Fréttablaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 48
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR36
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Þó að Amy Winehouse hafi aðallega komist í fréttirnar undanfarið
vegna ófara sem rekja má til stjórnlausrar fíkniefnaneyslu þá var mér
samt brugðið þegar ég frétti af fráfalli hennar á laugardaginn. Og ég
varð dapur. Amy var einstaklega hæfileikarík tónlistarkona. Platan
hennar, Back to Black, hefur elst mjög vel. Maður sækir hana aftur og
aftur í plötuskápinn, sem er meira en hægt er að segja um sumar af
þeim plötum sem vöktu mesta lukku hjá manni þegar þær komu út.
Amy var frábær söngkona og góður laga- og
textahöfundur. Island gaf út fyrstu plötuna
hennar, Frank, síðla árs 2003 þegar Amy var
bara tvítug. Frank var flott frumsmíð sem
gaf fögur fyrirheit um það sem á eftir kom.
Tónlistin var bland af poppi, r&b og djassi
og söngröddin minnti á Billie Holiday. Á
annarri plötunni, fyrrnefndri Back to Black,
var grunnurinn hinsvegar sígild sálartónlist
frá sjöunda áratugnum. Platan var að stórum
hluta tekin upp undir stjórn Marks Ronson
og án þess að vilja taka nokkuð frá Amy, sem
samdi lögin og textana og söng, þá átti Mark
stóran þátt í velgengni hennar. Það má segja
að Back to Black sé gott dæmi um þá töfra
sem geta orðið til þegar hæfileikaríkur tón-
listarmaður hittir rétta upptökustjórann.
Amy nærðist á mótlæti og þjáningu í listsköpun sinni. Hennar
bestu lög voru samin í kjölfar erfiðrar lífsreynslu – sambandsslita og
ofneyslu. Rehab, You Know I‘m No Good og Love Is a Losing Game
eru góð dæmi. En mótlætið braut hana niður að lokum. Amy hafði ekki
sent frá sér nýtt efni í fimm ár þegar hún féll frá. Hún var að vísu búin
að taka upp efni sem nægir á plötu, en það er ekki á hreinu hversu
langt þær upptökur voru komnar eða hversu ánægð hún var með þær.
Sorglegt.
Hvíl í friði Amy. Ég var virkilega að vona að þú mundir ná þér upp úr
ruglinu.
Einstaklega hæfileikarík
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Havarí, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
TÓNLISTINN
Vikuna 21. - 27. júlí 2011
LAGALISTINN
Vikuna 21. - 27. júlí 2011
Sæti Flytjandi Lag
1 Coldplay .........................Every Teardrop Is A Waterfall
2 Of Monsters And Men ................................. Little Talks
3 Páll Óskar ................................................... La Dolce Vita
4 Bubbi Morthens............................................Háskaleikur
5 Steven Tyler ........................................... It Feels So Good
6 Adele ................................................ Set Fire To The Rain
7 Berndsen & Bubbi ...........................................Úlfur Úlfur
8 BlazRoca, Friðrik Dór, Páll Óskar ....Reykjavíkurnætur
9 Aloe Blacc ................................................ I Need A Dollar
10 Steindi JR / Bent / Matti Matt .........Gull af mönnum
Sæti Flytjandi Plata
1 Helgi Björns & reiðmenn .........Ég vil fara uppí sveit
2 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
3 Steindinn okkar.......................... Án djóks ... samt djók
4 Bubbi ..............................................................Ég trúi á þig
5 Jón Jónsson .................................................Wait For Fate
6 Björgvin & Hjartagosarnir ...........................Leiðin heim
7 Ýmsir ................................................................. Pottþétt 55
8 Valdimar ............................................................Undraland
9 Björk .....................................................................Gling gló
10 Rökkurró ..................................................... Í annan heim
SÁRT SAKNAÐ Nýjasta
tölublað NME er helgað Amy
Winehouse.
> Í SPILARANUM
Snorri Helgason - Wintersun
Coral - Leopard Songs
En Garde - Puzzle Muteson
Björgvin og Hjartagosarnir - Leiðin heim
Sænska hljómsveitin Peter, Bjorn og John er ein
þeirra sem eiga lag á plötu sem gefin hefur verið út
stafrænt í tilefni tíu ára afmælis Is This It með The
Strokes. Platan nefnist Stroked: A Tribute To Is This
It.
Hin áhrifamikla Is This It kom fyrst út í Ástralíu
30. júlí 2001 en í Bretlandi tæpum mánuði síðar. Á
meðal annarra flytjenda á plötunni eru Owen Pallett,
sem hefur unnið með Arcade Fire, og hljómsveitin
Real Estate. „Það sem heillaði mig þegar ég heyrði
fyrst í The Strokes var að ég hafði aldrei áður hlustað
á rokktónlist komast eins nálægt klassíkinni. Tónlist
þeirra er svo ótrúlega skipulögð og yfirveguð,“ sagði
Pallett.
Af The Strokes er það að frétta að sveitin fór í
hljóðver á dögunum til að taka upp sína fimmtu plötu.
Hún mun fylgja eftir Angles, sem kom út fyrr á þessu
ári við mjög góðar undirtektir.
Fagna tíu ára afmæli plötunnar Is This It
HEIÐRA THE STROKES Peter, Bjorn og John heiðra The Strokes á nýrri plötu.
Rappararnir Jay-Z og
Kanye West hafa samein-
að krafta sína og gefa út
plötuna Watch the Throne
innan skamms. Tónlistar-
unnendur bíða spenntir
eftir útkomunni.
Rappararnir Jay-Z og Kanye West
gefa út plötuna Watch the Throne
á iTunes 8. ágúst. Fjórum dögum
síðar kemur hún í plötubúðir í
föstu formi. Tónlistaráhugamenn
um heim allan hafa beðið spennt-
ir eftir útgáfunni enda Jay-Z og
Kanye sannkallaðir rapprisar sem
standa á hátindi frægðar sinnar
um þessar mundir.
Samstarfið kemur í sjálfu sér
ekki á óvart. Ferill þeirra beggja
hefur alla tíð verið samtvinnað-
ur og til að byrja með var Kanye
hálfgerður lærlingur hjá Jay-Z.
Kanye steig fram á sjónarsviðið
sem upptökustjóri hjá Roc-A-Fella
Records, þar sem Jay-Z er einn
eigenda. Þar vakti hann athygli
fyrir vinnu sína við The Blueprint,
sjöttu hljóðversplötu Jay-Z. Kanye
varð í framhaldinu eftirsóttur
upptökustjóri en hélt þó áfram að
starfa fyrir Jay-Z og tók upp fjög-
ur lög á næstu plötu hans, auk þess
að syngja í einu lagi.
Kanye ákvað að hefja eigin rapp-
feril og gaf út sína fyrstu plötu,
The College Dropout, hjá Roc-A-
Fella Records og síðan þá hafa
allar plötur hans komið þar út.
Jay-Z var einn af gestasöngvurum
á The College Dropout, rétt eins
og á næstu plötu Kanye, Late Reg-
istration, og á þeirri nýjustu, My
Beautiful Dark Twisted Fantasy.
Á móti var Kanye gestasöngvari í
tveimur lögum á síðustu plötu Jay-
Z, The Blueprint 3, og einn af upp-
tökustjórunum.
Fyrstu fregnir af samstarfi
þeirra félaga bárust í október í
fyrra og mánuði síðar hófust upp-
tökur í borginni Bath á Englandi.
Upphaflega átti Watch the Trone
að vera fimm laga EP-plata en upp-
tökurnar gengu svo vel að ákveðið
var að gera heilt albúm.
Í janúar kom út fyrsta lagið,
H.A.M., sem er eitt af fjórum
aukalögum á viðhafnarútgáfu
plötunnar. Beyoncé, eiginkona
Jay-Z, syngur í laginu Lift Off og
í smáskífulaginu Otis rappa félag-
arnir ofan í lag hins sáluga Otis
Redding, Try a Little Tenderness.
Fjölmargir lagahöfundar veittu
þeim hjálparhönd á plötunni, þar
á meðal Pharrell Williams, gamli
refurinn Quincy Jones og Justin
Veron, forsprakki Bon Iver, sem
kom einmitt við sögu á My Beauti-
ful Dark Twisted Fantasy.
Jay-Z og Kanye ætla í stóra tón-
leikaferð um Norður-Ameríku til
að kynna plötuna og hefst hún 22.
september í Detroit.
freyr@frettabladid.is
Rapprisar sameina kraftana
NÝ PLATA Í ÁGÚST Rappararnir Jay-Z og Kanye West gefa út plötuna Watch the Throne í næsta mánuði. NORDICPHOTOS/GETTY
RISAVAXIÐ SAMSTARF
Jay-Z:
11 sólóplötur
50 milljónir seldar
13 Grammy-verðlaun
Kanye West:
5 sólóplötur
15 milljónir seldar
14 Grammy-verðlaun
Ein efnilegasta fótboltakona landsins
Thelma Björk Einarsdóttir hefur vakið verðskuldaða
athygli fyrir frammistöðu sína með Val í sumar.