Fréttablaðið - 01.06.2011, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 1. júní 2011 18
Ráðherra velferðarmála hóf ófrægingarherferð gegn tann-
læknum og þeirra starfi úr ræðu-
stól Alþingis í síðustu viku. Fót-
gönguliðar ráðherrans bregðast
skjótt við herútkallinu og hamast
í öllum miðlum með dyggri hjálp
fréttamanna. Óhróðri og blekking-
um er jafnóðum dælt út frá emb-
ættismannaliðinu sem hlýðir kalli
meistara síns. Ráðherrann getur
glaðst yfir árangrinum. Tann-
læknar eru nú samkvæmt áróðri
ráðherrans, sneyddir
skilningi á samhjálp og
félagslegri liðveislu og
orðrétt segir einn dyggur
fótgönguliði ráðherrans:
„… tannlæknablóðsug-
urnar hér á landi eru
skítsama um tekjulága
foreldra hér á landi þessi
stétt hugsar bara um sitt
eigið rassgat og blóð-
mjólkar kúnnann mörg-
um sinnum.“
Þrjúhundruð milljónirnar
Þrátt fyrir þessa herleið-
ingu ráðherrans væri
honum nær að svara því
hvað varð um þau hundr-
uð milljóna (meira en milljarður á
síðustu árum) sem fjárveitingavald-
ið ætlaði til tannlækningatrygginga
en voru ekki nýttar. Sjúkratrygg-
ingar svara því til að þessir aurar
hafi „bara farið í hítina“!? Þessi
sára neyð barna og þörf á tann-
lækningum var ekki metin meiri
en svo af ráðherranum og forver-
um hans, að framlag Alþingis til
tannlæknatrygginga fór ekki til
tannlækninga barna og ungmenna,
heldur „fór bara í hítina“. Hítin er
auðvitað reisur ráðherra og risna
embættisliðsins.
Eitt hundrað og fimmtíu
milljónirnar
Þegar ráðuneyti velferðarmála
þurfti ný leiktjöld vegna sinnu-
leysis og klúðurs ráðuneytisins í
tannheilsumálum var farið af stað
með „átak“. Það var kynnt þannig
að nýr sjóður hefði verið myndað-
ur upp á 150 milljónir sem varið
skyldi til tannlækninga þeirra
sem ráðuneytið skilgreindi sem
fátæka. Þessi „sjóður“ er blekking.
Framlagið í „sjóðinn“ er tekið úr
framlagi Alþingis til tannlækna-
trygginga. Tryggingaþegum er
því mismunað, framlag skert hjá
sumum og fært til annarra án
nokkurra lagaheimilda eða raka.
Auglýsingar og ferðakostnaður
Ráðherra velferðarmála ætti að
svara því hvað miklu hefur verið
varið til auglýsinga á þessum
„ókeypis“ tannlækningum. Aug-
lýsingum sem hafa dunið á okkur
í öllum fjölmiðlum. Auglýsingum
sem kynna vel og dyggilega mann-
gæsku ráðherrans og samúð með
„fátækum“. Og mannvonsku tann-
læknastéttarinnar að taka ekki
þátt í fúskinu. Einnig ætti ráð-
herrann að svara því hvað mikið
fer í ferðakostnað tryggingaþega
og fylgdarmanna til að uppfylla
kvaðir ráðherrans um
„ókeypis“ tannlækningar
í Reykjavík, einu sveitar-
félaga. Til hliðsjónar má
benda ráðherranum á
að greiðsla SÍ til tann-
lækninga tryggingaþega
sem leituðu lækninga hjá
blóðsugunni nam alls 1,7
milljónum á síðasta ári.
Staða og aðkoma
tannlæknadeildar HÍ
Sú ógæfa hefur hent
tannlæknadeild að hafa
eytt umfram heimildir
tugmilljóna króna á und-
anförnum árum. Líklega
ein verst rekna deild HÍ.
Þessu varð að sópa undir stól. Til
að færa úr einum vasa ríkissjóðs
í annan þá rennur framlag vel-
ferðarráðherrans til tannlækninga
„fátækra“ barna í vasa mennta-
málaráðherrans á formi greiðslu til
tannlæknadeildar vegna átaksins.
Snilldin er augljós en sukkið í fjár-
munum almennings með þessum
tilfærslum er hvorki haldið á lofti af
fótgönguliðum né embættisliðinu.
Átakið er sem sé til að laga bága
fjárhagsstöðu tannlæknadeildar
eins og forseti deildarinnar hefur
kynnt tannlæknum.
Hvar er fagmennskan?
Ráðherra velferðarmála gortaði
sig af því að hann hefði verið skóla-
maður í 27 ár. Þess vegna er hann
eins og leir í höndum embættis-
manna sem hugsa um það eitt að
hafa nóg af peningum handa á milli
til að halda góðri siglingu á skrif-
stofuhaldi og pappír ráðuneytisins.
Deildarstjóri í velferðaráðuneytinu,
tannlæknir að mennt, upplýsir að
150 börn hafi verið skoðuð í þessu
átaki. Hafi verið skoðuð! Með sama
áframhaldi tekst ekki einu sinni að
skoða þau 574 börn sem þegar eru
skráð í þetta átak. Og hvað svo?
Langflest þessara barna hafa verið
hjá tannlæknum sem hafa skoðað
þau og ástand þeirra liggur fyrir.
Þessi átaksskoðun breytir því
engu um tannheilsu þessara barna.
Engin eftirfylgni, engar tannheilsu-
bætandi aðgerðir, ekkert hefur
breyst. Þetta er fúsk.
Af hverju vantar tannlækna
í þetta „átak“?
Af eintómri smekkvísi telur deildar-
stjóri velferðarráðuneytisins (tann-
læknir) að kæra eins tannlæknis til
samkeppniseftirlitsins hafi gert
útslagið að tannlæknar fáist ekki til
að taka þátt í þessu átaki. Undirrituð
tannlæknablóðsuga kærði þetta
verkefni velferðaráðherra þar sem
engar faglegar forsendur eru fyrir
framkvæmd verkefnisins, gróflega
er verið að mismuna tryggingaþeg-
um, tryggingaþegar eru flokkað-
ir eftir tekjum en ekki tannheilsu,
átakið kostar margfalt meir en að
greiða fyrir nauðsynlegar tann-
lækningar allra barna og ungmenna
og peningum er ausið í auglýsingar,
stjórnun og ferðakostnað. Auk þess
er verkefni ráðherra í beinni sam-
keppni við mig sem greidd er niður
af almannafé. Það hefur aldrei verið
sýnt fram á að tekjulágir hafi verri
tennur en aðrir þjóðfélagshópar. Í
rannsókn sem undirrituð blóðsuga
framkvæmdi í Úganda kom einmitt
í ljós að flestar tannskemmdir voru
í börnum þeirra sem töldust efna-
meiri á þeirra mælikvarða. Fyrstu
tannskemmdir á Íslandi greind-
ust í tönnum biskupa sem voru
yfirstéttin á 18. öld.
Að lokum
Ég er tannlæknir með stofu í
rekstri. Þarf að greiða lögboðin
gjöld af mínum rekstri, laun og
viðhald, endurnýja tæki, leggja til
bestu efni og áhöld. Ég get ekki
boðið ókeypis tannlækningar.
Ég get ekki keppt við „átak“ ráð-
herrans. Ég, einn vesæll maður,
stenst ekki árásir blýantsnagara
ráðuneytisins, níð fótgönguliða
hans, árásir og útúrsnúninga frétta-
liðsins. Ráðherra velferðarmála hóf
ófrægingarherferð sína með því að
halda fram að tannlæknar notuðu
börn sér til framdráttar í kjara-
baráttu. Til að koma honum í skiln-
ing um hvað hann sagði þá fullyrði
ég að hann noti heimatilbúna skil-
greiningu á fátækt og slæma tann-
heilsu barna til að upphefja póli-
tíska persónu sína og til að koma
höggi á mig og starf mitt.
„Tannlæknablóðsuga“
svarar fyrir sig
Nú ráðgera ríkisstjórnarflokk-arnir framtíðarráðstöfun
á sameiginlegri auðlind okkar
landsmanna. Loforð þeirra var
innköllun, sem skyldi gerast á að
hámarki 20 árum, en niðurstað-
an er að útgerðinni skulu afhent
að lágmarki 85% af auðlindinni
til 23 ára, til að byrja með. Þetta
er gert með þeirri sjónhverf-
ingu að verið sé að innkalla allan
kvótann á einu bretti, en svo er
honum auðvitað úthlutað aftur
til sömu manna, til 23 ára í stað
eins árs líkt og nú er. Þetta skal
gert með samningum, þannig að
eignarréttarleg staða útgerðar-
manna yfir auðlindinni verður
í raun sterkari en nokkru sinni
fyrr. Það mun nefnilega ekki vera
mögulegt að afturkalla gerning-
inn þegar búið er að skrifa undir,
nema auðvitað með því að útgerð-
inni verði greiddar fullar bætur
fyrir, hundraða milljarða gjöf
úr vösum alls íslensks almenn-
ings. Það augljósa svigrúm til
breytinga sem til staðar er í dag
verður með þessu afnumið, en
útgerðarmönnum afhent auð-
lindin endanlega, enda munu
samningarnir síðan verða fram-
lengdir aftur og aftur, út í hið
óendanlega. Almennir launþegar
munu verða fórnarlömb ofbeldis
LÍÚ í kjaraviðræðum næstu ald-
irnar; fái það ekki að halda kvót-
anum verða engir kjarasamning-
ar. Lausnin sem er á borðinu gæti
því eins hafa verið samin á skrif-
stofu LÍÚ.
Loforð ríkisstjórnarflokkanna
var að brugðist yrði við áliti
Mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna, „m.a. með því að gæta
atvinnufrelsis og að tryggja að
jafnræðis verði gætt við úthlutun
[kvótans] og aðgengi að hinni sam-
eiginlegu auðlind“. Álit Mannrétt-
indanefndarinnar (MNSÞ) er kýr-
skýrt; úthlutunarmátinn er ekki
talinn standast jafnréttisákvæði
Alþjóðasamnings um borgaraleg
og stjórnmálaleg réttindi (sem er
samhljóða 65. gr. stjórnarskrár
Íslands). MNSÞ krefst þess að
jafnræðis verði gætt við úthlut-
unina og að ákveðnum mönnum sé
ekki úthlutað langtímaaðgangi að
auðlindinni andstætt hagsmunum
annarra. Augljóst er að MNSÞ
átti þar við aðgang að allri auð-
lindinni; ekki dugar að jafnræð-
is sé gætt við úthlutun á 10-15%,
en að þröngur hópur manna fái
rest. Augljóst er að ríkisstjórnin
lítilsvirðir Mannréttindanefnd SÞ
með frumvarpinu. Augljóst er að
enginn stjórnarþingmaður getur
svarað því með haldbærum rökum
hvernig frumvarpið komi til móts
við álit MNSÞ eða samrýmist
reglum stjórnarskrárinnar. Líkt
og grundvallarreglur samfélags-
ins séu aukaatriði. Á það eftir að
gagnast okkur að fá nýja stjórnar-
skrá þegar stjórnvöld fara hvort
eð er ekki eftir þeirri stjórnar-
skrá sem við höfum nú þegar?
Hvers vegna erum við aðilar að
alþjóðlegum mannréttindasátt-
mála sem við förum ekki eftir?
Það sem er hins vegar ekki
eins augljóst er hvers vegna þú,
ráðherra mannréttindamála,
hefur ekki hlutast til um að gerð
sé úttekt á því hvort kvótafrum-
varpið uppfylli þær kröfur sem
gerðar eru í áliti MNSÞ. Fjár-
málaráðuneytið var fljótt til og
kom með ábendingu um að frum-
varpið kynni að öðru leyti að fara
í bága við stjórnarskrána. En það
heyrist ekkert í þér þrátt fyrir
að mannréttindin sem þér ber að
verja séu helgustu réttindi ein-
staklingsins. Ríkisstjórnin er fljót
til að benda á að frumvarpið sé í
bága við stjórnarskrána að öðru
leyti en því sem snertir mannrétt-
indi hins almenna borgara. En þú
ert þögull sem gröfin.
Hefur þú, Ögmundur Jónasson,
líkt og skylda þín er, látið fara
fram úttekt á því hvort umrædd
lagasetning standist ákvæði
stjórnarskrárinnar og ákvæði
Alþjóðasamnings um borgara-
leg og stjórnmálaleg réttindi (og
komi þar með til móts við álit
Mannréttindanefndar SÞ)? Hefur
þú sent Mannréttindanefnd-
inni afrit af þessum hugmynd-
um þínum og samráðherra þinna
um breytingu á úthlutunarmáta
fiskveiðiheimilda og lagt fyrir
þá spurninguna; Uppfylla þessar
breytingar kröfur Mannréttinda-
nefndarinnar?
Hafir þú ekki brugðist við sam-
kvæmt ofangreindu, þá krefst ég
tafarlausrar afsagnar þinnar.
Maður sem gefur skít í mann-
réttindavernd, ekki síst þegar
kemur að hinum helgustu rétt-
indum einstaklingsins til athafna
og að njóta jafnræðis, hlýtur
enda að hafa með öllu fyrirgert
rétti sínum til setu sem ráðherra
mannréttindamála.
Opið bréf til mann-
réttindaráðherra
Heilbrigðismál
Sigurjón
Benediktsson
tannlæknir
Það hefur
aldrei verið
sýnt fram á
að tekjulágir
hafi verri
tennur en
aðrir þjóð-
félagshópar.
Sjávarútvegsmál
Þórður Már
Jónsson
lögfræðingur
Úrval af
pallaefni!
Tilbúið til notkunar.
Ekki nauðsynlegt að mála strax.
Sömu gæði gagnvarnar og áður.
Betri grunnur fyrir dökka liti.
Nýtt í BYKO
Brúnt gagnvarið efni
OMEGA gasgrill að verðmæti 25.900 kr.
fylgja pallaefni fyrir 100.000 kr. eða meira.
Frábær kaupauki
með pallinum!