Fréttablaðið - 02.07.2011, Page 29

Fréttablaðið - 02.07.2011, Page 29
 Sölufulltrúar Viðar Ingi Pétursson vip@365.is 512 5426 Hrannar Helgason hrannar@365.is 512 5441 SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700 www.hagvangur.is Framkvæmdastjóri Upplýsingar veitir: Þórir Þorvarðarson thorir@hagvangur.is Umsóknarfrestur er til og með 10. júlí nk. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is með ítarlegum upplýsingum um náms- og starfsferil ásamt kynningarbréfi eða sendist á netfangið thorir@hagvangur.is Reykjavík Excursions óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra til starfa. Leitað er að leiðtoga sem treystir sér og getur breytt fyrirtækinu úr rótgrónu fólksflutningafyrirtæki í öflugt alhliða ferðaþjónustufyrirtæki. Samstarfsfólkið er markmiðadrifið og fram- sækið og hefur mikinn áhuga á að taka þátt í breytingaferlinu. Starfssvið • Dagleg stjórnun og yfirumsjón með starfsemi fyrirtækisins heima og erlendis. • Frumkvæði að stefnumótun, þróun og áætlanagerð. • Skipulagning og þátttaka í öflugri markaðssetningu fyrirtækisins. • Samskipti við viðskiptavini og samstarfsaðila. • Önnur verkefni í samráði við stjórn. Reykjavik Excursions hf. – Kynnisferðir var stofnað árið 1968. Fyrirtækið starfrækir dagsferðir frá Reykjavík allt árið um kring auk þess að sjá um Flugrútuna í Flugstöð Leifs Eiríkssonar, hvataferðir, einstaklings- og hópferðir. Árið 2009 var Kynnisferðum skipt upp í tvö fyrirtæki, Kynnisferðir sem sjá um rúturekstur og Reykjavík Excursions sem sér um rekstur ferðaskrifstofu. Sameiginlegur starfsmannafjöldi er um 150 - 250 eftir árstíðum, árleg velta er um 2,5 – 3,0 milljarðar. Markmiðið er að stórefla ferðaskrifstofuna með öflugri markaðssetningu og miklum fjárfestingum. Menntun og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg. • Reynsla af stjórnunarstörfum er nauðsynleg. • Reynsla af erlendu markaðs- og kynningarstarfi. • Stjórnunar- og leiðtogahæfileikar með áherslu á frumkvæði, samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð. • Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg. • Reynsla af stjórnun og starfi í ferðaþjónustunni nýtist vel í þessu mikilvæga starfi.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.