Fréttablaðið - 28.07.2011, Síða 11

Fréttablaðið - 28.07.2011, Síða 11
FIMMTUDAGUR 28. júlí 2011 11 ÍS LE NS KA SI A. IS A RI 55 77 5 07 /1 1 arionbanki.is – 444 7000 Hvað skiptir þig máli? Það skiptir máli að nýta fj ármuni sína á sem hagkvæmastan hátt. Þú gætir: Greitt niður yfi rdráttinn Greitt inn á lán Lagt fyrir í varasjóð Komdu til okkar í næsta útibú og fáðu góð ráð um hvernig er best að ráðstafa þeim peningum sem þú færð frá skattinum. Við tökum vel á móti þér. Áttu von á endurgreiðslu frá skattinum? VÍSINDI Riddarar og hermenn í þungum herklæðum eins og tíðk- uðust á sextándu öld eyddu meira en tvöfalt meiri orku í að hreyfa sig en óvarðir menn samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð var í Leeds-háskóla á Bretlandi. Vísindamennirnir segja þetta fyrstu rannsóknina á áhrifum þess að vera brynvarinn í bar- daga. Brynjur sem best bryn- vörðu hermennirnir klæddust vógu 30 til 50 kíló og vörðu allan líkamann. Brynjur hafa einnig bein áhrif á öndun. Þeir sem fóru í bardaga umvafðir málmi önduðu grynnra og mæddust fyrr í bardaga. - bj Rannsaka á gamlar verjur: Bardagarnir erfiðir í brynju BRYNVARINN Áreynslan á hlaupabrett- inu er talsvert meiri í fullum herklæðum en stuttbuxum og bol. MYND/LEEDS HÁSKÓLI SLYS Ungur smiður lenti í því óhappi að skjóta sjálfan sig í fót- inn í orðsins fyllstu merkingu, að því er fram kemur á Skessu- horni. Hann var að vinna með nagla- byssu á þaki á sveitabæ í Borgar- firði þegar hann skaut sig óvart í fótinn með þeim afleiðingum að hann sat fastur við þakið um tíma. Þegar búið var að koma honum til hjálpar var hann fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur til frekari skoðunar. - kh Ungur smiður í Borgarfirði: Negldi sig fast- an við húsþak HEILBRIGÐISMÁL Aðsetur Land- læknisembættisins flyst á Bar- ónsstíg 47, þar sem Heilsuvernd- arstöðin í Reykjavík var áður til húsa, þann 2. ágúst næstkomandi. Með flutningunum sameinast á einum stað starfsemi Land- læknisembættisins og starfsemi fyrrum Lýðheilsustöðvar, sem nú hefur verið sameinuð embættinu. Um leið og Landlæknisembættið fær nýtt aðsetur við Barónsstíg verður einnig breyting á skipu- lagi starfseminnar sem hefur verið í undirbúningi frá því í upp- hafi árs 2010. Fagsvið embætt- isins verða fjögur ásamt einu stoðsviði og skrifstofu landlækn- is. - jss Flytur í heilsuverndarstöðina: Landlæknis- embættið flutt GAMLA HEILSUVERNDARSTÖÐIN Mun hýsa embætti landlæknis. DÓMSMÁL Sakamaður skal framseldur til Póllands, samkvæmt dómi Hæsta- réttar. Maðurinn sem um ræðir á eftir að afplána refsingu sem hann var dæmdur til í heimalandi sínu fyrir lík- amsárásir og hylmingu. Samkvæmt gögnum málsins er um að ræða þrjá dóma fyrir líkamsárásir, þar af tvo fyrir meiri háttar líkamsárásir. Í tveimur tilvikum var dæmt að hann hefði framið líkamsárásirnar í félagi við aðra. Í fjórða dómnum var hann sakfelldur fyrir hylmingu. Samtals var maðurinn dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Pólsk yfirvöld höfðu krafist þess að maðurinn yrði framseldur til föður- landsins, svo að hægt væri að láta hann afplána refsingu sína. Innanríkisráð- herra tók þá ákvörðun í júní síðastliðn- um að fallast á kröfuna, en Héraðsdóm- ur Reykjavíkur felldi þá ákvörðun úr gildi. Dómurinn lagði meðal annars til grundvallar að langur tími sé liðinn frá því að maðurinn braut af sér, auk þess sem hann hafi verið búsettur hér í fimm ár. Þá sé hann í sambúð og eigi barn með sambýliskonu sinni, auk þriggja fósturbarna. Hæstiréttur felldi úrskurð héraðs- dóms úr gildi og þar með stendur ákvörðun innanríkisráðherra. - jss Hæstiréttur staðfestir ákvörðun innanríkisráðherra: Sakamaður skal framseldur HÆSTIRÉTTUR Felldi úrskurð héraðsdóms úr gildi.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.