Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 44
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR32 32 menning@frettabladid.is Reykholtshátíðin var um helgina. Hátíðin er helguð kammertónlist og er alltaf haldin um þetta leyti sumars. Hátíðin átti 15 ára afmæli og ég fór á afmælistónleikana, sem voru lokatónleikar hátíðarinnar. Venjulega er gaman að koma á þangað. Þegar veðrið er gott er hægt að ganga út á verönd með kaffibolla í hléinu og svo má líka bregða sér niður í kjallara í sal safnaðarheimilisins og skoða sýn- inguna. Að vísu er ekki mikið um sýningargripi. En vissulega má lesa um ritstörf, menntun, eign- ir og höfuðból, siglingar, notkun hverahita – og líka heiðna menn- ingu, enda bjó Snorri Sturluson í Reykholti. Segja má að það hafi verið hálf- gerðar fornminjar á tónleika- skránni. Það voru verk eftir Brahms og Tsjajkovskí, löngu horfin tónskáld, sem eru þó allt- af lifandi á meðan verk þeirra eru flutt. Svo voru líka aðeins yngri tónskáld, hið fyrsta á dagskránni hinn norski Geir Tveitt, sem lést fyrir þrjátíu árum. Og það var nafni hans og samlandi, Geir Bot- nen, sem spilaði á píanó. Verkið heitir Dans sólguðsins, mjög fjörlegt, nánast manískt og Botnen lék það með miklum til- þrifum, þótt sjálfur flygillinn hafi ekki hljómað vel. Ég verð að segja að ég dáðist að honum bara fyrir að vera þarna. Hryllilegu atburð- irnir í Noregi köstuðu skugga sínum á flutninginn. Að vera Norð- maður fjarri heimahögum sínum á slíkri stundu getur ekki verið auð- velt. En Botnen stóð sig með stakri prýði. Sömu sögu er að segja um Eleg- íuna eftir Gabríel Fauré (sem var sögð eftir Grieg í fréttum Stöðv- ar 2 um kvöldið). Þar lék Botnen ásamt Norðmanninum Audun Sandvik á selló. Hann hafði fal- legan tón og ríka tilfinningu fyrir inntaki tónlistarinnar. Fínleg blæ- brigði í leiknum – lítil smáatriði, sögðu ótal margt í þessari vönduðu túlkun. Sem maður kemur þó ekki orðum að. Á eftir Elegíunni var Serenaða í C-dúr op. 10 eftir Dohnány. Þar léku á strengjahljóðfæri Sigrún Eðvaldsdóttir, Ásdís Valdimars- dóttir og Michael Stirling. Það var glæsilega mótaður, nákvæmur og kraftmikill flutningur. Svipaða sögu er að segja um són- ötukafla í c-moll eftir Brahms sem Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikari og Ástríður Alda Sigurðardótt- ir píanóleikari spiluðu. Þetta er ekki með því dýpsta sem Brahms samdi, en túlkunin var að minnsta kosti snyrtileg, lifandi og innileg. Eins og áður segir hljómaði flyg- illinn þó illa. Bassinn var ósköp litlaus og grunnur og hljómurinn almennt hvellur og leiðinlegur. Ég held að það sé nauðsynlegt að kaupa nýjan flygil, ef standardinn á að vera viðunandi á þessari hátíð í framtíðinni. Eftir notalegan kaffibolla úti á verönd í hléinu var komið að seinni hluta tónleikanna. Aðeins eitt (en mjög langt) verk var á dagskránni. Það var Souvenir de Florence eftir Tsjajkovskí, stórbrotin tónlist. Hún er að vísu dálítið yfirborðsleg, en samt glæsileg, með spennandi framvindu og alls konar tilvísun- um í ítalska tónlist. Flutningurinn, sem var í höndum Auðar, Ásdísar, Sandvik og Stirlings, auk Pálínu Árnadóttur og Guðrúnar Árna- dóttur, var frábær. Allar nótur voru á sínum stað, samspilið var í fullkomnu jafnvægi og túlkunin þrungin ástríðum. Það gerist ekki betra! Steinunn Birna Ragnarsdóttir hefur stjórnað Reykholtshátíðinni frá upphafi og henni hefur farist það vel úr hendi. Auður Hafsteins- dóttur hefur nú tekið við og byrj- unin lofar góðu um framhaldið. Þær tvær léku saman í upphafi tónleikanna Sicilenne eftir Mariu Theresiu von Paradis. Það var fal- legt augnablik. Megi Reykholtshá- tíðin vaxa og dafna um ókomna tíð. Jónas Sen Niðurstaða: Glæsilegir tónleikar með fullt af skemmtilegri tónlist. Flygillinn í Reykholti er þó ekki nógu góður. LIFANDI FORNMINJAR GLÆSILEGIR TÓNLEIKAR Afmælistónleikar Reykholtshátíðar heppnuðust vel að mati Jónasar Sen. MYND/GUÐLAUGUR ÓSKARSSON Hjördís Frímann myndlistarkona opnar mál- verkasýningu í Herberginu í Kirsuberjatrénu í dag klukkan 17. Sýningin ber nafnið Fortíð- arþrá – endurunnin verk. Sýningin samanstendur af fígúratífum málverkum með fortíðarþrá, en Hjördís er þekkt fyrir ævintýramyndir sínar sem líkja eftir raunveruleikanum. Ásamt þeim sýnir hún vel valin eldri verk, prentuð á striga. Hjördís lauk myndlistarnámi frá Boston árið 1986 og hefur starfað sem myndlistar- kona allar götur síðan. Hún er fædd og búsett á Akureyri og var sýningin Fortríðarþrá upp- haflega í Listagilinu á Akureyri í maí. Verslunin Kirsuberjatréð er á Vesturgötu 4 og er rekin af tíu listamönnum. Sýningar- rýmið Herbergið er í versluninni og hefur verið notað fyrir ýmsar sýningar listamanna og hönnuða. Sýningin stendur til 15. ágúst og er opin alla virka daga frá klukkan 10 til 19, á laug- ardögum frá 10 til 17 og á sunnudögum frá 13 til 17. - hþt Fígúratíf málverk í Herberginu FORTÍÐARÞRÁ Hjördís sýnir fígúratíf málverk með fortíðarþrá í Her- berginu í Kirsuberjatrénu. Tónlist ★★★★ Reykholtshátíð Blönduð tónlist með ýmsum flytjendum á Reykholtshátíðinni. ÓPERUTÖFRAR Í MIÐGARÐI Efnt verður til óperutónleika í Miðgarði í Skagafirði á laugardaginn klukkan 20.30. Þar munu söngvararnir Helga Rós Indriðadóttir sópran, Sigríður Aðalsteinsdóttir mezzósópran, Gissur Páll Gissurarson tenór, Ágúst Ólafsson barítón og Karlakórinn Heimir flytja töfrandi tóna úr heimi óperunnar við meðleik sjö ungra hljóðfæraleikara sem kalla sig Bergmálshópinn 2011. Stjórnandi er Guðmundur Óli Gunnarsson. Alþjóðlegt orgelsumar Douglas Brotchie orgelleikari og Einar Clausen tenór koma fram á hádegistónleikum í Hallgríms- kirkju í dag klukkan 12. Á efnis- skránni er fjölbreytt tónlist eftir Saint-Saëns, Jón Leifs, Langlais og fleiri. Christoph Schoener, kirkjutón- listarstjóri við Hauptkirche St. Michaelis í Hamborg, og einn af fremstu organistum Þýskalands, skemmtir síðan gestum Hall- grímskirkju laugardaginn 30. júlí og sunnudaginn 31. júlí. Hann hefur um árabil átt góðu gengi að fagna sem konsertorganisti og hefur leikið á tónleikum um alla Evrópu, í Ísrael og í Bandaríkj- unum. Á tónleikum helgarinnar leikur Schoener verk eftir Bach, Alain, Liszt og Guilmant. Tónleikar laugardagsins hefj- ast kl. 12 og tónleikar sunnudags- ins kl. 17. 1 3 5 7 9 2 4 6 8 10 Það sem aldrei gerist - kilja Anne Holt Ég man þig - kilja Yrsa Sigurðardóttir Sokkaprjón Guðrún S. Magnúsdóttir Kortabók MM - 2011 Örn Sigurðsson Íslenskur fuglavísir - nýr Jóhann Óli Hilmarsson METSÖLULISTI EYMUNDSSON SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT 20.07.11 - 26.07.11 Grillað Grillbók Völla og félaga Íslenska vegahandbókin 2010 - Ýmsir höfundar Nemesis - kilja Jo Nesbø Rauðbrystingur - kilja Jo Nesbø Little Big Book About Iceland Sigurgeir Sigurjónsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.