Fréttablaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 3. ágúst 2011 11
Nánari upplýsingar á landsbankinn.is
Nýsköpunarstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Með því að styðja við nýsköpun
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
FUKUSHIMA 100.000 tonn af vatni
voru notuð til að kæla kjarnorkuverið
í Fukushima. Vatnið er nú verulega
mengað og hættulegt, leki það út.
NORDICPHOTOS/AFPP
JAPAN Mesta geislun sem mælst
hefur í kjarnorkuverinu í Fuku-
shima í Japan frá því að jarð-
skjálfti og risaflóðbylgja
skemmdu það alvarlega í mars
mældist nú á mánudag. Svæðið í
kringum kjarnorkuverið var girt
af án tafar en verið er að rann-
saka af hverju geislunin rauk
skyndilega upp.
Enn er unnið að því að tak-
marka skaðann af kjarnorkuslys-
inu en búist er við að þeirri vinnu
ljúki í lok ársins. Risaflóðbylgjan
eyðilagði kælikerfi þriggja
kjarnakljúfa í kjarnorkuverinu,
sem olli því að þeir ofhitnuðu og
sprungu. - mþl
Kjarnorkuverið í Fukushima:
Mikil geislun
mældist í Japan
VIÐSKIPTI Bandaríski bílafram-
leiðandinn Ford hefur innkallað
1,2 milljónir pallbíla í Banda-
ríkjunum og Kanada. Ástæðan
er ótti um að eldsneytisgeymar
bílanna geti dottið af og valdið
elds voðum.
Innköllunin nær til pallbíla af
ákveðnum gerðum sem fram-
leiddir voru á árunum 1997 til
2004 og seldir í kaldari hlutum
Norður-Ameríku. Óttast er
að ólar sem halda geymunum
föstum geti slitnað vegna tæring-
ar af völdum vegasalts.
Talið er að gallinn hafi valdið
átta eldsvoðum og því að einn
hafi slasast. - mþl
1,2 milljónir bíla innkallaðir:
Ford innkallar
fjölda pallbíla
DANMÖRK Hátt í þrjú þúsund mink-
ar sluppu úr búrum sínum í grennd
við Assens á Fjóni í Danmörku á
mánudag. Um 30 íbúar hverfisins
þurftu að smala saman minkunum
og koma þeim aftur í minkabúið.
Óprúttnir aðilar klipptu göt á
vírnet á búinu, sem gerði það að
verkum að um helmingur mink-
anna sem á búinu voru slapp út.
Greint var frá því í dönskum
fjölmiðlum í gær að smölunin
hefði gengið vonum framar og nær
öllum minkunum hefði verið komið
aftur í búið. - sv
Skemmdarverk í Danmörku:
Nokkur þúsund
minkar sluppu
LÖGREGLUMÁL Samtals 29
ökumenn voru kærðir fyrir of
hraðan akstur á Vestfjörðum um
helgina. Sá er hraðast ók mældist
á 130 kílómetra hraða og þakk-
aði hann lögreglumanni fyrir að
stöðva akstur sinn, með þeim
orðum að hann hefði verið sof-
andi og ekki vaknað fyrr en far-
þegar hans bentu honum á að lög-
reglan væri að gefa honum merki
um að stoppa.
Tveir ökumenn voru kærðir
fyrir akstur undir áhrifum fíkni-
efna og einn fyrir ölvunarakstur.
Sex umferðaróhöpp urðu, þar af
tvö þar sem fólk slasaðist minni
háttar. - jss
Þakkaði lögreglu aðstoðina:
Tekinn sofandi
á ofsahraða
BÚFJÁRHALD Ákeyrslum á sauðfé
á Vestfjörðum hefur stórfækkað
milli ára að sögn Önundar Jóns-
sonar, yfirlögregluþjóns hjá lög-
reglunni á Vestfjörðum. Það sem
af er þessu ári hafa komið upp 44
mál þessa eðlis, en þau voru 76
talsins á sama tímabili í fyrra.
Önundur bendir á að fjöldi mála
segi ekki alla söguna um fjölda
þess fjár sem ekið hefur verið á.
Oftar en ekki sé ekið á fleiri en
eina kind í senn.
„Það er þó ljóst að fjöldinn sem
orðið hefur fyrir bílum í ár er
mun minni heldur en í fyrra, því
málin eru svo miklu færri nú.“
Önundur kveðst ekki kunna ein-
hliða skýringu á þessari fækkun.
„Ég veit ekki hvort búfjáreignin
á Vestfjarðakjálkanum hefur eitt-
hvað breyst,“ segir hann. „Svo
getur verið að ökumenn séu betur
vakandi í kjölfar umræðu sem
orðið hefur um þetta viðvarandi
vandamál.“
Loks bendir Önundur á þá
hugsanlegu skýringu að bændur
hafi sleppt fénu seinna á fjall í ár
heldur en árin á undan. Vorið hafi
verið óvenju kalt og staðreynd sé
að féð hafi verið lengur innan
girðinga en undanfarin ár.
- jss
Ökumenn líklega orðnir varfærnari á Vestfjörðum í ár heldur en undanfarin ár að sögn lögreglu:
Ákeyrslum á sauðfé fækkar til muna
SAUÐFÉ Sú ánægjulega þróun hefur
orðið í ár að ákeyrslum á sauðfé hefur
fækkað stórlega.
Svo getur verið að
ökumenn séu betur
vakandi í kjölfar umræðu
sem orðið hefur um þetta
viðvarandi vandamál.
ÖNUNDUR JÓNSSON
YFIRLÖGREGLUÞJÓNN Á VESTFJÖRÐUM