þann veg að mikilvægi sjávarútvegs sé að minnka. Það er rangt. Starfsemin er að breytast. Það verður að líta á sjávarútveginn og klasann sem heild. Þetta er meira en grunnatvinnuvegur. Þótt vinnuafl í sjávarútvegi sé að dragast saman þá þýðir það ekki að vinnuafl á heildina litið sé að dragast saman. Það er ekki hægt að horfa á þennan eina hluta, veiðar og vinnslu. Þetta er svo miklu meira
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.