Fréttablaðið - 01.06.2011, Blaðsíða 24
MARKAÐURINN1. JÚNÍ 2011 MIÐVIKUDAGUR2
F R É T T I R
B A N K A B Ó K I N
Samanburður á
vaxtatöflum bankanna
*Miðað er við 250.000 króna innlegg og sem skemmsta bindingu. A Bundinn í tíu daga. B Bundinn í sjö
daga. C Úttektargjald hjá gjaldkera 0,25%
Athugið að ekki er tekið tillit til árgjalds, sem getur fylgt yfirdráttarreikningum.
Hæstu Yfirdráttarvextir Yfirdráttarlán
innlánsvextir eru hæstir fyrirtækja
Markaðsreikningur
1,25%A
11,25% 11,20%
Vaxtaþrep
1,90%
11,20% 11,20%
Vaxtareikningur
1,15%B
11,20% 11,20%
MP Sparnaður 9,40 til
2,00%
11,05% 11,05%
PM-reikningur 11,10 til
2,00% 11,15% 11,20%
Netreikningur
2,00% C
11,25% 11,25%
Sparnaðarreikningur
2,00%
10,25% Ekki í boði.
Þjónustujöfnuður við útlönd var
neikvæður um 2,2 milljarða króna
á fyrsta fjórðungi ársins sam-
kvæmt nýbirtum bráðabirgðatöl-
um Hagstofunnar. Útflutningur á
þjónustu nam 58,2 milljörðum, en
innflutningur 60,4.
„Þetta er lakasta niðurstaða
þjónustujafnaðar frá því á fyrsta
ársfjórðungi ársins 2009, en fyrsti
fjórðungur ársins er gjarnan óhag-
stæðari en aðrir fjórðungar,“ segir
í umfjöllun Greiningar Íslands-
banka. Sérfræðingar bankans telja
þó útlit fyrir að talsverður afgang-
ur verði af slíkum viðskiptum í ár,
eins og undanfarin ár.
„Afgangur af þjónustuviðskipt-
um nam 44 milljörðum króna í
fyrra og rúmum 39 milljörðum
króna árið 2009. Frá aldamótum
og fram að hruni var hins vegar
jafnan halli á þjónustuviðskiptum
við útlönd ár hvert. Við teljum að
afgangur af þjónustujöfnuði muni
reynast töluverður þetta árið, en
þó gæti hann orðið heldur minni
en síðustu ár í ljósi þess hversu
ferðalög til útlanda hafa aukist
að nýju,“ segir Greining Íslands-
banka. - óká
Á LEIÐ Í FLUG Aukin ferðalög til útlanda
gætu leitt til lakari þjónustjafnaðar við
útlönd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Árið byrjar verr en það síðasta
Ríflega tveggja milljarða króna halli er á þjónustuviðskiptum við útlönd.
Öflugur greiðendavefur með hagnýtum
upplýsingum s.s.
Hraðbönkum fækkaði í fyrra um
fimmtung og þjónustustöðvum
banka um 15 prósent. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu Seðlabankans
um fjármálastöðugleika.
Færri eru þó um hvern af-
greiðslustað hér en gerist og geng-
ur á Norðurlöndum, að meðaltali
2.500 íbúar á hvern þjónustu-
stað, en 3.800 ytra. „Flestir íbúar
voru á bak við hvern afgreiðslu-
stað bankanna á höfuðborgar-
svæðinu eða tæplega 5.000 íbúar
en tífalt færri á bak við bankana
á Vestfjörðum eða 475,“ segir í
skýrslunni.
Jafnframt kemur fram að um
síðastliðin áramót hafi notendur
einkabanka verið 245.396 og not-
endur fyrirtækjabanka 58.457.
„Vægi heimabanka og notkun
vefþjónustu í bankaviðskiptum
hefur aukist frá aldamótum eins
og kunnugt er og það hefur trú-
lega létt álagi af þjónustustöðvum
bankanna.“ - óká
Hraðbönkum fækkaði
um tuttugu prósent
Notendur einkabanka yfir 245 þúsund talsins.
Staður fjöldi íb./
hraðbanka
Höfuðborgarsv. 95 2.151
Vesturland 15 1.025
Vestfirðir 7 1.018
Norðurland vestra 12 615
Norðurland eystra 21 1.381
Austurland 17 724
Suðurland 17 1.400
Reykjanes 18 1.170
Samtals 202 1.583
Heimild: Uppl. SÍ frá bönkum í maí 2011
H R A Ð B A N K A R
Sendinefnd AGS á Írlandi hefur
lokið fyrstu og annarri endurskoð-
un efnahagsáætlunar landsins, auk
beiðni um endurskoðun áætlunar-
innar. Írar fara fram á að breytt
verði áherslum í lánveitingum þar
sem minni peninga þurfi í byrjun
áætlunarinnar en áður hafði verið
talið.
AGS segir áætlunina, sem er
til þriggja ára og hófst um miðj-
an desember, hafi hafist ve. Álit
sendinefndar AGS er að helst ógni
áætluninni að vöxtur sé hægari og
atvinnuleysi meira en ráð var fyrir
gert. Þá hafi frekari lækkun á láns-
hæfismati og þróun í öðrum evr-
ulöndum sem eigi í vanda ýtt undir
hærra vaxtaálag sem torveldi
Írum fjármögnun. - óká
MÓTVINDUR Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn
segir margt hafa gengið vel í endurreisn
írsks efnahagslífs. NORDICPHOTOS/AFP
Atvinnuleysi tefur á Írlandi
Þorgils Jónsson
skrifar
Bandaríska flugfélagið Delta mun á morgun hefja
áætlunarflug milli Íslands og Bandaríkjanna. Flogið
verður fimm sinnum í viku á milli Keflavíkurflug-
vallar og Kennedy-flugvallar í New York.
Frank Jahangir, markaðsstjóri Delta í Evrópu,
Mið-Austurlöndum og Afríku, segir í samtali við
markaðinn að fjölmörg tækifæri felist í fluginu,
bæði fyrir Delta og innlenda aðila.
Fyrsta vélin lendir í Keflavík í fyrramálið, en flog-
ið verður fimm sinnum í viku fram í september. Í
tilkynningu frá Delta segir að þetta sé í fyrsta sinn
í rúm fjörutíu ár sem bandarískt flugfélag fljúgi
hingað til lands.
„Aðalástæðan fyrir því að við hefjum flug hingað
til Íslands er að við sáum tækifæri hér til að auka
ferðalög almennings frá Bandaríkjunum,“ segir
Jahangir. „Við erum búin að rannsaka markaðinn
hér og erum fullviss um að nú sé rétti tíminn.“
Þrátt fyrir að markaðurinn hér á landi sé ekki
stór í samhengi Delta, sem flytur um 160 milljón-
ir farþega á ári, segir Jahangir að þetta sé hluti af
útvíkkun flugáætlananets félagsins um heim allan.
Hann segir að þetta víðtæka net geri Banda-
ríkjamönnum auðveldara að ferðast til Íslands og
er bjartsýnn á árangurinn.
„Við höfum trú á því að við getum kynnt Ísland
fyrir viðskiptavinum okkar og teljum víst að sá
aukni straumur ferðamanna muni koma verslun og
þjónustu hér á landi til góða.“
Jahangir bætir því við að félagið horfi ekki síður
til þess að kaupsýslufólk leggi leið sína hingað til
lands.
Ekki er síður horft til þeirra tækifæra sem flug
Delta býður íslenskum ferðalöngum. Jahangir segir
einmitt að flugáætlananet félagsins muni gera Ís-
lendingum kleift að kaupa sér ferðir á einum flug-
miða til fimmtíu áfangastaða Delta í Norður- og
Suður-Ameríku, sem og Karíbahafsins.
Hann segir að Delta geri sér hófsamar væntingar
til þessa flugs.
„Við förum var-
lega í málin en
sjáum nú þegar
að útlitið er gott
og trúum að það muni halda áfram. Það er alltaf
erfitt að koma inn á nýjan markað en þessi sterka
byrjun er mjög jákvæð fyrir framhaldið.“
Jahangir segir loks að tíð eldgos á Íslandi að
undanförnu hafi ekki talið Delta hughvarf.
„Nei. Í raun hafa eldgosin komið Íslandi enn frek-
ar á kortið á vissan hátt og vakið áhuga á því sem
landið hefur upp á að bjóða.“
Fyrsta vélin frá Bandaríkjun-
um lendir í Keflavík í fyrra-
málið og verður flugstjórinn í
þeirri ferð Vestur-Íslending-
urinn John S. Magnusson.
Delta hefur mikla
trú á flugi til Íslands
Flugfélagið Delta hefur áætlunarflug milli New York og
Keflavíkur. Segir fjölmörg tækifæri liggja hér á landi.
VONGÓÐUR Frank Jahangir, markaðsstjóri hjá Delta, segist
bjartsýnn fyrir áætlunarflug milli Bandaríkjanna og Íslands sem
hefst á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Veffyrirtækið Kosmos&Kaos opnaði nýjar höf-
uðstöðvar í Reykjanesbæ á föstudag. Reykja-
nesbær hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir
vef- eða hugbúnaðarfyrirtæki en stofnendur
Kosmos&Kaos kunna vel við sig á nýjum stað og
segja verkefnin hlaðast upp.
„Hugmyndin var að búa til skrifstofuhúsnæði
sem hentaði vel fyrir skapandi hugsun. Og raunar
líka til að fólk spyrji af hverju við erum í Reykja-
nesbæ,“ segir Kristján Gunnarsson, annar stofn-
enda Kosmos&Kaos, og bætir við: „Gummi Sig,
samstarfsmaður minn, býr hér í Reykjanesbæ. Við
vildum líka gera svolítið sérstakt vinnuumhverfi og
þar sem leigan er ódýrari hér og handverksmenn til
reiðu sem voru tilbúnir í þetta verkefni með okkur
þá fannst okkur þetta smellpassa.“
Hönnun skrifstofunnar byggir á hugmynd sem
hefur verið kölluð einn-sex og vísar til spýtna
sem notaðar eru í mótatimbur. Kristján segir
fyrirmyndina vera gistiheimili í Reykjanesbæ
sem heitir 1x6. „Fyrst ætluðum við að gera einn
vegg í þessum stíl og höfðum samband við þau á
gistiheimilinu. Svo vatt þetta upp á sig þannig að
öll skrifstofan er að lokum svona; allt úr endur-
unnum efnum nema lampar, ljós og stólar,“ segir
Kristján. Þá er hugleiðsluherbergi á skrifstofunni
en Kristján segir alla sem koma inn á hana fyllast
af ró og hamingju.
Kosmos&Kaos hefur haft í nógu að snúast síð-
ustu vikur og meðal annars hannað nýjar vefsíður
fyrir Reykjanesbæ og Vodafone. „Við hófum störf
í nóvember og vorum bara tveir en erum núna að
ráða starfsmenn. Það er alveg ótrúlega mikið að
gera,“ segir Kristján. - mþl
Færa sig til Reykjanesbæjar
Veffyrirtækið Kosmos&Kaos hefur nóg að gera í nýjum höfuðstöðvum.