Fréttablaðið - 02.07.2011, Side 33

Fréttablaðið - 02.07.2011, Side 33
LAUGARDAGUR 2. júlí 2011 5 Erum við að leita að þér? Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Dögg Ísaksdóttir, risaksdottir@actavis.com. Actavis hf. Reykjavíkurvegi 76-78 220 Hafnarfirði s 550 3300 f 550 3301 @ actavis@actavis.is w www.actavis.is Umsóknir óskast fylltar út á www.actavis.is, undir Störf í boði fyrir 10. júlí nk. Actavis er alþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu hágæðasamheitalyfja. Actavis hf. er eitt af dótturfyrirtækjum samstæðunnar og er framleiðslueining fyrirtækisins hér á Íslandi. Fyrirtækið er staðsett í Hafnarfirði og hjá okkur starfa um 350 starfsmenn, flestir á framleiðslu- og gæðasviðum. Störf í pökkunardeild Í pökkunardeild fer fram vélakeyrsla í kartona- og þynnupökkun, uppgjör eftir vinnslu og skjalfesting. Einnig tæknileg umsjón/aðstoð við uppsetningu auk breytinga og stillinga á pökkunarlínum. Unnið er á þrískiptum vöktum. Ef þú ert... hress og jákvæð/ur stundvís samviskusöm/samur og getur tileinkað þér nákvæm vinnubrögð verklagin/n með grunnþekkingu í ensku góð/ur í að vinna í hópi ...þá bjóðum við snyrtilegan og öruggan vinnustað fjölskylduvænt starfsumhverfi góðan starfsanda gott mötuneyti fræðslu og þjálfun iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðinga og lækni sem sinna heilsuvernd starfsmanna árlegan styrk til íþróttaiðkunar auk fræðslustyrks öflugt starfsmannafélag Framkvæmdastjóri Síðumúla 5, 108 Reykjavík Sími 511 1225 Fax 511 1126 www.intellecta.is Nánari upplýsingar um starfið veita Ari Eyberg (ari@intellecta.is) og Þórður S. Óskarsson (thordur@intellecta.is) í síma 511 1225. Umsóknarfrestur er til og með 11. júlí nk. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað. Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf á ensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfi viðkomandi í starfið. Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum framleiðir þang- og þaramjöl í háum gæðaflokki. Fyrirtækið er að stærstum hluta í eigu FMC BioPolymer (71%) og Byggðastofnunar (28%). Ársverk hjá fyrirtækinu sl. ár voru 14 auk starfa verktaka við þangslátt. Áætluð ársvelta er 375 milljónir kr. Afurðirnar eru að langmestu leyti fluttar út og m.a. nýttar til framleiðslu alginats, fóðurbætis, áburðar og snyrtivara. Rekstur Þörungaverksmiðjunnar hf. hefur gengið vel sl. ár og er fyrirhugað að efla hann enn frekar á komandi árum. Á Reykhólum er mikil náttúrufegurð og þar m.a. starfræktur gunnskóli, leikskóli, sundlaug og bókasafn. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu verksmiðjunnar www.thorverk.is Helstu verkefni • Dagleg framkvæmdastjórn með áherslu á öryggi og ábyrgð í framleiðslu, fjármál, starfsmannastjórnun, vöruþróun og dreifingu • Setning markmiða og stefnumótun til framtíðar í samvinnu við stjórn fyrirtækisins • Áhersla er lögð á að viðhalda góðum tengslum við eigendur fyrirtækisins, viðskiptavini og samfélagið Menntunar- og hæfniskröfur • Háskólamenntun á sviði verk-, viðskipta-, tæknifræði eða stjórnunar – eða sambærileg menntun • Reynsla af stjórnun í framleiðslufyrirtæki • Reynsla af öryggis- og gæðamálum • Áhersla er lögð á að viðkomandi hafi góða kunnáttu í ritaðri og talaðri ensku og íslensku • Viðkomandi þarf að vera framsækinn og sjálfstæður, sýna frumkvæði og hafa áræði til að takast á við krefjandi stjórnunarstarf hjá traustu og vel reknu fyrirtæki Stjórn Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra Á heimasíðu Intellecta, www.intellecta.is, er að finna nánari upplýsingar um starfið á ensku

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.