Fréttablaðið


Fréttablaðið - 02.07.2011, Qupperneq 51

Fréttablaðið - 02.07.2011, Qupperneq 51
LAUGARDAGUR 2. júlí 2011 23 FRAMHALD AF SÍÐU 22 rkulind. FRÉTTABLAÐIÐ/VALL ið í Leirvogstungu hér rétt við tún- fótinn,“ segir Guðmar og horfir yfir græn tún sem umbreytt hafa þessu olnbogabarni neyslusamfélagsins. „Hér eru tveir starfsmenn eingöngu í því að draga úr lyktinni sjö daga vikunnar. Til þess notum við sér- stakt ensím sem við dælum yfir sorpið en síðan höfum við komist að því að sjór dregur verulega úr lykt- inni þannig að við dælum yfir þetta tugum tonna af sjó á dag.“ Stríð eru ekki háð að kostnaðarlausu og segir Guðmar að þetta átak kosti þrjátíu milljónir en hann segir árangurinn ekki hafa staðið á sér. Annað stríð er háð á Álfsnesi og við annan vágest. Meindýraeyðir kemur reglulega til að skjóta varg- inn sem herjar á sorpið en á hverju ári eru mörg þúsund mávar drepnir. Starfsmenn á Álfsnesi láta ekki sitt eftir liggja í þessum bardaga. Vargfuglinn vildi náttúrulega fá sinn skerf af velmeguninni og árið 2008 lágu 8.500 fuglar í valnum. Vélamaður á staðnum segir að varg- urinn sé þó ekki vitlausari en svo að flestir láti sig hverfa um leið og þeir sjá bíl meindýraeyðisins nálgast. Skarngljúfrið mikla Mesti fnykurinn kemur frá bölv- uðu skarninu, eins og seyru, slógi, gori og öðrum lífrænum efnum. Sorpa lætur þó ekki deigan síga og nú er búið að sprengja tvö gljúfur inn í bergið á Álfsnesi. Þeim á síðan að loka með steinvegg við gljúfur- munnann. Þá er komin hin myndar- legasta hola því bergveggirnir eru um 14 metra háir. Loki verður síðan brugðið yfir holuna stóru en skarnið sett þar inn í gegnum rennu. Þann- ig verður hægt að afmarka lyktina og dæla gasinu inn í gashreinsistöð- ina þegar það hefur myndast en þá verður fnykminna. „Þú munt ekki vilja vera þarna niðri þegar þetta verður komið í gagnið,“ segir Guðmar og hlær við þar sem hann stendur og horfir ofan í gljúfrið. Tilhugsunin er svo skuggaleg að blaðamaður og ljós- myndari ákveða að drífa sig heim. Þegar sorpið er komið undir fold er borað í jarðveginn og gasinu sem myndast hefur dælt í sérstakri leiðslu í hreinsistöð sem stendur niðri við sjó. AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR Rizzoli & Isles How I Met Your Mother Seven Pounds Body of Lies When in Rome The Last Song Jumper Damages The Closer True Blood Cougar Town Sons of Anarchy Hot in Cleveland The Good Guys Off the Map frá þeim sem færðu okkur Grey’s Anatomy So You Think You Can Dance Vinsælasti þátturinn vestanhafs Grillskóli Jóa Fel Þú færð Stöð 2, Stöð 2 bíó og Stöð 2 extra frá aðeins 229 kr á dag allt um grillið í sumar ...OG HVAR SEM ER! HORFÐU HVENÆR SEM ER... færðu áskriftina upp í bústað þér að kostnaðarlausu Nýttu þér Stöð 2 frelsi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.