Fréttablaðið - 28.07.2011, Page 31
GLERAUGU
FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011
Kynningarblað
Börn
Heilsa
Tíska
Fréttir
Fróðleikur
Þegar velja skal gleraugu
fyrir börnin er mikilvægt
að foreldrar séu meðvitaðir
um það sem er nauðsynlegt
við valið. Gleraugun mega
ekki vera of þung og ættu
ekki að móta andlit
barnsins um of.
Einfaldleikinn bestur
„Það sem ég legg áherslu á við
foreldra er að barnagleraugu séu
ekki eingöngu keypt vegna þess
að þau séu merkt sérstöku vöru-
merki sem er í uppáhaldi hjá
barninu,“ segir Kjartan Krist-
jánsson, sjónfræðingur og eig-
andi Optical Studio verslana.
„Frekar eiga þau að vera þægi-
leg fyrir barnið, létt og brotaþol-
in sem er stór þáttur. Þá mega
gleraugun ekki bera andlitið of-
urliði í of þykkum og dökkum
tónum heldur er betra að hafa
einfaldleikann að leiðarljósi. Öllu
máli skiptir að gleraugun trufli
ekki barnið í öllu sínu atgervi til
dæmis við leik, hlaup og snöggar
hreyfingar og þá segir sig sjálft
að þyngdin skiptir gríðarlegu
máli. Þau verða að vera létt en
um leið mjög sterk.“
Kjartan segir að boðið sé upp
á þriggja ára ábyrgð án skilyrða
á umgjörðum. „Sem þýðir að ný
umgjörð er afgreidd ef umgjörð-
in brotnar eða fer í sundur. Slíkt
skiptir miklu máli fyrir foreldra
sem þurfa að sjá börnum fyrir
gleraugum frá unga aldri og fram
eftir aldri.“
Lindberg, skrúfulausar umgjarðir
Paul-Jörn Lindberg er löngu orðinn
heimsfrægur fyrir sína einstöku
hönnun á gleraugnaumgjörðum, en
í meira en 30 ár hefur hann þróað
gleraugnaumgjörð sem gæti verið í
senn léttasta og sterkast gleraugna-
umgjörð í heimi. Lindberg Kid/
Teen umgjörðin er sex sinnum
léttari en hefðbundnar umgjarð-
ir og vegur aðeins 0,01% af þyngd
6 ára barns. Umgjörðin er skrúfu-
laus en gerð úr títanvír sem snú-
inn er saman og er hún því um leið
sveigjanleg og sterk. Fyrir yngstu
börnin eru gleraugun sérsmíðuð í
þeirri stærð sem hentar barninu.
Lindberg hefur hlotið fjölda al-
þjóðlegra hönnunarviðurkenninga
fyrir hönnun sína en Kjartan segir
að með framleiðslu sinni vilji Lind-
berg koma því til skila með jákvæð-
um formerkjum til foreldra að ekk-
ert sé nógu gott fyrir börnin þeirra.
Optical Studio hefur í meira en
20 ár verið umboðs- og söluaðili
fyrir Lindberg umgjarðir á Íslandi.
Gott orðspor á gleraugnamarkaðin-
um er ekki síst vegna þessara frá-
bæru gleraugnaumgjarða og starfs-
fólks Optical Studio sem leggur alúð
sína í að veita sem besta þjónustu.
Kjartan Kristjánsson segir að barnagleraugu eigi að vera þægileg fyrir börnin. MYND/ANTON
HEIMSFRÆG BARNAGLERAUGU
Nýtt frá
LINDBERG
Einstakar
gleraugnaumgjarðir
fyrir börn
– 3 ára ábyrgð –