Fréttablaðið - 28.07.2011, Qupperneq 52
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR40
folk@frettabladid.is
Bandaríska svartmálmshljóm-
sveitin Negative Plane lýkur
sínum fyrsta Evróputúr með
tónleikum á Café Amsterdam
laugardagskvöldið 6. ágúst.
Íslensku sveitirnar Abominor,
Chao og Svartidauði sjá um upp-
hitun. Negative Plane spilar mjög
dimman og drungalegan svart-
málm sem vefur saman svart-
málm dagsins í dag og gamla
skólans en sækir um leið áhrif
jafnt í klassískt þungarokk,
gotneskt rokk, kirkjutónlist og
hryllingsmyndatónlist. Sveitin er
nýbúin að gefa út sína aðra plötu,
Stained Glass Revelations, sem
hefur hlotið góðar viðtökur.
Bandarískur
svartmálmur
TIL ÍSLANDS Bandaríska svartmálm-
ssveitin Negative Plane spilar á Íslandi
6. ágúst.
Fyrrverandi eiginmaður söng-
konunnar Amy Winehouse, Blake
Fielder-Civil vildi ekki fara í
jarðarför söngkonunnar sem
gerð var á þriðjudag. Fielder-
Civil situr í fangelsi þessa dag-
ana fyrir þjófnað og fannst ekki
viðeigandi að mæta í járnum.
„Hann vildi ekki mæta af virð-
ingu fyrir fjölskyldu hennar.
Hann ber of mikla virðingu fyrir
henni og Amy til að koma með
fangaverði og handjárnaður,“
sagði núverandi kærasta hans,
Sarah Aspin, við breska fjöl-
miðla.
Blake vildi
ekki mæta
VIRÐIR AMY Fyrrverandi eiginmaður
Amy Winehouse vildi ekki mæta hand-
járnaður í útförina. NORDICPHOTO/GETTY
„Fólk kemur nú oftast og leitar að
hlutunum sínum en margir eru
mjög kærulausir og koma ekkert
og leita,“ segir Gísli Freyr Björg-
vinsson, rekstrarstjóri Priksins,
en skemmtistaðurinn heldur fata-
markað á laugardaginn. Um er að
ræða fatamarkað með óskilaföt-
um sem hafa orðið eftir á staðn-
um í gegnum tíðina og ekki ratað
í réttar hendur að nýju.
Gísli segir að það séu alls konar
flíkur sem hægt verði að finna á
fatamarkaðnum. „Þetta eru yfir-
leitt yfirhafnir en það kemur
fyrir að við finnum buxur. Þá fer
maður virkilega að hugsa hvern-
ig fólk hefur komið sér héðan út,“
segir Gísli.
Fatamarkaðurinn byrjar kl. 12
á laugardaginn og stendur til kl.
15, en allur ágóði rennur til lang-
veikra barna. „Ég og eigandinn
[Guðfinnur Sölvi Karlsson] erum
miklir barnamenn og eigum sam-
tals sjö börn.
Við teljum okkur afar heppna
að eiga börn sem eru heilbrigð
og við getum ekki ímyndað okkur
hvað það er erfitt að eiga langveik
börn,“ segir Gísli, og hvetur fólk
til þess að kíkja við á Prikinu á
laugardaginn.
Prikið selur óskilamuni á markaði
FATAMARKAÐUR MEÐ ÓSKILAFÖT
Skemmtistaðurinn Prikið stendur fyrir
öðruvísi fatamarkaði á laugardaginn, en
þá ætlar staðurinn að selja óskilaföt og
mun ágóðinn renna til langveikra barna.
Denise Rich-
ards er farin
að fræða dætur
sínar um fíkn.
Ástæðan ku
vera sú að
það var orðið
of erfitt að
útskýra fyrir
þeim fáránlega
hegðun föður
þeirra, Char-
lie Sheen. Eins
og kunnugt er,
var Sheen djúpt
sokkinn í fíkni-
efnaneyslu og
var á endanum
rekinn úr þátt-
unum Two and a Half Men. „Ég
byrjaði á því að lesa bók fyrir
þær. Ég var farin að ljúga svo
miklu að þeim. Þetta var farið að
verða of ruglingslegt, svo ég varð
að setjast niður með þeim,“ sagði
Denise.
Ræðir fíkn
við börnin
DENISE RICHARDS
9,4 MILLJÓNIR fengu hundarnir Minter, Juice og Callum í arf frá fyrrum eiganda þeirra, fatahönnuðinum Alexander McQueen, en erfðaskrá hans
var gerð opinber á þriðjudag.
Íslenskir ostar – hreinasta afbragð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
1
0
-1
3
0
1