Fréttablaðið - 28.07.2011, Side 8
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR8
Litlu munaði að lögreglumenn
hefðu skotið Anders Behring Brei-
vik til bana í stað þess að reyna
að handtaka hann. Yfirmaður sér-
sveitar lögreglunnar greindi frá
þessu í gær. Hann sagði lögregl-
una hafa óttast að Breivik hefði
sprengjubelti á sér. Hann gafst
hins vegar strax upp þegar lög-
regla kallaði á hann, kastaði frá
sér vopnunum og mætti lögreglu-
mönnum með hendur á lofti.
Ekkert hefur enn komið fram
sem bendir til annars en að norski
hryðjuverkamaðurinn hafi verið
einn að verki í árásunum í Noregi.
Lögreglan gerði sprengjuefni
upptækt á býli Breiviks í gær, þar
sem hann gerði sprengjuna sem
sprakk í Ósló.
Ódæðismaðurinn hefur hafist
handa við að semja ræðu í fang-
elsinu þar sem hann dvelur, að
sögn verjanda hans. Hann fékk
blað og penna í klefa sinn og skrif-
ar aðallega á ensku. Hann vonast
til að geta flutt ræðuna – væntan-
lega þegar réttarhöldin hefjast.
Jens Stoltenberg, forsætisráð-
herra Noregs, sagði í gær að eftir
hryðjuverkaárásirnar væri Nor-
egur vissulega breytt land.
Hann vonast til þess að breyt-
ingin verði hins vegar sú að Nor-
egur verði enn opnara og umburð-
arlyndara samfélag en áður. Hann
sagði vel mögulegt að hafa opið
samfélag en jafnframt öruggt.
Gera verði greinarmun á því að
hafa öfgakenndar skoðanir, sem
sé löglegt að hafa, og þess að
reyna að koma þeim skoðunum
á framfæri með ofbeldi, sem sé
ólöglegt. Forsætisráðherrann
fundaði með leiðtogum annarra
flokka í gær og hélt blaðamanna-
fund að því loknu. Þar var til-
kynnt að nefnd yrði stofnuð til
að rannsaka árásirnar tvær. Það
væri mikilvægt að fá yfirsýn yfir
það hvað gerðist þennan dag, hvað
var vel gert og hvað ekki.
Einnig var greint frá því að
ríkið muni borga útför þeirra sem
létu lífið í hryðjuverkunum sem
og kostnað við minningarathafnir.
Ekki verður um að ræða jarðar-
farir á vegum ríkisins. Þá munu
þeir sem lifðu af hryðjuverkin
geta sótt um bætur og aðstoð.
„Ekkert af því sem við ákváð-
um í dag mun færa okkur aftur
þá sem létust í Útey og í stjórnar-
hverfinu, en við vonum að þess-
ar aðgerðir auk annars sem gert
verður seinna, muni hjálpa til við
að gera erfiða tíma aðeins auð-
veldari,“ sagði Stoltenberg.
Lögreglan hefur haldið áfram
að birta nöfn hinna látnu. Í gær
voru þrettán ný nöfn gefin upp,
en það verður gert á hverjum degi
þar til borin hafa verið kennsl á
alla. Fjölmiðlar hafa greint frá
fleiri nöfnum en lögreglan gerir
það ekki fyrr en búið er að bera
kennsl á líkin og láta alla ættingja
vita. thorunn@frettabladid.is
Mikil ánægja ríkir með Jens Stoltenberg forsætisráð-
herra Noregs. Samkvæmt könnun norska dagblaðsins
Verdens gang telja 94 prósent að Stoltenberg hafi staðið
sig vel eða mjög vel síðan hryðjuverkaárásirnar voru
gerðar síðastliðinn föstudag.
Prófessorinn Anders Todal Jenssen segir í norskum
fjölmiðlum að slíkar vinsældir séu fáheyrðar. 80 pró-
sent aðspurðra sögðust mjög ánægð með forsætisráð-
herrann, 76 prósent sögðust ánægð með konunginn og
74 prósent með krónprinsinn.
Jenssen segir að Stoltenberg hafi staðið sig almennt
vel í mjög óvenjulegum aðstæðum. Fólki hafi þótt að
hann hafi verið við stjórnvölinn, dregið úr óvissu og
sýnt hluttekningu sem tekið var eftir. Orð hans um
opnara samfélag, meira lýðræði og samstöðu hafi smit-
að út frá sér og verið rétt orð á réttum tíma.
Aðrir sérfræðingar segja að Stoltenberg muni rata
í sögubækurnar fyrir einstaka framgöngu. Hann sé í
raun orðinn landsfaðir Norðmanna. - þeb
Könnun Verdens gang staðfestir almenna ánægju með forsætisráðherra Noregs:
94% ánægð með Stoltenberg
Um fimmtíu þúsund manns hafa skráð sig á Facebook-síðu til stuðn-
ings móður og fjölskyldu hryðjuverkamannsins Anders Behring
Breivik. Hópurinn stækkar stöðugt.
Móðir hryðjuverkamannsins og þrjú hálfsystkini hans hafa öll
flúið heimili sín eftir árásirnar.
Upphafsmaðurinn Adam Bjørhovde Manaf segir að til að byrja
með hafi hann ekki haft neina samúð með fjölskyldu Breiviks. Það
hafi svo breyst. „Allt landið var fullt af kærleika, en ég heyrði ekki
um neinn sem sýndi þeim nokkurn kærleika eða samúð.“ Fjölskylda
mannsins eigi auðvitað um mjög sárt að binda, þau séu einnig
fórnarlömb hryðjuverkamannsins.
Þá hefur einnig verið stofnuð stuðningssíða fyrir verjanda
mannsins, Geir Lippestad. - þeb
Tugþúsundir Norðmanna:
Styðja fjölskyldu Breiviks
Fastus ehf. | Síðumúla 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Fyrir börn frá 6 mánaða - 5 ára
Hægt að leggja saman og taka með
Verð frá
16.900
Barnasæti
STOLTENBERG Norðmenn eru ánægðir með það hvernig for-
sætisráðherrann hefur höndlað hörmungarnar. NORDICPHOTOS/AFP
Töldu Breivik vera með sprengjubelti
Lögreglumenn sem handtóku fjöldamorðingjann í Útey töldu hann vera með sprengjubelti. Litlu munaði að hann yrði skotinn.
Sprengjuefni var gert upptækt á býli hans í gær. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að hann hafi verið einn að verki.
Blómasalar í Ósló hafa orðið
uppiskroppa með rósir eftir minn-
ingarathafnir síðustu daga. Heilu
göturnar í borginni eru eitt stórt
blómahaf.
Rósirnar kláruðust
FÓRNARLAMBA MINNST Norðmenn hafa undanfarið minnst fórnarlamba hryðjuverkanna í Útey og Ósló. Minningarathafnir hafa verið haldnar og blómum komið fyrir á opinberum stöðum. Mikil sorg ríkir í landinu en
einhugur virðist vera um að láta hörmungarnar ekki buga samfélagið. Jens Stoltenberg forsætisráðherra þykir hafa staðið sig vel í eftirmálum hryðjuverkanna. NORDICPHOTOS/AFP
HRYÐJUVERKAÁRÁS Í NOREGI