Fréttablaðið - 01.06.2011, Síða 8
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR8
1. Hvað heitir nýr söngleikur sem
verður byggður á plötunni Lög unga
fólksins?
2. Hvar verða hraðamyndavélar
teknar í notkun í dag?
3. Hvaða persónu mun Laddi leika
í væntanlegri strumpamynd?
SVÖR:
1. Hrekkjusvín 2. á kjalarnesi 3. Kjartan
galdrakarl
Sundnámskeið fyrir börn hefst 6. júní.
Kennt verður í Sundlaug Sjálfsbjargar,
Hátúni 12. Skráning fer fram í Íþróttahúsi ÍFR
Hátúni 14 eða í síma 561-8226.
Íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík
Sundnámskeið
FYLLT Á Farið var eftir öllum kúnstarinnar reglum þegar fyllt var á eldsneytistankana.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SAMGÖNGUR Sigurrós Pétursdóttir
hrósaði sigri í árlegri sparaksturs-
keppni FÍB og Atlantsolíu sem fór
fram í gær.
Takmarkið var að eyða sem
minnstu eldsneyti á 142 kílómetra
leið og tóku 25 bílar þátt í keppn-
inni að þessu sinni, þar af 20 dísil-
bílar.
Sigurrós, sem keppti á Toyota
Yaris með dísilvél, reyndist hlut-
skörpust þar sem hún eyddi aðeins
2,63 lítrum á hundraðið, en næstu
tveir voru rétt undir þremur lítr-
um. - þj
Ökumenn keppa í sparakstri:
Flestir keppa
á dísilbílum
HOLLAND, AP Ratko Mladic er kom-
inn í fangelsi alþjóðlegs stríðs-
glæpadómstóls í Haag, þar sem
hann verður leiddur fyrir dómara
innan fárra daga. Hann var hand-
tekinn í Serbíu á fimmtudag og
framseldur í gær til Haag.
Sextán ár eru liðin síðan þáver-
andi aðalsaksóknari dómstóls-
ins ákærði hann fyrir stríðsglæpi
og glæpi gegn mannkyni, meðal
annars vegna fjöldamorðanna í
Srebrenica árið 1995.
„Mladic er ákærður fyrir alvar-
legustu glæpina gegn mannkyni og
alvarlegustu brotin á alþjóðalög-
um,“ sagði Snezana Malovic, dóms-
málaráðherra Serbíu, í gær þegar
Mladic var framseldur. Hún sagði
Serbíu með þessu uppfylla alþjóð-
legar og siðferðilegar skyldur sínar.
Mladic var yfirmaður serbneska
herliðsins í Bosníustríðinu árin
1992-95. Hermenn undir hans
stjórn eru sakaðir um þjóðarmorð
og fleiri stríðsglæpi á þessum tíma,
þar á meðal morð á um 8.000 karl-
mönnum og drengjum við bæinn
Srebrenica í júlí 1995 og ýmis voða-
verk í tengslum við 44 mánaða langt
umsátur um höfuðborgina Sarajevo.
„Þetta hefur mikla þýðingu fyrir
fórnarlömb þjóðarmorðsins,“ segir
Munira Subasic, formaður samtaka
þeirra sem lifðu af fjöldamorðin í
Srebrenica. „Mladic er farinn og
við trúum því að illskan heyrist á
tali hans og hann muni segja sann-
leikann.“
Í Bosníu komu þúsundir stuðn-
ingsmanna Mladic saman í gær
til að mótmæla framsali hans til
stríðsglæpadómstólsins. Margir
Serbar líta enn á hann sem þjóð-
hetju sem hafi barist hetjulega
fyrir málstað þeirra í stríðinu.
„Örninn er farinn en hreiðrið er
eftir,“ stóð á skiltum sem sumir
þeirra báru.
Í gær, áður en hann var fluttur til
Haag, fékk Mladic leyfi til þess að
fara í stutta heimsókn að gröf dótt-
ur sinnar í úthverfi Belgrad, höfuð-
borgar Serbíu. Hún stytti sér aldur
árið 1994, þá 23 ára gömul, að sögn
serbneskra fjölmiðla vegna þung-
lyndis í tengslum við þátttöku föður
hennar í stríðinu. Mladic fór þangað
í fylgd vopnaðra varða. Hann hafði
lagt mikla áherslu á að fá að fara
þangað, því hann hafði ekki getað
heimsótt gröf dóttur sinnar meðan
hann var í felum.
„Við vorum með myndavélar þar
og sólarhingsgæslu þannig að hann
hefði örugglega ekki getað látið sjá
sig þar,“ segir Vladimir Vukcevic,
aðalstríðsglæpasaksóknari Serbíu.
gudsteinn@frettabladid.is
Kominn í rammgert
fangelsi dómstólsins
Bosníu-Serbinn Ratko Mladic, sem grunaður er um verstu stríðsglæpi í Evrópu
á seinni tímum, var í gær fluttur frá Serbíu til stríðsglæpadómstólsins í Haag.
Þúsundir stuðningsmanna hans í Bosníu mótmæla framsali hans frá Serbíu.
MÓTMÆLI Í BANJA LUKA Þúsundir manna komu saman í gær í borginni Banja Luka í Bosníu til að mótmæla framsali Ratko
Mladic til stríðsglæpadómstólsins. NORDICPHOTOS/AFP
Gæslan aðstoðaði skútu
Þyrla Landhelgisgæslunnar var í gær
kölluð út til að aðstoða skipverja um
borð í lítilli skútu sem varð vélarvana
nærri álverinu í Straumsvík. Áhöfninni
tókst að koma vélinni í gang og var
ekki þörf fyrir þyrluna.
Stálu bensíntanki og mótor
Lögreglan á Selfossi rannsakar
þjófnað á fimmtán hestafla Suzuki-
utanborðsmótor og rauðum 20 lítra
bensíntanki sem var stolið úr litlum
báti sem var í flæðarmáli Þingvalla-
vatns í landi Miðfells.
Stal kampavíni og bjór
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið
dæmdur í þrjátíu daga fangelsi fyrir
þjófnað og vörslu fíkniefna. Mað-
urinn braust inn á veitingastað, í
félagi við annan mann, og stal 24
flöskum af kampavíni, 24 flöskum af
bjór, 35 flöskum af rauðvíni, tveimur
kílóum af humri og 10 kílóum af
humarhölum.
LÖGREGLUMÁL
ÍTALÍA, AP Nærri þúsund flótta-
menn komu í gær að landi á Sikil-
ey eftir siglingu yfir Miðjarðar-
hafið frá Líbíu. Flestir eru þeir
frá ríkjum sunnan Sahara-eyði-
merkurinnar.
Þeir komu siglandi á tuttugu
metra löngu skipi og var ansi
þröngt um borð þegar 963 flótta-
menn voru búnir að koma sér þar
fyrir.
Allir eru þeir líkast til ólög-
legir flóttamenn á Ítalíu og munu
stjórnvöld þar reyna að senda þá
til baka. - gb
Flóttamenn frá Afríku:
Nærri þúsund
á smárri fleytu
EGYPTALAND, AP Herforingja-
stjórnin, sem til bráðabirgða tók
við stjórn Egyptalands eftir að
Mubarak forseti hraktist frá völd-
um, er sökuð um alvarleg mann-
réttindabrot gegn mótmælendum.
Meðal annars eru hermenn sak-
aðir um alvarleg kynferðisbrot
gegn kvenkyns mótmælendum,
sem þeir handtóku og hótuðu að
ákæra fyrir vændi. Mannréttinda-
samtök segja að hermennirnir hafi
með grófum hætti skoðað kynfæri
kvennanna, undir því yfirskyni að
þeir væru að ganga úr skugga um
hvort þær væru hreinar meyjar.
Þær sættu einnig barsmíðum og
öðrum pyntingum.
Mótmælendur hafa hvatt herfor-
ingjastjórnina til að láta rannsaka
þessar ásakanir. Þess í stað voru
fjórir blaðamenn og einn þekkt-
ur mótmælandi kallaðir til yfir-
heyrslu. Tveir blaðamannanna eru
enn í haldi og verða yfirheyrðir á
föstudag.
Leiðtogar ungra mótmælenda
höfnuðu í gær boði herforingja-
stjórnarinnar um viðræður. Þess
í stað ætla þeir í dag að nota netið
til að koma mótmælum sínum og
ásökunum á framfæri. - gb
Mótmælahreyfing ungra Egypta hreint ekki sátt við herforingjastjórnina:
Mannréttindi áfram brotin
HERFORINGJASTJÓRNINNI MÓTMÆLT
Mikill mannfjöldi safnaðist saman á
Tahrir-torgi um síðustu helgi.
NORDICPHOTOS/AFP
SUÐUR-AFRÍKA, AP Jacob Zuma,
forseti Suður-Afríku, segir að
Múammar Gaddafí hafi alls ekki í
hyggju að þiggja boð af neinu tagi
um að yfirgefa Líbíu til að fá hæli
í öðru landi. Brotthvarf Gaddafís
frá Líbíu er meginkrafa uppreisn-
armanna, sem hafa sótt í sig veðr-
ið undanfarið með aðstoð Atlants-
hafsbandalagsins. - gb
Zuma kominn frá Líbíu:
Gaddafí ætlar
ekki úr landi
FUNDUÐU Jacob Zuma og Múammar
Gaddafí hittust í Líbíu á mánudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VEISTU SVARIÐ?