Fréttablaðið - 01.06.2011, Page 44
1. júní 2011 MIÐVIKUDAGUR32
folk@frettabladid.is
útgáfum um allan heim, Sjálfstætt
fólk er sú bók Halldórs sem víðast
hefur farið. Valgerður segir hins
vegar nánast vonlaust að skjóta á
heildartölu seldra bóka hjá Hall-
dóri. „Sölutölur frá fimmtíu ára
tímabili liggja hvergi á lausu,
þannig að þetta verður aldrei
nákvæmt. Það er vitað að oft á
tíðum bárust hvorki íslenskum
útgefanda Halldórs né Halldóri
sjálfum söluyfirlit að utan og jafn-
framt er vitað að oft voru bækur
hans endurprentaðar án þess að
viðkomandi forlög sendu upplýs-
ingar um slíkt hingað til lands. Ég
hef persónulega viljað halda mig
nálægt sjö til átta milljónum ein-
taka en ég hef alltaf viljað stíga
varlega til jarðar hvað slíkar tölur
varðar.“ freyrgigja@frettabladid.is
Coldplay hefur tilkynnt að nýtt
lag sé væntanlegt frá hljómsveit-
inni laugardaginn 4. júní. Lagið
heitir Every Teardrop Is a Water-
fall.
Hægt verður að hlusta á lagið
frá og með næsta föstudegi á
vefsíðu Coldplay, en lagið er
það fyrsta sem Chris Martin og
félagar senda frá sér frá því þeir
gáfu út Strawberry Swing árið
2009. Í millitíðinni kom reyndar
út jólalagið Christmas Lights, en
þau telja ekki með.
Síðasta plata sem Coldplay
sendi frá sér var Viva la Vida or
Death and All His Friends sem
kom út árið 2008. Ný plata er
væntanleg á þessu ári, en hún
hefur ekki ennþá hlotið nafn.
Coldplay sendir
frá sér nýtt lag
VIRK Coldplay sendir frá sér nýja plötu á þessu ári.
Hinn ávallt unglegi Billy Joe
Armstrong, söngvari og gítarleik-
ari hljómsveit-
arinar Green
Day, lýsti yfir
á Twitter-síðu
sinni á dögun-
um að hann og
hljómsveitar-
félagar hans
væru duglegir
við að semja lög
þessa dagana.
„Green Day
er búin að
semja ný lög á
hverjum degi,“
sagði hann. „Við eigum tonn af
nýjum lögum. Við erum að fara í
ferska og kröftuga átt.“
Green Day sendi síðast frá sér
plötuna 21st Century Breakdown
árið 2009, en platan var sú áttunda
í röðinni frá þessari vinsælu
hljómsveit. Hljómsveitin hafði
hingað til ekki gefið neitt upp um
nýja plötu, en nú vonast aðdáend-
ur hljómsveitarinnar til þess að
plata sé væntanleg frá Green Day
á árinu.
Eiga nóg af
lögum á lager
Í GANG Búast má
við að ný plata
frá Green Day líti
dagsins ljós í ár eða
á næsta ári.
Bækur Halldórs Laxness
hafa selst í sjö til átta millj-
ónum eintaka. Þær hafa
verið þýddar á yfir fimm
tugi tungumála og gefnar
út í sex hundruð útgáfum
um allan heim. Sjálfstætt
fólk er enn mest selda bókin
eftir Íslending.
Mikla athygli vakti þegar Frétta-
blaðið greindi frá því að sjálfur
James Bond, Daniel Craig, hefði
gengið inn í bókabúð í smábænum
Oswestry í Shropshire-sýslu og
beðið sérstaklega um Sjálfstætt
fólk eftir Nóbelsskáldið Halldór
Laxness. Bókin var þá ekki til
en bóksalinn útvegaði sér hana
skömmu seinna og hyggst hafa
hana tilbúna handa Craig þegar
hann rekur inn nefið næst.
Valgerður Benediktsdóttir hjá
réttindastofu Forlagsins segir í
samtali við Fréttablaðið að þegar
bókin hafi komið út í Bandaríkj-
unum árið 1946 hafi hálf millj-
ón eintaka selst á tveimur vikum.
„Bókin kom líka út í stóru upplagi
á sínum tíma í ýmsum löndum, eins
og Sovétríkjunum sálugu, Kína og
Indlandi. Beinharðar sölutölur eru
hins vegar hvergi til enda langt um
liðið. Ég gæti skotið á að bókin hafi
selst í þremur til fjórum milljónum
eintaka en það er þó skot út í loft-
ið.“ Valgerður segir að Sjálfstætt
fólk sé mest selda bók eftir Íslend-
ing fyrr og síðar. Bækur Arnalds
Indriðasonar gætu þó farið að
skáka þeim titli á næstu árum. „Að
minnsta kosti þrjár bækur Arnalds
hafa rofið milljón eintaka múrinn;
Mýrin, Napóleonsskjölin og Grafar-
þögn. Napóleonsskjölin seldust til
að mynda í yfir einni milljón ein-
taka bara í Þýskalandi,“ segir Val-
gerður, en samkvæmt síðustu sölu-
tölum hefur Arnaldur selt ríflega
sjö milljónir eintaka.
Halldór er þó eflaust ennþá
viðförlasti rithöfundur Íslands
því bækur hans hafa verið þýdd-
ar yfir á tæplega fimmtíu tungu-
mál og komið út í á sjötta hundrað
Sjálfstætt fólk hefur selst í
fjórum milljónum eintaka
VÍÐLESIÐ NÓBELSSKÁLD
Bók Halldórs Laxness, Sjálfstætt fólk, hefur selst í
þremur til fjórum milljónum eintaka. Erfitt er hins vegar
að fá sölutölur staðfestar, þar sem hvergi er til heillegur
listi yfir seld eintök bóka Nóbelsskáldsins. Arnaldur
Indriðason hefur selt yfir sjö milljónir eintaka
en þrjár bækur hans hafa rofið milljón
eintaka múrinn. Sjálfstætt fólk er þó enn
mest selda bókin eftir Íslending.
Bækur Halldórs Laxness hafa verið
þýddar á yfir fimmtíu tungumál og
þá gefur breski útgáfurisinn Random
House bækur hans út í fimmtíu
löndum. Meðal tungumála sem Hall-
dór hefur verið þýddur yfir á eru:
Albanska
Armenska
Arabíska
Aserska
Bengalska
Esperanto
Hebreska
Hvít-rússneska
Kóreska
Moldóvska
Orija-mál, Indlandi
Úsbekíska
VÍÐFÖRULL
86 MILLJÓNIR DALA komu inn í kassann fyrstu sýningarhelgi gamanmyndarinnar The Hangover 2 með þeim Bradley Cooper, Zach Galifianakis og Ed Helms. Myndinni tókst næstum
því að slá met The Matrix: Reloaded yfir aðsókn á bannaðar myndir.
Framleiðendur sjónvarpsþátt-
arins Cougar Town, sem hefur
verið sýndur á Stöð 2, hafa í
hyggju að breyta nafni þáttar-
ins, finnst það vera útvatnaður
brandari. Þeir hafa biðlað til
aðdáenda um að koma með
tillögur að nýju nafni.
Cougar Town er nú á sínu
þriðja ári og skartar gömlu Fri-
ends-leikkonunni Courteney Cox
í aðalhlutverki. Framleiðendun-
um finnst nafnið ekki vera nógu
lýsandi fyrir efni þáttanna, en
þeir snúast að mestu
leyti um áfengis-
drykkju og ástir
miðaldra fólks í
einu af fjölmörgum
úthverfum Banda-
ríkjanna. „Ég próf-
aði Sunshine State
og Grown Ups en
þau nöfn voru of
lík nöfnum þátta
sem voru fyrir á
dagskrá,“ segir
Bill Lawrence,
einn af framleið-
endum þáttarins.
Vilja breyta
nafninu
ENDURNEFNA Cougar
Town verður endur-
nefndur þegar hann
snýr aftur í þriðja sinn.
Courteney Cox leikur
þó áfram aðalhlut-
verkið.
Catherine Hardwicke, leikstjóri
Twilight-myndanna, er ánægð
með að leikararnir Robert Pattin-
son og Taylor Lautner hafi verið
tilnefndir fyrir besta kossinn á
MTV-kvikmyndaverðlaununum.
Um er að ræða kossa þeirra og
leikkonunnar Kristen Stewart á
hvíta tjaldinu. „Kannski verð-
ur þetta jafntefli. Það væri
það besta í stöðunni,“ sagði
Hardwicke, sem síðast leikstýrði
myndinni Red Riding Hood.
Tilnefndir
fyrir kossa
v
Gríptu tækifærið
og græjaðu þig
upp fyrir bústaðinn.
Magnaðir miðvikudagar!
4GB minnislykill
fylgir öllum
netlyklaáskriftum
í dag
- sláttuvélar
Vesturhrauni 3 · 210 Garðabæ.
Sími 480-0000 · www.aflvelar.is
- sala
- varahlutir
- þjónusta