Fréttablaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 10
3. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR10 Ívar Örn Hansen S: 5125429 , gsm 6154349 ivarorn@365.is Sigríður Dagný S: 5125462, gsm 8233344 sigridurdagny@365.is Sigríður Hallgríms S: 5125432, gsm 6924700 sigridurh@365.is AUGLÝSING Í SÉRBLÖÐUM SKILAR ÁRANGRI! www. ring.is / m .ring. is [ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FERÐALÖG ] ferðalög Þ að hljómar kannski kuldalega að hátta sig ofan í rúm undir frost- marki, en engu að síður staðreynd að gisting í snjóhúsum nýtur fádæma vinsælda hvar sem hún býðst. Eftir áramót sýnir Vetur konungur oft grimm- ustu klærnar og hrúgar niður snjó á mestu snjósöfnunarstaði veraldar. Því fagna ferða- menn sem dýrka vetrar ríkið og þrá að upp- lifa eitthvað nýtt og framandi, en einnig að komast í mikla nánd við náttúruna. Vinsæl- ar snjóhúsabyggðir eru í Lapplandi, Sviss, Slóveníu og Japan, þar sem hin ægifagra Kamakura-hátíð er haldin í febrúar ár hvert í Yokote í Akitahéraði í norðaustur Japan. Mikil snjókoma er í Yokote og ekki óalgengt að falli allt að 30 sentimetra snjór yfir nótt. Snjóhúsin sjálf kallast kamakura og inni í þeim er reist altari til tilbeiðslu vatnsguðs- ins, þar sem fólk biður fyrir góðri uppskeru, öryggi fjölskyldunnar, velgengni og vernd gegn eldum. Ólýsanlega fagurt er á kvöld- in á Kamakura þegar kertaljós lýsa upp snjóhúsin, en hvarvetna ræður rómantík ríkjum á snjóhúsaslóðum og vinsælt meðal elskenda að gefast hvort öðru undir bleik- lilluðum stjörnuhimni og glitrandi frostrós- um. -þlg JANÚAR 2011 FRAMHALD Á SÍÐU 4 OFURSVALT INÚÍTALÍF Snjóhús eru með fegurstu mann- gerðu smíðum náttúrunnar, en efniviðurinn hverfull eftir veðri og vindum. Um víða veröld er hægt að upplifa andrúmsloft inúíta í hnausþykkum, listilega smíðuðum snjóhúsum, til að mat- ast, vera og njótast. Góður markaður Íslendingar geta nú nýtt sumarfríið til að leigja út íbúðir sínar í gegnum fyrirtækið Iceland Summer. SÍÐA 2 Skemmtileg lífs- reynsla Lilja Björk Jónasdóttir starfaði við sumarbúðir barna í Banda- ríkjunum síðasta sumar og ætlar aftur í vor.SÍÐA 6 föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 11. mars 2011 Helicopter vekur athygli Á rúmstokknumTískan á pöllunumÁrshátíðarförðunin Fríða María Harðardóttirer sannur eyjarskeggi Kr. TILBOÐ 117.950 FRÁBÆRT FARTÖLVUTILBOÐ 15.6” Skand ínavísk hönnu narvei sla Mikil hönnu narsýn ing er haldin í Stok k- hólmi í febrú ar. Þar eru he lstu ný jungar hönnu narhei msins kynnt ar. Sýn ingin þ ykir gefa g óða m ynd af þeim straum um se m einken na ska ndinav íska hö nnun o g þang að flykkis t fólk f rá öllu m heim shornu m. Sýning arsvæ ðið er stórt o g yfirg ripsm ikið en ein nig er u sýn ingar víðs v egar um borgin a. Í ár var við ur alls ráðan di, ein s og oft áð ur end a grun nefni í skan dinaví skri framl eiðslu . Nát túrule gar á ferðir og umhve rfisvæ nar fr amleið sluaðf erðir n utu sín í b land v ið skæ ra og s terka liti. Ei nnig voru p astelli tir áb erand i og m á segj a að hvítt o g svar t sé á u ndanh aldi. Það g ætir a fturhv arfs t il eldr i tíma hjá un gum f yrirtæ kjum en me ð sam tíma framle iðsluh áttum . Efni eins o g kopa r og messi ng sáu st víð a svo ekki s é min nst á prjóna ða, he klaða og ofn a ull. Þ ægind i og mýkt voru á beran di í m ótsögn við ha rðar línur m ódern isma s em he fur ve rið vin æll undan farin á r. Skan dinaví sk hön nun er þó alltaf stílhr ein og einfa ldleik inn í f yrir- rúmi e n í ár var ha nn óve nju hlý legur. - she EVERYTH ING MAT TERS. heimi li& hönnu n febrúar 2011 FRAM HALD Á SÍÐ U 4 Klassís k hönnu n í nýju lj ósi Ungir hönnu ðir létu ljó s sitt s kína í Stokkh ólmi. Þ eirra á með al var Jaeuk Jung. SÍÐA 6 Mikill græjuk arl Ásgeir Kolbe insson útvarp smaðu r kann vel við sig í miðb ænum . SÍÐA 2 m ni g[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MENNINGU OG LISTIR ] mars 2011 Íslensk menningarpólitík nefnist bók eftir Bjarka Valtýs- son, doktor í boðskipta- og menningarfræðum, sem kom út á vegum Nýhil á dögunum. Í bókinni er íslensk menn- ingarstefna greind fræðilega og sett í samhengi við al- þjóðlegar menningarstefnur. Bjarki varar við ofuráherslu á hina einhæfu íslensku menningarvitund, sem oft og tíðum dragi listamenn í dilka klisjunnar. l FRAMHALD Á SÍÐU 6 DRÖGUM VARLA FLEIRI ÍSJAKA TIL PARÍSAR FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR DÆMI Á djúpum miðumRagna Sigurðardóttir rýnir í sýningarnar Viðtöl um dauðann og Hljóðheimar. SÍÐA 2 Útsprungnar rósir Kjartan Guðmundsson dustar rykið af fyrstu plötu The Pogues. SÍÐA 2 matur[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM MAT ]mars 2011 Dekrað við bragðlaukana Albert Eiríksson færir ljúffenga döðluköku í nútímalegra og heilsusamlegra horf. SÍÐA 2 Hreinn unaður Kristín Eik Gústafsdóttir býr til fádæma flotta tertu sem allir geta spreytt sig á.SÍÐA 4 Með sunnudagskaffinuKökur, huggulegheit og samvera. DÆMIfjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ] Þ órður Hermannsson sækir Hitt húsið með dóttur sína Karitas Lóu 6 mánaða. Þórður er 23 ára nýútskrifaður tónsmiður frá LHÍ. „Karitas Lóa er mitt fyrsta barn en kærastan mín átti tvö börn fyrir svo við erum með þrjú börn heima. Ég er í fæðingarorlofi núna og finnst mjög gott að geta hitt aðra foreldra og þá hittir hún líka aðra krakka.“ Þórður segir þá fræðslu sem boðið er upp á koma sér vel fyrir unga nýbak-aða foreldra en annanhvern miðvikudag eru faglegir fyrirlestrar eða kynning-ar. Hann segir félagsskapinn ekki síður mikilvægan. „Það er gott að hafa stuðning af fleiri ungum foreldrum en það eru ekki marg-ir vinir mínir komnir með börn. Hópur-inn sem hittist er á aldrinum 18 til 25 ára. Við erum öll með okkar fyrsta barn og að ganga í gegnum svipaða hluti. Það er alltaf febrúar 2011 Í hundunum Theodóra Róbertsdóttir sýnir á stærstu hundasýningu heims í næsta mánuði. SÍÐA 2 FRAMHALD Á SÍÐU 4 Ungir kenna fullorðnum Nemendur úr sjöunda bekk Grandaskóla kenna fullorðnum á tölvur. SÍÐA 6 Alla miðvikudaga milli klukkan 14 og 16 geta ungir foreldrar mætt með börnin sín í Hitt húsið, rætt málin og fengið faglega ráðgjöf varðandi umönnun ungbarna. Starfið ber yfirskriftina Ungt fólk með ungana sína. Gott að hitta aðra unga foreldra FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR okkar.is ze b ra Sérblöð Fréttablaðsins eru fjölbreytt og höfða til fólks á öllum aldri. Fjöldi mismunandi sérblaða kemur út í hverjum mánuði. Leitaðu ráða hjá ráðgjöfum okkar um hvar auglýsingin þín nær best til markhópsins. AUGLÝSINGAR Í SÉRBLÖÐUM *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar – mars 2011 Sölufulltrúi: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Mánudaga HEILBRIGÐISMÁL Ekki hefur verið ákveðið hver flytur inn í húsið á Seltjarnarnesi sem Landlæknis- embættið flutti úr nú um versl- unarmannahelgina. Sextán ár eru eftir af leigu- samningi ríkisins við eigandann, en ríkið greiðir þar tvær millj- ónir króna á mánuði. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í gær. Landlæknisembættið stækk- aði í vor þegar Lýðheilsustöð sameinaðist embættinu. Starfs- mönnum fjölgaði þar með og verslunarmannahelgin var nýtt til að flytja inn á rúma 1.800 fer- metra í Heilsuverndarstöðinni við Barónstíg. Ríkið greiðir heldur lægri leigu á fermetrann í þessum nýju höfuð- stöðvum heldur en í húsinu á Sel- tjarnarnesi þar sem landlæknir var áður til húsa. Þar er hins vegar enn í gildi leigusamningur til árs- ins 2027 og eftir því sem næst verður komist hefur ekki verið ákveðið hver flytur þangað inn, en ríkið borgar tvær milljónir í leigu þar á mánuði. Fjármálastjóri land- læknis telur ekki að mistök hafi verið gerð með því að binda ríkið svo lengi í leigusamningi. Landlæknisembættið flutt af Seltjarnarnesi yfir í Heilsuverndarstöðina: Húsnæði landlæknis á Nesinu stendur autt GAMLA HÚSNÆÐIÐ Húsið sem áður hýsti Landlæknisembættið stendur autt og er leigan um sautján milljónir á mánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LANDSBYGGÐIN Eftir tuttugu ára samdráttarskeið á Tálknafirði er nú svo komið að mikil eftirspurn er eftir húsnæði í bænum. Hösk- uldur Steinarsson, framkvæmda- stjóri Fjarðarlax sem rekur ört vaxandi laxeldi á staðnum, hefur til að mynda lýst yfir áhyggjum sínum af því að ekki verði til leiguhúsnæði fyrir starfs- fólk á staðnum í nánustu fram- tíð. A ð s ö g n Eyrúnar Ingi- bjargar Sigþórs- dóttur oddvita hyggst hreppur- inn bregðast við þessu með því að kanna hvort grundvöllur sé fyrir því að reisa íbúðir fyrir aldraða á Tálknafirði. „Við teljum að ef eldra fólk geti hugsað sér að flytja í slík- ar íbúðir þá sé sú leið betri fyrir okkur til að létta á þessu, frekar en að fara að byggja íbúðarhús,“ segir hún. Aðeins eitt íbúðarhús hefur verið reist á Tálknafirði frá alda- mótum. Hún segir enn fremur að mest sé eftirspurnin eftir leigu- húsnæði enda vilji fólk fyrst leigja áður en það festi kaup á húsnæði. Næg atvinna er á Tálknafirði en Eyrún Ingibjörg segist þó undrast, í ljósi þess atvinnuleys- is sem ríkir í landinu, að Íslend- ingar skuli ekki hafa sótt um né spurst fyrir um vinnu í fisk- vinnslu á staðnum. „Það er eins og það hvarfli ekki að Íslendingum að fara að vinna í fiski en ég er nú þeirrar skoðunar að það sé allt- af betra fyrir sálartetrið að hafa atvinnu en að sitja heima við,“ segir hún. Það kemur þó ekki að sök fyrir fiskvinnslu á staðnum því Pólverjar sækjast eftir þess- um störfum. Eins hefur orðið mikil ásókn í sjóstangveiði á Tálknafirði og sagði Finnur Jónsson, stjórnar- formaður Sumarbyggðar, í Frétta- blaðinu í síðasta mánuði að um helmings aukning hefði orðið á komu ferðamanna þangað miðað við árið í fyrra. Eyrún Ingibjörg segir að stundum hafi verið erf- itt að koma öllu ferðamönnunum á svæðið. „Það sem háir okkur hér á sunnanverðum Vestfjörðum er að okkur vantar lengri flugbraut en Fokkerinn getur ekki lent á flugbrautinni á Bíldudal fulllest- aður. Við höfum því þurft að leita til Flugfélagsins Ernis til að koma öllum ferðamönnunum á svæðið en það hafa reynst okkur mjög vel í gegnum tíðina,“ segir hún. Þar að auki stendur fyrir dyrum að bora eftir heitu vatni á Tálknafirði nú á haustdögum en eins og gengur á Vestfjörðum verða Tálknafirðingar að láta sér nægja rafmagnskyndingu. Eyrún segir það því mikið hagræði ef hægt verði að leysa hana af hólmi með heitavatnskyndingu. jse@frettabladid.is Húsnæðis- skortur ríkir á Tálknafirði Tálknafjarðarhreppur vill kanna hvort grundvöllur sé fyrir byggingu íbúðarhúss fyrir aldraða og leysa úr húsnæðisskorti. Eitt hús verið byggt frá aldamótum. FRÁ TÁLKNAFIRÐI Tálknfirðingar þurfa nú að grípa til einhverra aðgerða svo að þeir komi vinnuafli sínu undir þak. Svo eru þeir að vinna að því að koma sér upp heita- vatnskyndingu í stað rafmagnskyndingar. EYRÚN INGIBJÖRG SIGÞÓRSDÓTTIR Það er eins og það hvarfli ekki að Íslend- ingum að fara að vinna í fiski en ég er nú þeirrar skoðunar að það sé alltaf betra fyrir sálartetrið að hafa atvinnu en að sitja heima við. EYRÚN INGIBJÖRG SIGÞÓRSDÓTTIR ODDVITI TÁLKNAFJARÐARHREPPS MUNDAR VOPNIN Ungur piltur stillir sér upp fyrir framan minnisvarða um uppreisnina í Varsjá. Hinn 1. ágúst síðastiðinn voru 67 ár liðin frá því að uppreisnin gegn nasistum hófst í Varsjá. NORDICPHOTOS/AFP

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.