Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 4
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR4
þúsund sómal-
ísk börn þjást
af vannæringu
og er óttast að sú tala geti
hækkað upp í 25 þúsund.
MATVÆLAHJÁLP SÞ
18
GENGIÐ 27.07.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
221,6984
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
114,38 114,92
187,35 188,27
165,37 166,29
22,187 22,317
21,324 21,450
18,242 18,348
1,4702 1,4788
183,96 185,06
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Í Fréttablaðinu á þriðjudag var Andri
M. Ingólfsson ranglega sagður for-
stjóri Primavera Travel Group. Hið
rétta er að hann er forstjóri Primera
Travel Group.
Myndin sem birtist í blaðinu í gær
með spurningu dagsins var af Bjart-
eyju Sveinsdóttur en viðmælandinn
var Guðný Gígja Skjaldardóttir sem er
með Bjarteyju í dúettinum Ylja. Beðist
er velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
UMHVERFISMÁL Mælingar á saur-
gerlum við strandlengju Reykja-
víkur sýna að sjórinn er hreinn
og vel innan þeirra marka sem
sett eru í reglugerðum. Vatns-
gæði sjávar eru mæld á ellefu
stöðum frá apríl til október.
Ástandið í ár hefur verið best
í Nauthólsvík og Skerjafirði, þar
sem engir saurgerlar hafa fund-
ist.
Það sem af er sumri hafa mæl-
ingar sýnt að magn saurgerla
hefur nær alltaf verið mjög lítið
eða ekkert. Í einstaka tilvikum
hefur mælst lítið magn af saur-
gerlum, en aldrei verulegt magn.
- bj
Sjór við Reykjavík hættulaus:
Engir saurgerlar
í Nauthólsvík
SJÓSUND Sjórinn við strandlengju
Reykjavíkur er nægilega hreinn til að
stunda sjóböð. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
27°
23°
21°
25°
22°
17°
17°
25°
24°
28°
30°
33°
26°
25°
24°
23°Á MORGUN
Fremur hægur vindur
víða um land.
LAUGARDAGUR
Fremur hægur vindur
víða um land.
14
16
1214
14
13
21
16
13 14
12
12
15
14
16
12
15
13
13
13
85
8
5
8
3
3
4
7
7
8
7 15
ÓVISSA er í spám
fyrir Verslunar-
mannahelgina
enn sem komið er.
Óvissan fellst aðal-
lega í því hversu
mikil úrkoman
verður og hversu
mikið sólskin.
Veður verður milt
og fremur hægur
vindur víðast hvar.
Nú er bara að
fylgjast vel með
spánum.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Tveir fyrrverandi starfs-
menn Kaupþings voru í gær dæmd-
ir í Héraðsdómi Reykjaness til að
endurgreiða kúlulán sem þeir höfðu
fengið fyrir hlutabréfum í Kaup-
þingi. Hvor um sig þarf að greiða á
sjöundu milljón króna auk dráttar-
vaxta.
Starfsmenn Kaupþings áttu þess
kost að kaupa hlut í félaginu á ára-
bilinu 2005 til 2008 og var þeim
lánað fyrir þeim kaupum. Stjórn
Kaupþings felldi í september 2008
niður persónulegar ábyrgðir starfs-
manna á lánunum og takmark-
aði tjón þeirra af hruni bréfanna
við bréfin sjálf, sem urðu verðlaus
nokkrum dögum síðar þegar bank-
inn féll.
Þrotabú Kaupþings krafðist rift-
unar á niðurfellingu á ábyrgðum
starfsmanna svo hægt verði að inn-
heimta skuldirnar.
Í dómum héraðsdóms frá því í
gær segir að ábyrgð starfsmann-
anna á því að endurgreiða lánin hafi
ekki verið takmörkuð, þó fullyrt
hafi verið að starfsmenn ættu ekki
að bera skaða af því að taka lánin
þegar þau hafi verið veitt. Þar er
jafnframt bent á að mögulegt hafi
verið að selja bréfin með heimild
stjórnar, en því hafi starfsmennirn-
ir ekki óskað eftir.
Aðrir dómar héraðsdóms í sam-
bærilegum málum hafa fallið á sama
veg. - bj
Héraðsdómur riftir ákvörðun Kaupþings um að fella niður persónulegar ábyrgðir:
Starfsmenn skulda milljónir
SKULDA Tveir fyrrum starfsmenn
Kaupþings þurfa að greiða ríflega sex
milljónir. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
SÓMALÍA, AP Matvælahjálp Sam-
einuðu þjóðanna (WFP) hóf í gær
dreifingu á matvælum til bág-
staddra á þurrkasvæðunum í aust-
anverðri Afríku.
WFP telur að um 11,3 milljónir
manna séu hjálparþurfi á landa-
mærum Sómalíu, Keníu og Eþíópíu,
en þar hefur orðið uppskerubrest-
ur og búfé drepist í verstu þurrk-
um sem orðið hafa á svæðinu í sex-
tíu ár.
Alls fluttu WFP um tíu tonn af
næringarbættu hnetumauki til
Mogadisjú, höfuðborgar Sómalíu, í
gær, en sá skammtur ætti að nægja
til að hjálpa um 3.500 vannærðum
börnum í einn mánuð.
Ástandið er verst í Sómalíu þar
sem borgarastyrjöld hefur hamlað
hjálparstarfi. Skæruliðahópurinn
al-Shahab hefur til dæmis meinað
WFP að starfa á svæðum sem lúta
þeirra stjórn. Rauði krossinn hefur
þó fengið að athafna sig á öllum
svæðum.
Hundruð þúsunda sem eru
hjálparþurfi í suðurhluta Sómalíu
hafa flúið heimkynni sín og leitað
til höfuðborgarinnar eða suður yfir
landamærin til Keníu þar sem eru
nú fjölmennustu flóttamannabúðir
heims.
Chaliss McDonough, talskona
WFP, segir að fleiri sendingar séu
fyrirhugaðar á næstu vikum þar
sem mikið ríði á. Um átján þús-
und sómalísk börn þjást þegar af
vannæringu og er óttast að sú tala
geti hækkað upp í 25 þúsund innan
tíðar.
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna
(UNICEF) hefur einnig hafið bólu-
setningarátak á flóttamannasvæð-
unum og vonast til að geta bólu-
sett yfir 300 þúsund börn á næstu
tveimur vikum til að koma í veg
fyrir að smitpestir líkt og bólusótt
og mislingar brjótist út, en börnin
munu einnig fá vítamín og ormalyf.
Sameinuðu þjóðirnar hafa sett
sér það takmark að safna 180 millj-
örðum króna til hjálparstarfsins á
næstu 12 mánuðum, en söfnunar-
átak meðal almennings hér á landi
hefur gengið vonum framar.
Eins og fram kom í Fréttablaðinu
í gær hafa tugir milljóna þegar
safnast hjá UNICEF á Íslandi,
Rauða krossinum, Barnaheill og
Hjálparstarfi kirkjunnar.
Í tilkynningu frá UNICEF í gær
kom fram að hátt í nítján milljón-
ir hefðu safnast til styrktar mál-
efninu og alls hefðu hátt í sjö þús-
und einstaklingar látið fé af hendi
rakna.
Sú upphæð jafngildir nær 300
þúsund skömmtum af næringar-
bættu hnetumauki fyrir vannærð
börn.
Enn er tekið við framlögum og
má finna upplýsingar um styrktar-
símanúmer á heimasíðum ofan-
greindra samtaka og stofnanna.
thorgils@frettabladid.is
SÞ dreifir matvælum til
hungraðra barna í Sómalíu
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna hóf í gær loftflutninga með matvæli handa vannærðum börnum í
Sómalíu. Rúmar 11 milljónir manna eru hjálpar þurfi. Þúsundir Íslendinga hafa styrkt hjálparstarfið.
Í SÁRRI NEYÐ Hin fimm ára Farhiya Abdulkadir er meðal þeirra þúsunda barna sem búa nú við mikinn skort á þurrkasvæðunum í
Austur-Afríku. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú hafið flutning á matvælum til vannærðra barna í Sómalíu FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglu
hefur leitt í ljós að kveikt var í
einbýlishúsi á Patreksfirði sem
skemmdist illa í bruna aðfaranótt
mánudags. Húsið var mannlaust
þegar eldur var borinn að því.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Vestfjörðum telst
málið upplýst þó rannsókn þess
haldi áfram. Fjórir ungir menn
hafa réttarstöðu sakborninga í
málinu.
Miklar skemmdir urðu á hús-
inu, og er það talið ónýtt eftir
brunann. Engan sakaði. - bj
Kveikt í húsi á Patreksfirði:
Fjórir ungir
menn grunaðir