Fréttablaðið - 28.07.2011, Qupperneq 2
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR2
Kristján, eruð þið Greifar með
hjartað í brókinni?
„Ja, blindur er brókarlaus maður.“
Kristján Viðar Haraldsson er söngvari
Greifanna. Risavöxnum nærbrókum sem
þeir notuðu til að auglýsa útihátíð um
helgina, var stolið á dögunum.
Sólarsæla er frábær líkamsolía fyrir
útivistafólk og þá sem vilja fallegan
húðlit. Rík af næringarefnum og
vítamínum. Inniheldur náttúrulega
sólarvörn (SPF 4-5).
Nærandi morgunfrúarolía
er einstaklega mild og nærandi
líkamsolía fyrir viðkvæma og þurra
húð. Mjög góð fyrir barnshafandi
konur til varnar sliti.
Þú færð Sólarsæluna og
Nærandi morgunfrúarolíuna
frá Purity Herbs í Lyfjum & heilsu
Farðu vel með
húðina þína í sólinni
w
w
w
.b
le
kh
on
nu
n.
is
VEÐUR Veðurfræðingar eru ekki öfundsverðir
nú fyrir verslunarmannahelgina þegar öll spjót
standa á þeim en veruleg óvissa ríkir enn um
veðurhorfur næstu fjóra daga, að sögn Þorsteins
V. Jónssonar veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Því veldur að óvíst er hvort lægð, sem nú er
vestur í hafi, fer með anga sína yfir landið eður ei.
Hann hvetur því fólk til að vera við öllu búið hvar
sem það verður á landinu.
„Það er útlit fyrir að enginn landshluti sleppi við
vætu,“ segir hann enn fremur. „Hún verður líkleg-
ast á vestanverðu landinu á föstudag og laugardag
en færist síðan yfir austanvert landið á sunnudag
og mánudag.“ Þó segir hann nokkrar líkur á því að
Vestfirðir vökni ekki um verslunarmannahelgina.
„Það er heldur ekki ljóst hvernig vindurinn
verður en ég myndi búast við því að það verði
austanátt, ekki of sterk þó og þá hvössust hér
sunnanlands en annars er þetta mjög óljóst
ennþá,“ segir hann.
Útlit er fyrir að fólk á Norðausturlandi verði að
bretta niður ermarnar þegar líður á helgina. Þar
hefur nú verið bongóblíða síðustu daga og hitinn
farið jafnvel yfir tuttugu stig en gæti orðið um og
undir tíu stigum á sunnudag og mánudag. - jse
Veðurhorfur fyrir verslunarmannahelgina eru enn afar óljósar:
Líklegast munu allir vökna
FRÁ HÚSAFELLI Í FYRRA Hvar sem frómur flækist um þessa
verslunarmannahelgi er það líklega skynsamlegast að hafa
regngallann með eins og þetta fólk gerði í Húsafelli í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓLK Hanna Margrét Geirsdóttir
sjúkraliði keypti sér rafmagns-
vespu í fyrrasumar til að spara
bensínpeninga og fara vel með
umhverfið. Nú getur hún vart
ímyndað sér að nota einkabíl
nema í undantekningartilfellum.
Eiginmaður hennar og systir hafa
síðan fylgt í kjölfarið.
Fjölmiðlar hafa undanfar-
ið fjallað nokkuð um rafmagns-
vespur en bent hefur verið á að
óvissa sé um bótaskyldu komi
til þess að gangandi vegfarandi
slasist í rafmagnsvespuslysi.
Litlar rafmagnsvespur eru ekki
skráningarskyldar og því flokk-
aðar sem reiðhjól.
„Mér hefur fundist leiðinleg
þessi neikvæða umfjöllun um
rafmagnsvespurnar í fjölmiðlun
af því að ég er svo ánægð með
þetta. Ég held að þessi ferðamáti
sé mjög sniðugur fyrir marga þar
sem þetta er ódýrt og umhverfis-
vænt. Nú get ég varla hugsað mér
að nota bílinn nema í stórinn-
kaup eða þegar ég er með barna-
börnin,“ segir Hanna Margrét
og bætir því við að hún verði vör
við mikinn áhuga á fararskjótan-
um þar sem fólk stoppi hana hvar
sem hún er til að spyrjast fyrir
um hann.
Hanna Margrét keypti vespu í
ágúst í fyrra og hefur notað hana
óslitið síðan. Spurð hvort hún sé
jafn hentug að vetri til og á sumr-
in segir Hanna: „Það þarf auð-
vitað að klæða sig mun betur á
veturna. En ég notaði bara skíða-
gallann í fyrra þegar kaldast var
úti og þá var það ekkert mál. Það
eina sem maður þarf virkilega að
passa sig á er hálkan og ég mun
skoða það í vetur að setja á nagla.“
Hanna Margrét segir litla
vespu eins og þá sem hún á kom-
ast 30 til 40 kílómetra á einni
hleðslu. Passi hún sig á því að
hlaða hana alltaf milli ferða segist
hún komast hvert sem er á höfuð-
borgarsvæðinu fram og til baka.
Spurð hvernig henni datt þetta
í hug upphaflega svara hún: „Við
erum með einn heimilisbíl en það
er svolítið dýrt fyrir mig að vera
á honum í umferðinni. Þannig
að ég sá fyrir mér að geta spar-
að nokkra bensíntanka og þannig
fengið upp í verðið. Og það hefur
alveg gengið eftir.“ Hanna segist
að lokum hafa verið smeyk við
vespuna fyrst þegar henni datt
þetta í hug en segist fljótt hafa
komist að því að það væri ástæðu-
laust.
„Ég er mjög óklár í umferðinni
og ekkert sérstaklega ævintýra-
gjörn þannig að ég skoðaði þetta
vandlega áður en ég keypti hana.
Ég hef hins vegar komist að því
að þetta er ekki mikill vandi og
það má eiginlega segja að fyrst ég
get þetta þá geti þetta allir,“ segir
Hanna.
magnusl@frettabladid.is
Skiptu bílunum út og
þeysa um á vespum
Systurnar Hanna Margrét og Svala Geirsdætur hafa báðar svo til hætt notkun
einkabíls og fara nú um allt höfuðborgarsvæðið á rafmagnsvespum. Þær segja
ferðamátann ódýran og umhverfisvænan og leiðist neikvæð fréttaumfjöllun.
ÞRÍR VESPUEIGENDUR Hanna Margrét ásamt Svölu systur sinni og Arnbergi Þorvalds-
syni eiginmanni sínum. Þau nota öll litlar rafmagnsvespur. FRÉTTABLAÐIÐ/HAG
BRETLAND Bretar hafa vísað
starfsmönnum sendiráðs Líbíu
úr landi, þar sem þeir séu ekki
lengur réttmætir valdhafar í
landinu. Starfsmennirnir eru
fulltrúar
stjórnar Gad-
dafís.
William
Hague, utna-
ríkisráðherra
Bretlands,
bauð, á mið-
vikudaginn,
uppreisnar-
mönnum að til-
nefna fulltrúa
sína sem rétt-
mæta erind-
reka Líbíu-
stjórnar. „Sú ákvörðun sýnir
aukið lögmæti uppreisnarráðs-
ins og þann árangur sem það
hefur náð í að sameina Líbíu-
búa, hvar sem er í landinu,“
sagði í tilkynningu frá breska
utanríkisráðuneytinu. - kóp
Viðurkenna uppreisnarmenn:
Vísa mönnum
Gaddafís frá
KJARAMÁL Atvinnuflugmenn hjá
Icelandair samþykktu í gær nýjan
kjarasamning sem skrifað var
undir þann 20. júlí síðastliðinn.
224 greiddu atkvæði og sögðu 183
já, sem eru rúmlega 80 prósent
atkvæða, en 41 var mótfallinn
honum. Kjörsókn var 82 prósent.
Þann 11. júlí síðastliðinn höfn-
uðu atvinnuflugmenn samningi
sem þá lá á borði en aðeins þrjú
atkvæði bar á milli fylkinga þá.
Forsvarsmenn atvinnuflugmanna
hafa sagt menn hafa gert það
vegna ákvæða sem lúta að starfs-
öryggi en ekki vegna launakjara.
- jse
Atvinnuflugmenn:
Samþykktu
samninginn
STJÓRNLAGARÁÐ Frumvarp að nýrri stjórnarskrá
var samþykkt samhljóða á ráðsfundi stjórn-
lagaráðs í gær. Það verður síðan afhent Ástu
Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis á
morgun.
Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmála-
fræðingur sem sæti á í stjórnlagaráði, segir
mikilvægustu breytingarnar á stjórnskipulag-
inu vera þær að valdamiðjan verði flutt aftur
til Alþingis frá ríkistjórn og að kveðið sé á um
stóraukna aðkomu almennings að ákvarðana-
töku. Þá á hann við að samkvæmt frumvarpinu
geta 10 prósent atkvæðisbærra manna sett lög-
gjöf frá Alþingi í þjóðaratkvæðagreiðslu og eins
getur sami fjöldi komið fram með ný þingmál.
Hann segir að líta megi svo á að fyrsta íslenska
stjórnarskráin sé að líta dagsins ljós þar sem sú
fyrri sé fengin í arf frá Dönum.
Hann segir ennfremur að vinnan hafi verið
erfið. „Á vissum tímapunkti var ég meira að
segja viss um að þetta væri allt fyrir bí,“ segir
hann. „Reyndar tel ég að við höfum öll fengið
þessa tilfinningu en gæfan var sú að við fengum
hana ekki á sama tíma.“
Þegar búið var að kjósa um frumvarpið söng
stjórnlagaráðið „Ísland ögrum skorið“. „Við
vitum vel að Salvör Nordal er formaður stjórn-
lagaráðs en það er engum blöðum um það að
fletta að Ómar Ragnarsson er formaður þjóð-
lagaráðs,“ segir Eiríkur kankvís að lokum. - jse
Stjórnlagaráð var einhuga og samþykkti samhljóða frumvarp að nýrri stjórnarskrá í gær:
Fyrsta íslenska stjórnarskráin að fæðast
FRÁ FUNDI STJÓRNLAGARÁÐS Frumvarpið
var samþykkt samhljóða en sú var tíðin, segir
Eiríkur Bergmann, að stjórnlagaráð var ekki svo
samhljóða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNSÝSLA Reykjavíkurborg
getur verið beitt dagsektum og
greiðslum úr jöfnunarsjóði sveit-
arfélaga hætt ef þriggja ára fjár-
hagsáætlun borgarinnar verður
ekki kynnt innan fjögurra vikna.
Innanríkisráðuneytið sendi bréf
þess efnis í vikunni. Frestur til
að skila fjárhagsáætlun rann út
í febrúar. Ögmundur Jónasson
innanríkisráðherra segir að verið
sé að yfirfara stöðu allra sveitar-
félaga í landinu og enn sem komið
er hafi einungis Reykjavík fengið
formlega viðvörun.
Ástæða seinkunarinnar er sú
að enn er verið að yfirfara fjár-
mögnun um málefni fatlaðra, sam-
kvæmt Regínu Ástvaldsdóttur,
staðgengli borgarstjóra. - sv
Reykjavíkurborg fær viðvörun:
Hafa ekki birt
fjárhagsáætlun
NOREGUR Kreppan í Evrópu hefur
gert það arðvænlegra að stunda
götuvændi í Ósló. Fjöldi þeirra
sem stunda vændi í Ósló hefur
aukist um 23 prósent frá því í
fyrra og er orðinn svipaður og
árið 2007, að því er greint er frá
á fréttavef Aftenposten.
Liv Jessen, sem stýrir Pro
Senteret, miðstöð sem aðstoðar
þá sem stunda vændi, segir að
samband hafi verið haft við
811 manns í ár. Jessen segir
atvinnumarkaðinn sunnar í Evr-
ópu erfiðan og einnig fyrir þá
sem stunda vændi. Þess vegna
hafi þeim fjölgað í Noregi.
Norðmenn hafi ráð á að kaupa
þessa þjónustu. - ibs
Afleiðingar evrukreppu:
Aukið götu-
vændi í Ósló
MUAMMAR
GADDAFÍ
Yfirlýsing vegna Noregs
Ungir jafnaðarmenn (UJ) sendu frá
sér yfirlýsingu í gær vegna árásanna
í Noregi. Þar segir meðal annars að
nauðsynlegt sé að raddir ungs fólks
heyrist hærra nú en áður. UJ sá sér
ekki fært að mæta á athöfn í Útey.
SAMFÉLAGSMÁL
SPURNING DAGSINS