Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 13
13
Kanadíska sjávarútvegsfyrirtækið Cooke Aquaculture
festi fyrir helgi kaup á spænska fiskeldis-fyrirtækinu
Culmarex. Íslenska ráðgjafarfyrirtæki Markó Partners
var Cooke til ráðgjafar við kaupin.
Markó Partners er tveggja ára gamalt fyrirtæki sem
sérhæfir sig í ráðgjöf til sjávarútvegsfyrirtækja. Fram-
kvæmdastjóri Markó Partners er Kjartan Ólafsson sem
leiddi áður sjávarútvegsteymi Glitnis.
„Þetta verkefni staðfestir í okkar huga að þessi
íslenska sérfræðiþekking getur verið útflutningsvara.
Við höfum haft trú á því lengi og það hefur skilað sér í
góðri verkefnastöðu hjá okkur,“ segir Kjartan.
Kaup Cooke Aquaculture á Culmarex voru að sögn
Kjartans viðskipti upp á rétt tæpa 10 milljarða króna
en Culmarex er eitt stærsta fiskeldisfyrirtæki Spánar.
Markó Partners hefur haft nóg fyrir stafni undan-
farin misseri. Nýverið ráðlagði fyrirtækið bandaríska
fjárfestingarfyrirtækinu Paine & Partners við kaup á
norska fyrirtækinu Scanbio Marine Group. Meðal ann-
arra fyrirtækja sem Markó Partners hefur starfað með
má nefna Highliner Fine Foods, Clearwater Seafoods
og Samherja. - mþl
Íslenskt fyrirtæki veitti ráðgjöf við stór alþjóðleg viðskipti sjávarútvegsfyrirtækja:
Selja þekkingu á sjávarútvegi
MARKÓ PARTNERS Nafni fyrirtækisins var nýverið breytt en
það hét áður KE-Partners.
Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið
Maritech hefur hlotið verðlaun-
in „Samstarfsaðili ársins 2011“
hjá Microsoft Íslandi. Verðlaun-
in eru veitt þeim sem taldir eru
hafa skarað fram úr í þróun og
kynningu á Microsoft-tengdum
lausnum á síðasta ári.
Fyrirtækið var heiðrað ásamt
fleiri samstarfsaðilum Micro-
soft á heimsvísu, fyrir yfirburði í
þróun og útfærslu á þjónustumið-
uðum lausnum byggðum á tækni
frá Microsoft. Verðlaun voru veitt
í ýmsum flokkum og sigurvegar-
ar valdir úr hópi fleiri en þrjú
þúsund samstarfsaðila frá öllum
heimshornum.
„Það er mikill heiður að hljóta
þessi verðlaun annað árið í röð.
Ég trúi því að lykillinn að árangri
og vexti Maritech sé sú mikla
áhersla sem lögð hefur verið á
lausnir fyrir sjávarútveginn og
viðskiptagreind, en Maritech
hefur lagt mikla vinnu í þróun á
þessum sviðum,“ segir Jón Heið-
ar Pálsson, sviðsstjóri sölu- og
markaðssviðs Maritech.
Maritech er sjálfstæður sölu-
aðili Microsoft Dynamics NAV.
Fyrirtækið var stofnað árið 1995
og þjónustar um 500 viðskiptavini
um allan heim.
Þá hefur Maritech þróað fjölda
sérkerfa sem eru samhæfð lausn-
um Microsoft Dynamics NAV.
- mþl
Fyrirtækið valið úr hópi rúmlega þrjú þúsund samstarfsaðila:
Microsoft verðlaunar Maritech
SKRIFSTOFUR MARITECH Maritech þjónustar um 500 viðskiptavini um allan heim.
ERU LÍKURNAR á því að eitthvert evruríkjanna hætti í mynt-
samstarfinu á þessu ári samkvæmt spámarkaðinum Intrade.
Tekjur Marels á öðrum ársfjórð-
ungi ársins námu 162 milljónum
evra, sem er 19 prósenta aukning
samanborið við sama tímabil fyrir
ári og 5 prósent samanborið við
fyrri ársfjórðung. Tekjurnar jafn-
gilda 26,9 milljörðum króna.
Rekstrarhagnaður var 9,2 pró-
sent af veltu á ársfjórðungnum og
10,2 prósent á fyrri hluta árs sem
er í samræmi við markmið fyrir-
tækisins um rekstrarhagnað upp á
10-12 prósent af veltu á árinu.
Pantanabók fyrirtækisins heldur
áfram að styrkjast og nema fyrir-
liggjandi pantanir 176,3 milljónum
evra í lok fjórðungsins samanborið
við 125,3 milljónir í fyrra. - mþl
Annar ársfjórðungur:
Góð afkoma hjá Marel
THEO HOEN, FORSTJÓRI MAREL
13%
Umsjón: nánar á visir.is
M-ið,
m.siminn.is
Skannaðu kóðann eða
sendu sms-ið M í 1900
og fáðu M-ið beint
í símann þinn
Skannaðu hérna
til að sækja
Meira Ísland
B
arcode Scanner
SAMSUNG GALAXY S
79.900 kr.
SAMSUNG GALAXY S II
109.900 kr.
Ertu á leið
til Eyja?
6.953 kr.
á mánuði dreift á
12 mánuði *
9.453 kr.
á mánuði dreift á
12 mánuði *
1.000 kr.
inneign á mán.
í 12 mán. fylgir.
1.000 kr.
inneign á mán.
í 12 mán. fylgir.
Símalán-afborgun: Símalán-afborgun:INNEIGN INNEIGN
Síminn er styrktar- aðili Þjóðhátíðar
2011
Þessir glæsilegu símar frá Samsung eru frábærir ferðafélagar
hvert sem ferðinni er heitið um helgina. Skoðaðu Þjóðhátíðar-
dagskrána, kíktu á veðurspána, horfðu á fréttirnar eða finndu
nálægasta apótekið.
1.000 króna inneign á mán. í 12 mán.
Notaðu 1.000 króna inneignina sem fylgir með öllum þessum
símum til að fara oftar á Netið í símanum, hringdu oftar og
sendu fleiri SMS. Upplifðu meira Ísland með Símanum!**
Með öllum þessum símum fylgir mánaðaráskrift af Tónlist.is
þannig að þú hefur aðgang að milljónum laga, hvort sem er í
tölvu eða símanum þínum.**