Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 24
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR24
timamot@frettabladid.is
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts og útfarar
elskulegrar móður okkar, tengdamóður
og ömmu,
Svövu Símonardóttur
Höfða, Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Höfða fyrir góða
umönnun og Rb.st.nr.5, Ásgerðar fyrir ómetanlega
aðstoð vegna útfararinnar.
Guð blessi ykkur öll.
Þórir Sigurðsson Ingibjörg Elísabet
Þóroddsdóttir
Tómas Ævar Sigurðsson Kristjana Ragnarsdóttir
Viktor Grímar Sigurðsson Anna Steingerður
Björnsdóttir
Sigríður Selma Sigurðardóttir Ólafur Ágúst Símonarson
Sigrún Sigurðardóttir Hinrik Helgi Hallgrímsson
Sesselja Magnúsdóttir
Tómas Friðjónsson
og ömmubörn.
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Baldvin Sigurðsson
frá Eyvindarhólum, A-Eyjafjöllum,
lést á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Klausturhólum,
9. júlí sl.
Útför hans fór fram í kyrrþey 23. júlí.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
Haukur Heiðdal
Sigurðsson
frá Hrófá í Steingrímsfirði,
Lækjartúni 16 á Hólmavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 11. júlí sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Bryndís Hauksdóttir Þorvaldur Garðar Helgason
Guðni Örn Hauksson Hrafnhildur L. Þorleifsdóttir
Hugrún Rós Hauksdóttir Ásgeir Gunnarsson
Agnes Ýr Hauksdóttir Ágúst Örn Grétarsson
barnabörn og langafabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Bjarney Sigríður
Guðmundsdóttir
frá Hælavík,
sem lést á Droplaugarstöðum að kvöldi föstudagsins
15. júlí sl., verður jarðsungin frá Fella- og Hólakirkju
þriðjudaginn 2. ágúst nk. Athöfnin hefst kl. 13.00.
Kristján Á. Ögmundsson Elín Þórjónsdóttir
Lúðvík B. Ögmundsson Guðrún Sigurðardóttir
Sigurbjörg G. Ögmundsdóttir Snæbjörn Ó. Ágústsson
Jóhann S. Ögmundsson
Kristinn B. Ögmundsson Auður Hreinsdóttir
Þorteinn H. Ögmundsson Sigríður E. Hafsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsku faðir okkar, tengdafaðir,
afi og bróðir,
Sævar Marinó Ciesielski
lést 12. júlí sl. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 2. ágúst kl. 13.00.
Júlía Marinósdóttir Steinar M. Skúlason
Hafþór Sævarsson
Sigurþór Sævarsson
Victor Blær Jensen
Lilja Rún Jensen
afabörn og systkini hins látna.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Elísabetar Hildar
Markúsdóttur
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hrafnistu
í Kópavogi fyrir yndislega umönnun þann tíma sem
hún bjó þar.
Kristinn Ásbjörnsson Danuta Miekiszewska
Bjarni Hauksson Anna Sobolewska
Margrét Stefanía Ragnarsdóttir Jónas Jóhannesson
Jónatan Ragnarsson
Hugrún Ragnarsdóttir
Ingveldur Ragnarsdóttir
Úlfar Ragnarsson Linda Björk Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Erlingur Kristinn
Stefánsson
járnsmiður,
Tröllaborgum 13, Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut sunnudaginn 24. júlí.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju miðvikudaginn
3. ágúst kl. 13.00.
Andrés Erlingsson Gyða Sigurlaugsdóttir
Guðbrandur Erlingsson Jessika Larsson
og barnabörn
Fimmtíu ár eru um þessar mundir liðin
frá því að Gísli Helgason, blokkflautu-
skáld og lagahöfundur, fékk sína fyrstu
blokkflautu og hóf að sækja blokkflautu-
tíma hjá Oddgeiri Kristjánssyni í Vest-
mannaeyjum, þar sem hann er alinn
upp. Þá eru 45 ár frá því að hann fór
í tónleikaferð um landið með tvíbura-
bróður sínum, Arnþóri Helgasyni, sem
spilaði á hljómborð, og héldu þeir 130
tónleika tvö sumur aðeins fjórtán og
fimmtán ára gamlir.
„Af því tilefni ákvað ég að gefa út sér-
stakan afmælisdisk sem hefur að geyma
eyja- og þjóðhátíðarlög og koma honum
út fyrir Þjóðhátíð,“ segir Gísli. Disk-
urinn heitir Út við sund og eyjar. Hann
hefur að geyma níu lög og eru þau flest
útsett þannig að blokkflautan nýtur sín
vel í alls kyns stílbrigðum: poppi, rokki,
ballöðum og þjóðlagastíl. Eitt þekktasta
lag Gísla, Kvöldsigling, er í instrumen-
tal-útsetningu á disknum auk þess sem
þar er að finna nýja útgáfu lagsins Ég
veit þú kemur, en það var fyrsta lagið
sem Gísli lærði á blokkflautu. Titil-
lagið, Út við sund og eyjar, í flutningi
Ólafs Þórarinssonar (Labba í Mánum)
sem stjórnar flestum upptökum, útsetur
og spilar með í nokkrum lögum, hefur
aldrei verið gefið út frá því að það var
þjóðhátíðarlag Vestmannaeyja árið
1994, en það var að sögn Gísla vinsælt
á sínum tíma. „Það leggst auk þess vel
í þá sem hafa heyrt það á disknum,“
segir Gísli og nefnir fleiri lög á diskn-
um. „Edgar Smári Atlason syngur lagið
Vorið okkar sem var samið fyrir Þjóðhá-
tíðina 1984 og Helgi Hermannson syng-
ur Peyjaminningu, sem var þjóðhátíðar-
lagið mitt árið 1979.“
Gísli hefur áður gefið út tvær hljóm-
plötur og þrjá diska með eigin lögum og
annarra, með og án söngs.
vera@frettabladid.is
GÍSLI HELGASON: GEFUR ÚT AFMÆLISDISK MEÐ EYJALÖGUM
Fimmtíu ár frá fyrsta tímanum
AFMÆLISDISKUR KEMUR ÚT FYRIR ÞJÓÐHÁTÍÐ Gísli er eina blokkflautuskáld Íslands og gefur út disk með eigin og annarra lögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HUGO CHAVEZ, FORSETI VENESÚELA, er 57 ára í dag.
„Ég er sannfærður um að leiðin að nýjum og betri heimi sé
ekki í átt að kapítalisma heldur sósíalisma.“
Merkisatburðir
1540 Hinrik VIII. Englandskonungur kvænist sinni fimmtu
eiginkonu, Catherine Howard.
1741 Ítalska tónskáldið Antonio Vivaldi deyr (f. 1678).
1750 Tónskáldið Jóhann Sebastian Bach deyr í Leipzig í
Þýskalandi.
1821 Perú lýsir yfir sjálfstæði frá Spáni.
1895 Brú yfir Þjórsá við Þjótanda vígð að viðstöddu fjöl-
menni. Brúin var notuð í rúmlega hálfa öld.
1943 Bretar sprengja Hamborg í seinni heimsstyrjöldinni
með þeim afleiðingum að eldstormur myndast sem
verður 42 þúsund þýskum borgurum að bana.
1957 Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd vígð.
1960 Norðurlandaráð heldur þing í fyrsta sinn á Íslandi.
Ráðið var stofnað árið 1952.
1974 Um fjórðungur þjóðarinnar mætti á þjóðhátíð sem
haldin var á Þingvöllum í tilefni 1.100 ára afmælis
Íslandsbyggðar.
2005 Írski lýðveldisherinn bindur enda á þrjátíu ára langa
vopnaða baráttu á Norður-Írlandi.
57