Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 38
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR26
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
Um þarsíðustu helgi fóru fram héraðs-kosningar hér á Spáni og eins og
jafnan þegar kosningar fara fram varð ég
margs vísari um meðbræður mína.
ÉG hafði til dæmis lengi dáðst að nauta-
bönum og þá sérstaklega fyrir þá reisn
sem þeir sýna þegar skepnan nær að setja
hornin í þá. Ef ég hefði skepnu upp á
hálft tonn á eftir mér sem síðan ræki
horn í síðu mína myndi ég líklegast
ganga af göflunum og kikna í hnján-
um af ótta í hvert skipti sem ég sæi
horn. Yrði þetta svo römm fóbía að
ég myndi líklegast aldrei aftur geta
farið til Hornafjarðar. En þessu er
öðruvísi farið með nautabana sem
stundum eru stangaðir margsinnis
niður en standa alltaf upp aftur
rétt eins og fótboltakappi
sem hefur verið felldur og
bíður þess eins að dómar-
inn dæmi aukaspyrnu.
Svo halda þeir áfram
að veifa skikkju sinni
framan í skepnuna
eins og ekkert hafi
í skorist.
ÞESSI hegðun
var mér alveg
óskiljanleg og
taldi ég það víst að
engir aðrir en nautabanar gætu sýnt af
sér slíka fífldirfsku. En þar varð mér á í
messunni.
ÉG fór nefnilega í þorpið Zújar í Granada-
héraði þar sem ég er skráður til heimilis
og gerði mig líklegan til að kjósa. Svo
undarlega brá við að mér varð létt þegar
ég komst að því á kjörstað, sem er vel
vaktaður af sjálfum frambjóðendunum, að
ég var ekki á kjörskrá. „Þú kemur bara á
mánudaginn og leggur inn kvörtunarbréf,“
sagði bæjarritarinn þegar ljóst var að ég
var ranglega óskráður á kjörskrá.
ÞAÐ sannaðist nefnilega hið fornkveðna
þennan kjördag að sá á kvölina sem á völ-
ina. Hér er nefnilega hægt að velja á milli
andalúsískra þjóðernissinna sem er stað-
bundinn brandari, Lýðflokksins hægri-
sinnaða sem er spilltari en andskotinn og
síðan Sósíalistaflokksins.
OG viti menn, meiri hluti Zújar-búa skaut
nautabananum ref fyrir rass. Það er að
segja, eftir að Sósíalistaflokkurinn er
búinn að koma atvinnuleysinu upp í 30 pró-
sent í Zújar eins og í Granadahéraði öllu,
þá dressaði meirihluti íbúa sig upp, mætti
í kjól og hvítu á kjörstað og kaus sósíalista
til áframhaldandi stjórnarsetu. Þvílíka
fífldirfsku hef ég aldrei nokkurn tímann
séð í einu einasta nautaati.
Sósíalistar dauðans
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
HJÁLP
Ég er hund-
óánægður með
hlutskipti mitt í lífin
u.
Takk
fyrir
Hey...
Þarftu ekki að
æfa aðeins
blístrið þitt?
Sástu
augnatillitið?
Svefnher-
bergisaugu!
Eiga dömur að
vera svona fúlar
þegar þær eru á
leið inn í svefn-
herbergi?
Palli minn.
Ég keypti belti
handa þér!
Til
hvers?
Til að
ganga
með?
Til hvers?
Til að halda bux-
unum uppi!
Nú.
Til hvers?
Mamma!
Hannes er
að klifra í
bókahillunni
aftur!
Hann er að
ganga frá
öllu svo þú
takir ekki eftir
neinu!
Nú ætlar
hann að
fela sig í
herberginu
sínu!
Ég er ekki
klöguskjóða,
ég lít meira
á mig sem
fréttamann á
vettvangi.
prfprfff! prfprfff!
LÁRÉTT
2. óskiptu, 6. í röð, 8. sægur, 9.
hnoðað, 11. skóli, 12. fjöldi, 14.
áburður, 16. snæddi, 17. fúadý, 18.
umrót, 20. á fæti, 21. seytlar.
LÓÐRÉTT
1. smyrsl, 3. í röð, 4. viðtaki, 5. sarg,
7. félagsskapur, 10. traust, 13. gifti,
15. truflun, 16. spíra, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. öllu, 6. rs, 8. mor, 9. elt,
11. fg, 12. margt, 14. gúanó, 16. át,
17. fen, 18. los, 20. tá, 21. agar.
LÓÐRÉTT: 1. krem, 3. lm, 4. loftnet,
5. urg, 7. slagtog, 10. trú, 13. gaf, 15.
ónáð, 16. ála, 19. sa.
Við leitum að fagmenntuðum bifvélavirkjum
á bílaverkstæði HEKLU
Boðið er upp á skemmtilegan vinnustað, úrvals aðstöðu til
viðgerða og viðhalds, gott tæknilegt umhverfi ásamt miklum
möguleikum á þjálfun og endurmenntun. Á verkstæðum
HEKLU er unnið eftir gæðakerfi sem byggir á Volkswagen
Group og ISO 9001:2000 stöðlum. Gæðakerfið er vottað af
faggildum aðilum.
Bifvélavirki á bílaverkstæði hefur það hlutverk að greina, finna
úrlausnir og vinna við viðgerðir á verkstæðinu.
Ábyrgð og verkefni:
• Öll almenn viðhalds- og viðgerðavinna
• Meðhöndlun bilanagreininga
• Deila þekkingu með starfsfélögum
• Framfylgja öllum öryggisreglum og gæðakröfum
framleiðenda
Hæfniskröfur:
• Fullgild réttindi sem bifvélavirki
• Reynsla af starfi sem bifvélavirki
• Góð tungumálakunnátta
• Góð tölvukunnátta
• Áhugi á símenntun í greininni og vilji til að kynna sér
tækninýjungar
• Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Vinnutími á verkstæðinu er frá kl. 8:00 - 16:00.
Allir starfsmenn HEKLU er hvattir til að sýna frumkvæði,
metnað og vilja til að ná árangri í starfi.
Vinsamlegast sendið inn umsóknir ásamt ferilskrá á mh@hekla.is
Frekari upplýsingar um starfið gefur Magnús Halldórsson
í síma 825 5638