Fréttablaðið - 01.06.2011, Síða 23
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
Gæðasprotar ná árangri
Ingvar Hjálmarsson
skrifar
62 4-5
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Miðvikudagur 1. júní 2011 – 10. tölublað – 7. árgangur
Vistvæna
prentsmiðjan!
Þjónusta Veitingahús VerslunÍþrótta- og félagasamtök Ríki- og sveitarfélögFerðaþjónusta
Óli Kristján Ármannsson
skrifar
Töluverð óvissa ríkir um gæði eignasafna bank-
anna og þar með um raunverulegt eiginfjárhlutfall
þeirra. Már Guðmundsson seðlabankastjóri segir þó
flest benda til þess að þeir standi undir kröfum Fjár-
málaeftirlitsins um eigið fé. Seðlabankinn kynnti
í gær skýrsluna Fjármálastöðugleika 2011. Seðla-
bankastjóri og Tryggvi Pálsson, framkvæmdastjóri
fjármálasviðs bankans, kynntu skýrsluna.
„Vanskil mælast mikil en erfitt er þó að túlka
mæld vanskilahlutföll, þar sem ekki er ljóst að
hve miklu leyti þau endurspegla skuldavanda sem
endar í þroti, tafir á endurskipulagningu skulda eða
ákvörðun sumra skuldara um að setja skuldir í van-
skil vegna deilna um lagalegan grundvöll lánanna,“
segir Már og kveður enn mikið verk óunnið varðandi
endurskipulagningu skulda fyrirtækja og að nokkru
leyti heimila. „Það viðheldur óvissu um gæði eigna
bankanna og hamlar fjárfestingu og hagvexti, sem
hefur síðan aftur neikvæð áhrif á eignasafn bank-
anna. Eitt mikilvægasta verkefni næstu mánaða er
framvinda þessarar endurskipulagningar.“
Seðlabankinn bendir einnig á í skýrslu sinni að
Íbúðalánasjóður komi til með að þurfa aukinn rík-
isstuðning, eigi hann að ná markmiðum um eigin-
fjárhlutfall. Bent er á að ESA, eftirlitsstofnun EFTA,
hafi samþykkt framlag til sjóðsins gegn því að fyrir
septemberlok næstkomandi lægi fyrir áætlun um
endurskipulagningu sjóðsins. „Í ljósi þeirra miklu
umsvifa sem Íbúðalánasjóður hefur og margvíslegrar
áhættu sem tengist þeim er margt sem mælir með
því að starfsemi Íbúðalánasjóðs
eigi að falla undir lög um fjár-
málafyrirtæki, þótt tilskilið lág-
mark eigin fjár gæti verið annað
en hjá öðrum fjármálafyrirtækj-
um,“ segir í skýrslu bankans.
Með því yrði fjárhagslegt eftir-
lit með sjóðnum á sama grunni
og eftirlit með bönkum og spari-
sjóðum. „Slíkt myndi auka aðhald
með starfsemi sjóðsins.“
Í skýrslu bankans kemur fram
að frá hruni hafi vanskil fyrir-
tækja aukist verulega. Nú séu
tæplega 6.500 fyrirtæki á van-
skilaskrá og hafi ekki verið fleiri frá því í mars 2009.
Fjárhæð fyrirtækjalána í vanskilum í lok mars
síðastliðins námu um 34 prósentum af lánum til
þeirra, en um helmingur lána í vanskilum er sagð-
ur í endurskipulagningarferli. Að því loknu gætu þau
færst í flokk lána í skilum. „Því ríkir veruleg óvissa
um virði að minnsta kosti fjórðungs útlána til fyrir-
tækja,“ segir í skýrslu Seðlabankans.
Um þriðjungur fyrirtækja er sagður hafa haft
viðvarandi neikvætt eigið fé, en almennt virð-
ist fyrirtæki hafa brugðist við ytri aðstæðum.
„Rekstrarafgangur fyrirtækja með jákvætt eigið
fé hefur aldrei verið meiri frá árinu 1997.“
Sömuleiðis kemur fram að vanskil heimilanna hafi
stóraukist frá hruni og nemi nú um ellefu prósent-
um af heildarútlánum stærstu viðskiptabankanna
þriggja til heimila. Þó séu teikn á lofti um að fjár-
hagsstaða heimila fari batnandi. Kaupmáttur sé nú
svipaður og hann var árið 2003.
MÁR
GUÐMUNDSSON
Þriðjungur fyrirtækja
er í viðvarandi mínus
Vanskil fyrirtækja nema 34% af lánum til þeirra. Hlutfallið er
11% hjá einstaklingum. Kaupmáttur nú er eins og 2003.
LAGARDE KYNNIR FRAMBOÐIÐ
Christine Lagarde, fjármálaráð-
herra Frakklands, ferðast nú um
heiminn til að afla stuðnings við
framboð sitt til yfirmannsstarfs
hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.
Hún leggur mesta áherslu á upp-
rennandi hagveldi og kom til
Brasilíu í gær þar sem hún hitti
Guido Mantega efnahagsráðherra.
Hún lofar meðal annars að auka
vægi þróunarlanda í ákvörðunar-
töku hjá sjóðnum.
TOYOTA NÆR SÉR Á STRIK
Japönsku Toyota-verksmiðjurnar
segja framleiðsluna óðum að taka
við sér og muni nú í júní komast
upp í 90 prósent af því sem hún
var áður en náttúruhamfarirnar
miklu urðu þar um miðjan mars.
Þó má búast við að skortur verði
á sumum tegundum bifreiða og
varahluta næstu mánuðina.
AÐSTOÐ ENDURSKOÐUÐ
Sérfræðingar frá Evrópusam-
bandinu, Seðlabanka Evrópu og
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eru að
leggja síðustu hönd á endurskoðun
fjárhagsaðstoðar til Grikklands.
Búist er við niðurstöðu í dag eða
á morgun, með ákvörðunum um
hvort veita eigi Grikkjum meira
fé eða breyta kröfum til þeirra um
aðhald í ríkisfjármálum.
Alls 46 starfsmenn í útibúum
Arion banka brautskráðust úr
undirbúningsnámi í fjármála-
ráðgjöf nú um mánaðamótin.
Námið er liður í samstarfsverk-
efni Arion banka og Háskólans á
Bifröst sem hófst haustið 2010.
Námið stunduðu starfsmenn að
hluta til í gegnum fjarnámsvef
skólans en einnig fór kennsla fram
í vinnulotum á Bifröst og í höfuð-
stöðvum bankans.
Arion banki hefur undanfarin
misseri staðið fyrir umfangsmiklu
fræðslustarfi fyrir starfsmenn
með það fyrir augum að stuðla að
aukinni fagmennsku í þjónustu við
viðskiptavini. - mþl
Luku námi
í fjármála-
ráðgjöf
Landsframleiðsla dróst saman
um 0,5 prósent í Danmörku á
fyrsta fjórðungi ársins, sam-
kvæmt gögnum hagstofu lands-
ins. Samdrátturinn skýrist helst
af því að almenningur hélt fast-
ar um budduna en áður en einka-
neysla á tímabilinu dróst saman
um 1,9 prósent. Þetta er annar
fjórðungurinn í röð sem efnahags-
samdráttur mælist þar í landi og
er kreppa skollin á í Danmörku,
sem er þvert á væntingar, að sögn
fréttastofunnar AFP. - jab
Áfram
kreppa
Kortlagning á sjávarútvegi
Meira en
grunnatvinnuvegur
Delta kemur
Hefur mikla trú
á flugi til Íslands