Fréttablaðið - 28.07.2011, Page 58
28. júlí 2011 FIMMTUDAGUR46
golfogveidi@frettabladid.is
Atli Bergmann hefur í vor
og sumar farið sannkölluð-
um hamförum á veiðislóð.
Bleikja og urriði í hundruða
tali auk vænna sjóbirtinga
og stórlaxa eru á afreka-
skránni. Atli fékk lax lífs
síns í Svartá um daginn.
„Ég er ekkert búinn að vera að
veiða í gær eða í dag,“ tekur Atli
Bergmann, auglýsingastjóri hjá
Birtingi, strax fram, spurður
hvort hann sé ef til vill farinn að
veiða úr hófi fram. Af nógu er að
taka alveg frá því í byrjun apríl
þegar kemur að veiðitúrum Atla.
Atli játar að hann hafi verið í
óvenju miklu veiðistuði í sumar.
„Þetta byrjaði bara svo skemmti-
lega. Ég var svo heppinn að strax
í byrjun apríl fékk ég risa sjó-
birtinga í Litluá. Síðan er bara
allt búið að smella,“ segir hann
afsakandi.
Atli fer jöfnum höndum í ár og
vötn. Í sumar hefur hann meðal
annars farið í Þingvallavatn, Ell-
iðavatn, Vífilsstaðavatn, Hrauns-
fjörð, Laugarvatn, Svartá, Korpu
og Sogið.
„Þetta er eins og maður sé
búinn að vera æfa sig og þjálfa í
mörg ár. Maður skapar sér heppni
með kunnáttu, elju og viðveru,“
segir Atli sem eingöngu hefur
veitt á flugu síðasta áratuginn.
„Veiðin varð skemmtileg fyrir
mér þegar ég ákvað fyrir tíu
árum að snerta aldrei kaststöng
framar. Mistök margra eru að
hafa hana með í för ef það skyldi
vera vont veður. Þeir finna alls
konar afsakanir en stíga fyrir
vikið aldrei skrefið til fulls og
læra ekki á allar aðstæður.“
Ein af uppáhalds veiðiám Atla
er Svartá. Þar fékk hann maríu-
laxinn sinn á flugu fyrir tæpum
tíu árum. Atli var í Svartá um
miðjan þennan mánuð. „Þar í
Ármótunum fékk ég fisk lífs
míns á Íslandi. Hann var sautján
til átján pund og yndislega fal-
legur,“ lýsir Atli sem fram að því
að hann setti í stórlaxinn hafði
orðið fyrir góðlegu aðkasti fyrir
að vera sá eini í hollinu sem ekki
hafði sett í lax.
Strax eftir Svartá fór Atli í
Korpu. „Hún er vanmetin flugu-
veiðiá,“ segir Atli, sem ásamt
félaga sínum náði tólf flugulöx-
um úr Korpu á einum degi. Fram
að því höfðu aðeins veiðst fimm
laxar þar á flugu. „Við feng-
um líka tvo stóra sjóbirtinga og
misstum marga laxa. Ég mæli
með því við hæfa fluguveiðimenn
að prófa Korpuna.“
Í vorveiðinni á Þingvöllum fékk
Atli sextán punda urriða. „Þing-
vellir eru stórkostlegir. Ég er
búinn að ferðast víða um heim;
farið í svett og hugleitt inni í píra-
mídunum að leita að guði en hann
er bara í íslenskri sumarnótt á
Þingvöllum,” segir hann.
Um síðustu helgi fór Atli í
Alviðru í Soginu. „Fram að þeim
tíma höfðu verið að tínast upp mest
tveir laxar á dag á maðk og spún og
svoleiðis drasl en við vorum bara
með flugu og fengum átta. Það var
æðislegt,“ segir hann.
Aðspurður segist Atli vera búinn
að veiða hundruð silunga í sumar
auk tólf laxa og um tíu stóra sjó-
birtinga. Hann var við opnun Veiði-
vatna.
„Ég fór þaðan beint á ættarmót í
bænum. Í lítillæti mínu og auðmýkt
var ég búinn að bjóðast til að veiða
í matinn. Ég var heppinn og veiddi
25 urriða og kom með meira en nóg
á grillið,“ segir veiðimaðurinn sem
kveðst sleppa miklu af fiski. „En
ég borða líka mikið heima enda er
þetta hollur og góður matur. Svo
gef ég líka stórfjölskyldunni.“
Fram undan hjá Atla er meðal
annars að fara Héðinsfjörð. Síðar
í Gljúfurá í Borgarfirði. Og þaðan
beint í Andakílsá. „Ég elska að fara
svona beint á milli,“ segir Atli sem
gengst við því að vera í sambúð.
„Ha, ha, jú, en ég á yndislega
konu. Hún hefur engan áhuga
á veiði en er að búin að komast
að því að ég er svo góður á milli
veiðiferða. Þegar hún er kannski
að horfa á Desperat Housewives
þá er ég á Þingvöllum að veiða í
matinn.“ gar@frettabladid.is
Veiðin varð skemmti-
leg fyrir mér þegar ég
ákvað fyrir tíu árum að snerta
aldrei kaststöng framar.
Þó að laxveiðin í Blöndu hafi ekki
verið eins mikil í sumar og á
tveimur síðustu árum hefur veiðin
verið þokkaleg. Samkvæmt upp-
lýsingum frá Lax-á hafa veiðst um
1.100 laxar. Hlutfall stórlaxa er
sagt vera hátt eins og vanalega. Þá
segir á agn.is að staðan í Blöndu-
lóni sé „betri en menn þorðu að
vona“. Norðurá í Borgarfirði var
hins vegar komin í 1.170 veidda
laxa fyrir viku.
Miðað við heimasíðu Lands-
virkjunar er vatnshæðin í lóninu
nú svipuð og verið hefur á þessum
árstíma að meðaltali síðustu fimm
ár. Haldist það má búast við að
Blanda fari ekki á yfirfall fyrr en
eitthvað er liðið af ágúst. - gar
Þokkalegur gangur nyrðra:
Blanda komin
yfir 1.100 laxa
VÆNN FISKUR Kristján Jóhann Rein-
holdsson með tíu punda flugulax úr
Bæjarhólum.
Veiðimenn sem voru á svæðum I
og II í Stóru-Laxá í fyrradag náðu
sjö löxum á land og misstu annað
eins að því er segir á vef Lax-á.
Dauft hefur verið yfir veiðinni
fram til þessa. - gar
Lifnar yfir Stóru-Laxá:
Fengu sjö og
misstu sjö
Smiðjuvegi 2
Kópavogi
Sími 544 2121
www.rumgott.is
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga kl. 11-16
Löggiltir dýnuframleiðendur
– Starfandi í 60 ár
FRÍ LEGUGREINING
OG FAGLEG RÁÐGJÖF
SUMARDAGAR
LÖXUM hafði verið landað
úr Breiðdalsá að kvöldi
þriðjudagsins síðasta.
LAXAR og áttatíu silungar voru
gengnir um teljarann í Elliðaánum
klukkan hálffimm síðdegis í gær.
326 1.632
Guð er í nótt á Þingvöllum
URRIÐI Glæsilegur 73 sentímetra urriði sem Atli fékk í Litluá.TÍU PUNDA SJÓBIRTINGUR Grunnurinn að frábæru veiðisumri
Atla Bergmann var lagður í Litluá strax í apríl.
ATLI BERGMANN Sautján til átján punda lax sem Atli fékk í Svartá um miðjan júlí. „Yndislega fallegur,“ segir hann um fiskinn sem
að sjálfsögðu var sleppt. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
FL
U
G
A
N KRÓKURINN
Krókurinn er ein af fjölmörg-
um góðum silungaflugum sem
komið hafa fram á sjónarsviðið
á síðustu árum.
Krókurinn hefur gefið vel
hvort heldur sem kastað er fyrir
bleikju eða urriða en einnig
fæst lax á Krókinn í litlu vatni.
Krókurinn er silungafluga
sem ekki má vanta í boxið um
verslunarmannahelgina.
UPPSKRIFT
Öngull - Grubber í stærðum 10
eða 12.
Tvinni - Svartur UNI 8/0.
Stél - Fanir af kalkúna- eða fasana-
fjöður.
Broddur - Rauður Jan Siman dubb-
ingbursti.
Búkur - Svart Vinyl Rib medium
Haus.
Koparkúla í stærð 3,3 eða eða 3,8
mm.
Góð í silunginn