Fréttablaðið - 28.07.2011, Side 12
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR12 12
hagur heimilanna
Rúmlega 500 fyrirspurnir um húsaleigumál hafa bor-
ist Neytendasamtökunum það sem af eru þessu ári. Í
maí síðastliðnum gerði velferðarráðuneytið sérsakan
þjónustusamning við Neytendasamtökin um að þau
tækju að sér upplýsingagjöf og ráðgjöf fyrir leigjend-
ur íbúðarhúsnæðis. Undanfarna þrjá mánuði hefur
langmest verið spurt um þennan málaflokk af öllum
þeim málaflokkum sem koma til kasta Neytendasam-
takanna, að því er Hildigunnur Hafsteinsdóttir, lög-
fræðingur samtakanna, greinir frá.
„Fyrirspurnum um húsaleigumál hefur fjölgað
smátt og smátt frá því að Leigjendasamtökin voru
lögð niður en við fórum ekki að skrá þessar fyrir-
spurnir fyrr en árið 2009. Þá voru þær um 200. Í fyrra
voru fyrirspurnirnar rúmlega 400 en nú í lok júlí eru
þær orðnar rúmlega 500. Það er ljóst að þörfin er allt-
af að aukast.“
Málin sem koma inn á borð samtakanna eru af
öllum toga. „Leigjendur hafa samband bæði fyrir og
eftir samningsgerð. Þeir spyrja hvort leiguverð sé
eðlilegt og hvað beri að varast. Eftir að samningur
er gerður leita þeir til Neytendasamtakanna vegna
deilna út af ástandi íbúðarhúsnæðisins, viðhaldi og
rekstrarkostnaði. Auk þess fáum við fjölda fyrir-
spurna vegna uppsagna samninga.“
Hildigunnur segir erfitt að svara því hvað sé eðli-
legt leiguverð. „Það er erfitt að meta það. Það liggja
ekki fyrir tölur um raunverulegt leiguverð. Þær tölur
sem helst eru til byggja á könnunum sem við höfum
gert og svo neysluviðmiði velferðarráðuneytisins.
Mikill munur er þó á þessum tölum. Sveitarfélögin
vinna væntanlega tölur upp úr þinglýstum samning-
um þeirra sem sækja um húsaleigubætur en vitaskuld
sækja ekki allir um slíkar bætur.“
Að sögn Hildigunnar er erfitt að gera sér fulla
grein fyrir því hversu margir eru á leigumarkaði.
„Markaðurinn er ekki vel kortlagður en svo virðist
þó sem fleiri leiti nú á leigumarkað en oft áður.“
Hún segir alls ekki alla þinglýsa leigusamningum
auk þess sem jafnvel munnlegir húsaleigusamning-
ar séu gerðir. „Það má þó ef til vill sjá ákveðnar vís-
bendingar um fjölgun leigjenda af fjölda þinglýstra
samninga sem Þjóðskrá heldur utan um. Árið 2010 var
10.413 húsaleigusamningum þinglýst en árið 2005 var
5.229 samningum þinglýst.“ ibs@frettabladid.is
Um 500 fyrirspurnir
um húsaleigumál
Langmest spurt um húsaleigumál af þeim málum sem koma til kasta Neytenda-
samtakanna. Leigumarkaðurinn illa kortlagður, að sögn lögfræðings samtakanna.
Til að naglalakk endist betur er
gott að væta neglurnar með ediki
áður þær eru lakkaðar. Setjið edik í
bómullarhnoðra og vætið hverja nögl
fyrir sig. Látið svo neglurnar þorna áður
en naglalakkið er borið á. Þetta ætti að lengja
endingartíma naglalakksins.
GÓÐ HÚSRÁÐ Edik á neglurnar
Betri ending á naglalakkinu
Spurning er hvort nóg sé að þakka vikapilti sem ber þungar ferðatöskur upp á
hótelherbergi með vingjarnlegum orðum eða hvort greiða eigi honum þjórfé.
Þetta fer að miklu leyti eftir því í hvaða landi ferðalangurinn er, samkvæmt
upplýsingum fararstjóra ferðaskrifstofunnar Spies.
Á Spáni tíðkast að gefa vikapiltum 1 evru fyrir hverja tösku sem þeir bera.
Herbergisþernum eru gefnar 5 evrur á viku og hárgreiðslukonan fær 1 evru
í þjórfé. Leigubílstjórar fá ekkert þjórfé. Ekki þarf að gefa þjórfé sé aðeins
drukkinn 1 kaffibolli á veitingastað. Annars er þjórféð í hlutfalli við upphæð
reikningsins.
Í Grikklandi er til dæmis miðað við 10 prósent af upphæðinni. Þar er gert ráð
fyrir að herbergisþernur fái 5 til 10 evrur fyrir vikuna og vikapiltar 1 evru á tösku.
Hárgreiðslukonur fá ekkert þjórfé og ekki heldur leigubílstjórar.
■ Þjónusta
Mismunandi væntingar um þjórfé
LEIGUMARKAÐUR Erfitt er að gera sér fulla grein fyrir hversu
margir eru á leigumarkaði, að því er lögfræðingur Neytenda-
samtakanna segir. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AF 753.022 FARÞEGUM sem fóru um
Keflavíkurflugvöll í fyrra voru á leið til Þýskalands.
Breytingagjald í Herjólf er 500 krónur. Konu, sem hafði samband við Neytenda-
samtökin og greint er frá á vef þeirra, þótti undarlegt að þurfa að greiða slíkt
gjald þegar Eimskip breytti sjálft áætlun ferðar hennar. Konan sagðist hafa
heyrt af fleiri dæmum um að viðskiptavinir hefðu verið rukkaðir um breytinga-
gjald í slíkum tilfellum.
Neytendasamtökin höfðu samband við Eimskip og lögðu fram fyrirspurn.
Telja samtökin að breytingagjöld eigi ekki rétt á sér nema viðskiptavinurinn óski
sjálfur eftir að breyta miðanum. Fengust þau svör frá Eimskipi að mistök hefðu
átt sér stað. Neytendasamtökin hvetja fólk til að vera vel vakandi fyrir þessu.
■ Samgöngur
Breytingagjald í Herjólf er 500 krónur
54.377
SAMSUNG MINI
27.900 kr.
SAMSUNG GIO
39.900 kr.
SAMSUNG ACE
54.900 kr.
siminn.is
2.620 kr.
á mánuði dreift á
12 mánuði *
3.620 kr.
á mánuði dreift á
12 mánuði *
4.870 kr.
á mánuði dreift á
12 mánuði *
1.000 kr.
inneign á mán.
í 12 mán. fylgir.
1.000 kr.
inneign á mán.
í 12 mán. fylgir.
1.000 kr.
inneign á mán.
í 12 mán. fylgir.
Símalán-afborgun: Símalán-afborgun: Símalán-afborgun:INNEIGN INNEIGN INNEIGN
*Ef greitt er með kreditkorti er hægt að dreifa eftirstöðvunum vaxtalaust á allt að 12 mánuði. Greiðslugjald er 295 kr./mán.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
7
5
4
3
**Gildir meðan birgðir endast.