Fréttablaðið - 02.07.2011, Side 13

Fréttablaðið - 02.07.2011, Side 13
LAUGARDAGUR 2. júlí 2011 13 Formlegar viðræður Íslands við Evrópusambandið um hugsan- lega aðild hófust nú nýverið á ríkja- ráðstefnu. Þar voru teknir fyrir fjórir samningskaflar af 35 alls og þar af var umræðum lokið um tvo kafla. Áður hafði samningsafstaða íslenskra stjórnvalda verið mótuð í samráði við utanríkismálanefnd Alþingis. Fram undan er þó stremb- in vegferð þar sem tekist verður á um margvísleg grundvallaratriði og ríka hagsmuni. Umdeilt mál en sterkur grunnur ESB-aðild er umdeild hér á landi. Skoðanakannanir undanfarin ár hafa m.a. endurspeglað hversu umdeilt málið er en jafnframt leitt í ljós að afstaða þjóðarinnar breyt- ist frá einum tíma til annars. Engu að síður hefur núverandi stefna, að ljúka aðildarviðræðum og bera nið- urstöðuna undir þjóðina, átt miklu fylgi að fagna skv. könnunum. Ætti það að vera kappsmál bæði þeirra sem fyrirfram eru andsnúnir aðild að sambandinu og eins hinna sem eru aðild hliðhollir. Fyrir hinn stóra hóp þjóðarinnar sem hefur ekki gert upp hug sinn er brýnt að viðræðum verði lokið og niðurstað- an um kosti og galla liggi fyrir með óyggjandi hætti og á grunni henn- ar verði unnt að taka málefnalega afstöðu til málsins. Ísland mætir til þessara við- ræðna vel undirbúið og byggir þar á vandaðri vinnu fjölmargra, bæði fulltrúa ráðuneyta og stofnana en einnig og ekki síður ýmissa hags- munaaðila sem leggja mikilvægan skerf til góðrar undirstöðu. Einn- ig skiptir hér máli að Ísland hefur verið þátttakandi í evrópsku sam- starfi innan EES um langt árabil, notið þess ávinnings sem það býður upp á en um leið kostað því til sem samstarfinu fylgir. Aðalsamninga- nefnd Íslands og einstakir samn- ingahópar eru vel skipaðir færu og samviskusömu starfsfólki sem hefur það eitt að leiðarljósi að skila góðu verki og ná sem bestri samn- ingsniðurstöðu út frá íslenskum hagsmunum. Viðræður Íslands við ESB byggja þannig á sterkum grunni. Umræða í ójafnvægi Því miður hefur ESB-umræðan hins vegar verið á brauðfótum. Þar tíðkast hin breiðu spjótin, póli- tískur rétttrúnaður í hávegum hafður, upphrópanir og aðdrótt- anir gagnvart þeim sem hafa aðra skoðun eða vilja nálgast málið frá ólíku sjónarhorni. Samherjar tor- tryggðir. Eiginleg rökræða, þekk- ingaröflun og greining er gjarnan víðs fjarri. Úr ranni þeirra sem eru eindregnir stuðningsmenn aðildar heyrist gjarnan bábiljan um að aðild muni leysa hvern vanda þjóð- arinnar en úr öndverðri átt ber- ast formælingar um að aðild þýði endalok sjálfstæðis þjóðarinnar. Að mínu mati á hvorugt við rök að styðjast. Þjóðmálaumræðan þarf að dýpka og breikka í tengslum við ESB- álitamálið. Við þurfum að skoða til hlítar hvaða breytingar hafa orðið á Evrópusambandinu undanfarin 10-15 ár, frá því að vera „klúbbur“ nokkurra ríkra þjóða yfir í að vera umfangsmikill samstarfsvettvang- ur meirihluta Evrópuríkja, bæði þeirra sem vel standa og eins ann- arra sem verr eru sett. Ennfrem- ur þær breytingar sem felast í því að áhrif Evrópuþingsins hafa auk- ist á kostnað framkvæmdarvalds- ins og sömuleiðis þær hremmingar sem ganga yfir nokkur ESB-ríki og evrusvæðið. Um leið þarf að kryfja til mergjar hvaða leiðir eru færar fyrir íslenskt samfélag eftir efna- hagshrunið því aðstæður hér á landi hafa vissulega líka tekið mikl- um breytingum að undanförnu. Farsæl framtíð Mín afstaða er eindregið sú að við eigum að ljúka aðildarviðræðum við ESB, helst sem allra fyrst, og leggja okkur fram um að ná sem bestri samningsniðurstöðu. Á þann hátt getum við gengið úr skugga um hvað raunverulega felst í aðild, hvaða kostir fylgja henni og sókn- arfæri, en einnig hvaða gallar og fórnir eru aðild samfara, hvað ávinnst og hvað tapast. Þannig getur hver og einn lagt heildstætt mat á það hvort hann telur hags- munum þjóðarinnar til lengri tíma litið betur borgið utan eða innan Evrópusambandsins. Það skiptir okkur öll miklu máli að hvor leiðin sem þjóðin velur þegar hún tekur afstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslu verði Íslandi til farsældar. Ísland og ESB – leiðin fram undan ESB-aðild Árni Þór Sigurðsson formaður utanríkis- málanefndar Alþingis ÚR ERLENDUM LEIÐURUM 5 prósent eru of mikið Þegar allir frá Vinstri flokknum til Íhaldsflokksins eru sammála um hvað gera þarf mætti ætla að eitt- hvað sé annaðhvort kolrangt eða hárrétt. Allir krefjast niðurskurðar í fjárlögum ESB fyrir árin 2014 til 2020. En framkvæmdastjóri ESB, José Manuel Barroso, vill eyða. Það er stríðsástand á götum Grikklands. Í Evrópu leitar fólk örvæntingarfullt eftir vinnu sem ekki er að fá. Á Spáni, í Portúgal, á Írlandi og í Bretlandi hafa menn þegar bitið í hið súra epli og skera nú mikið niður. Kreppuaðgerð- irnar hafa þegar verið óheyrilega kostnaðarsamar og enn vitum við ekki hvaða útgjalda er að vænta í framtíðinni. Í slíku ástandi er bæði rangt og pólítískt ögrandi að leggja til 5 prósenta aukningu á fjárlögum. www.svd.se/opinion Úr leiðara Svenska Dagbladet Einkastríð á hafi nu Stjórnin hefur nú samþykkt að vopnaðir verðir megi vera um borð í skipum skráðum í Noregi. Ástæðan er sú að alþjóð- legum skipaferðum, þar á meðal norskum, stafar sífellt meiri ógn af sjóræningjum á Indlandshafi og í Adenflóa. Það hefur ekki verið auðvelt að taka þessa ákvörðun. www.aftenposten.no/meninger Úr leiðara Aftenposten www.harpa.is TÓ N LISTA R- OG RÁÐST EFN U H ÚSI Ð Í R EYKJAVÍK SUMARKVÖLD Í HÖRPU TÓNLEIKAR Í ELDBORG 8. júlí kl. 20.00 Einleikarar: Maxim Vengerov og Maria João Pires Stjórnandi: Maxim Vengerov Hljómsveit: St. Christopher hljómsveitin Beethoven: Rómansa í F-dúr Beethoven: Píanókonsert nr. 4 í G-dúr op. 58 Tchaikovsky: Serenaða op. 48 9. júlí kl. 20.00 St. Christopher hljómsveitin Stjórnandi: Donatas Katkus Verk eftir: Haydn, Ciurlionis, Elgar og Grieg 10. júlí kl. 20.00 Maria João Pires Franz Schubert: Sónata nr. 6 og Silungakvintettinn í A-dúr op. 114 ásamt Art Vivo strengjakvartettinum KLASSAPASSINN ÞRENNIR TÓNLEIKAR Á FRÁBÆRU VERÐI FÆST Í MIÐASÖLUNNI8.–10. JÚLÍ Einstakir tónlistarviðburðir! ÍS L E N S K A S IA .I S B L A 5 56 30 0 7/ 11

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.