Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.06.2011, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 01.06.2011, Qupperneq 20
MIÐVIKUDAGUR 1. júní 2011 2020 1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR Krabbamein í ristli og enda-þarmi er alvarlegur sjúk- dómur, en með skimun er hægt að greina forstig sjúkdómsins og fækka dauðsföllum. Á árabilinu 1955-2004 varð þreföldun á nýgengi krabbameins í ristli og endaþarmi hjá körlum og tvöföldun hjá konum. Sjúkdóm- urinn er nú þriðja algengasta dán- arorsök af völdum krabbameina og fimm ára lifun sjúklinga sem greinst hafa með ristilkrabba- mein er aðeins um 60%. Nú greinast að meðaltali 136 einstaklingar á ári með krabba- mein í ristli og endaþarmi. Á hverju ári deyja að meðaltali 50 einstaklingar úr þessum sjúk- dómi, 26 karlar og 24 konur. Að jafnaði deyr því einn einstak- lingur í viku hverri af völdum sjúkdómsins. Fjölmargar rannsóknir hafa sýnt að unnt er að skima fyrir sjúkdómnum og lækka dánartíðni af völdum hans. Skimun greinir sjúkdóminn á fyrri stigum, fækk- ar dauðsföllum og er kostnaðar- lega hagkvæm. Í Bandaríkjunum hefur skim- un verið ráðlögð um árabil og frá árinu 1998 hefur nýgengi krabba- meins í ristli og endaþarmi minnkað þar. Evrópuráðið hefur mælt með því að aðildarþjóðir þess taki upp skimun. Þá mælir National Health Service (NHS) í Bretlandi með skimun og Finnar hófu skimun árið 2004. Á Íslandi hefur umræða staðið í um aldarfjórðung um hvort hefja eigi skimun fyrir krabbameinum í ristli og endaþarmi. Á árunum 1986-1988 var gerð forkönnun á fýsileika þess að skima með því að leita eftir blóði í hægðum. Árið 2002 gaf landlæknir út klínískar leiðbeiningar um skimun. Þar er ráðlögð skimun með leit að blóði í hægðum á hverju ári hjá ein- staklingum 50 ára og eldri. Þess- ar leiðbeiningar landlæknis eru enn í gildi. Alþingi Íslendinga hefur fjallað alloft um skimun fyrir krabba- meini í ristli og endaþarmi og samþykkti þingsályktunartillögu þess efnis árið 2002. Málið var tekið upp aftur 2005. Árið 2007 fól Alþingi heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra í samráði við landlækni að hefja undirbúning fyrir skimun þannig að skipuleg leit myndi hefjast á árinu 2008. Þessi ákvörðun Alþingis hefur ekki verið felld úr gildi. Síðast var málið rætt á Alþingi í febrúar 2008 í kjölfar fyrirspurnar um hvað liði undirbúningi fyrir skim- un. Þrátt fyrir það er enn ekki hafin formleg skimun hér á landi. Árangur meðferðar við ristil- krabbameini hefur batnað mikið að undanförnu. Lyfjameðferð við langt gengnum og ólækn- andi sjúkdómi lengir og bætir líf. Ný lyf bæta árangur enn frek- ar, en með umtalsverðum kostn- aði. Lyf, sem algengt er að nota, kosta meira en 700 þúsund krónur á mánuði fyrir hvern sjúkling og sumir fá slíka meðferð í nokkur ár. Við höfum rannsakað kostnað við meðferð á krabbameini í ristli og endaþarmi. Beinn kostn- aður vegna meðferðarinnar var áætlaður um 684 milljónir króna á landsvísu árið 2008. Ljóst er að meðferð sjúkdómsins er mun dýrari nú. Í rannsókninni var ekki gerð tilraun til að meta kostnað vegna ýmissa þátta svo sem greiðsluþátttöku sjúklinga, vinnutaps, miska, eða ótíma- bærra dauðsfalla. Ef sá kostn- aður er meðtalinn yrði þessi tala mun hærri. Kostnaður við skimun skilar sér því fljótt í sparnaði þar sem þeim einstaklingum fækk- ar sem þurfa á dýrri meðferð við sjúkdómnum að halda, svo ekki sé talað um þær þjáning- ar og ótímabæru dauðsföll sem sjúkdómurinn veldur. Flest vestræn ríki eru að takast á við efnahagsþrengingar. Þá er mikið rætt um að tækifæri geti legið í kreppunni. Bandaríska krabbameinsmiðstöðin (National Cancer Institute, NCI) benti nýlega á leiðir til að flýta barátt- unni við krabbamein á kreppu- tímum og var ein af megináhersl- unum að auka þátttöku í skimun fyrir krabbameinum í ristli og endaþarmi. Á Íslandi næst einn besti árangur í heiminum við meðferð brjóstakrabbameina. Fimm ára lifun er nú um 86% og hefur stór- batnað á undanförnum áratugum. Sennilega má rekja þann árangur til skimunar fyrir brjóstakrabba- meinum, sterkra sjúklingasam- taka og góðrar vitundar í sam- félaginu um sjúkdóminn ásamt góðri heilbrigðisþjónustu. Á það sama ekki að gilda fyrir krabba- mein í ristli og endaþarmi? Unnt er að fækka ótímabærum dauðsföllum af völdum krabba- meina í ristli og endaþarmi. Á tímum sem þessum höfum við ekki efni á að skima ekki. Ristilkrabbamein er lúmskt, já og dýrt Heilbrigðismál Friðbjörn Sigurðsson læknir Kristín Skúladóttir hjúkrunarfræðingur Skimun greinir sjúkdóminn á fyrri stigum, fækkar dauðsföllum og er kostnaðarlega hagkvæm. Enn er beðið eftir lausn á skuldavandanum Þegar ríkisstjórn Sjálfstæðis-flokks og Samfylkingar féll veitti Framsókn minnihluta- stjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna vernd fram að kosningum gegn því að hún uppfylltri þrjú skilyrði. Efst á blaði var að stjórnin þyrfti að ráðast tafarlaust í aðgerðir í skuldamálum heimila og fyrir- tækja. Þá þegar, í janúar 2009, var þörfin fyrir slíkar aðgerðir orðin knýjandi og ráðaleysi sitj- andi ríkisstjórnar í þeim efnum var ein meginástæða þess að henni var ekki sætt. Undir umræðu um að öllu yrði stefnt í upplausn ef ekki kæm- ist á starfhæf ríkisstjórn þá og þegar, handsöluðum við sam- komulag við nýju stjórnarflokk- ana þess efnis að ef þeir skiluðu ekki innan fárra daga tillög- um að því hvernig tekið yrði á skuldavandanum myndum við leggja þeim til útfærðar tillögur. Þegar u.þ.b. þrjár vikur voru liðnar hafði stjórnin enn ekki lagt fram tillögur um það hvern- ig hún hygðist útfæra skulda- leiðréttingu. Við lögðum því fram okkar eigin tillögur sem við höfðum unnið með aðstoð þeirra sem best þekktu til. Tillögurnar 18 fólu í sér heildaráætlun um hvað þyrfti að gera til að takast á við efna- hagsvandann og snérust bæði um skuldaleiðréttingu og aðrar aðgerðir í efnahagsmálum. Eins og flestir muna urðu þessar til- lögur tilefni einhverrar mestu áróðursherferðar sem sést hefur í íslenskum stjórnmálum. Tals- menn flokkanna sem við höfðum falið það traust að framkvæma hinar nauðsynlegu aðgerðir, og nokkur fjöldi sjálfstæðismanna, unni sér ekki hvíldar við að troða tillögurnar í svaðið. Á þessum tíma voru lánasöfn banka mjög lágt metin. Lána- söfn, m.a. fasteignalánasöfn, breskra og bandarískra banka í vanda voru í sumum tilvikum seld á um og undir 10% af nafn- virði. Ísland var á þessum tíma skilgreint sem gjaldþrota land og lánasöfn bankanna undir- málslán í gjaldþrota bönkum í gjaldþrota landi. Þetta birtist m.a. í verði skuldabréfa bank- anna sem seld voru á allt niður í 1% af nafnverði. Það var því vandalaust fyrir ríkið sem þá stýrði bönkunum að flytja lána- söfnin yfir á hrakvirði og láta umtalsverðar afskriftir ganga áfram til lántakenda. Þrætt var fyrir að slíkt væri gerlegt en þegar leið að kosn- ingum komumst við að tilvist skýrslna Deloitte og Oliver Wyman þar sem mat var lagt á verðmæti eignasafna bank- anna. Það mat gaf tilefni til að flytja lánasöfnin yfir á veruleg- um afslætti og tækifæri til að láta þann afslátt ganga áfram til skuldara, a.m.k. að hluta til. Fram á síðasta dag fyrir kosn- ingar vorum við sögð fara með fleipur. Í sjónvarpsumræðum kvöldið fyrir kosningar viður- kenndi þó fjármálaráðherra til- vist skýrslnanna en sagði að þær væru lokaðar inn í sérstök- um klefa í fjármálaráðuneytinu. Leyniklefa með dulkóðaðri læs- ingu sem ekki einu sinni hann hafði aðgang að. Eftir kosningar 2009 hélt Framsókn áfram að færa rök fyrir því að það væri sann- gjarnt, hagkvæmt, nauðsynlegt og framkvæmanlegt að ráðast í skuldaleiðréttingu. Við vöruðum mjög við þeirri leið sem var farin við stofnun nýju bankanna. Bentum á að myntkörfulán kynnu að verða dæmd ólögmæt og því þyrfti að taka tillit til þess við stofnun bankanna. Við lögðum áherslu á að önnur leið yrði farin og útlist- uðum (m.a. í þingsályktunartil- lögu) hvernig æskilegast væri að standa að stofnun bankanna svo að áhætta ríkisins yrði lítil og bankarnir traustir og í stakk búnir til að sinna hlutverki sínu við endurreisn efnahagslífsins og fjármögnun atvinnusköpunar. En ríkisstjórnin fór framhjá þinginu við stofnun nýju bank- anna og framhaldið þekkja allir. Þrátt fyrir að Ísland hafi á margan hátt verið betur í stakk búið til að hefja efnahagslega endurreisn og ná upp hagvexti eftir fjármálakrísuna en flest önnur vestræn ríki hefur ríkt hér stöðnun eða samdráttur í tvö og hálft ár. Skuldirnar og óviss- an um framtíðina liggja eins og farg á heimilum og fyrirtækjum landsins. Framsókn hefur í vel á þriðja ár varað við því að verið væri að hverfa frá hálfkláruðu verki. Gripið hefði verið til aðgerða til að verja eignir en stjórnvöld ættu eftir að huga að skuldun- um. Skýrsla fjármálaráðherra um endurreisn bankanna sýnir að sú var raunin. Nú eru meira að segja bank- arnir sjálfir farnir að ganga lengra en ríkisstjórnin mæltist til varðandi afskriftir því að það kemur sífellt betur í ljós að efna- hagsvandinn liggur í skuldsetn- ingunni og hún skaðar samfé- lagið allt. Margt fleira kemur fram í hinni merkilegu skýrslu, m.a. það að litið var á breska og hol- lenska ríkið sem meginkröfu- hafa bankanna frá upphafi en ekki Innistæðutryggingarsjóð- inn eða íslenska ríkið. Bretar og Hollendingar höfðu því veru- leg áhrif á hvaða leið var farin. M.ö.o. það var ekki litið svo á að Íslendingar bæru ábyrgð á Landsbankanum (og ættu þar með kröfur á hann). Ég er enn sannfærður um að með skynsamlegri stefnu og með því að nýta þau tækifæri sem enn eru til staðar í land- inu getum við mjög fljótt snúið vörn í sókn. Allt veltur það á því að breytt verði um stefnu við stjórn landsins. Það viljum við í Framsókn gera og þannig halda ótrauð áfram baráttu fyrir bjartri framtíð Íslands. Efnahagsmál Sigmundur Davíð Gunnlaugsson alþingismaður og formaður Framsóknarflokksins Þetta birtist m.a. í verði skulda- bréfa bankanna sem seld voru á allt niður í 1% af nafnverði. Þú getur alltaf lesið Fréttablaðið frítt á Vísi eða fengið sendan daglegan tölvupóst með blaði dagsins. Nánari upplýsingar á: visir.is/dreifing FRÉTTABLAÐIÐ Á NETINU Venjulega kostar dagurinn aðeins 25 kr./5 MB. Netið í símanum er ódýrara en þú heldur Notkun á Ísl andi , 10 0 M B i nn an d ag si ns . G re id d er u m án .g jö ld s kv . v er ðs kr á.Prófaðu í dag á 0 kr. ef þú ert viðskiptavinur Símans.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.