Fréttablaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 36
3. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR28
BAKÞANKAR
Sifjar
Sigmars-
dóttur
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. dóms, 6. belti, 8. flík, 9. slæða, 11.
karlkyn, 12. nautnalyf, 14. smápen-
ingar, 16. tímabil, 17. kvk nafn, 18.
hækkar, 20. mun, 21. málhelti.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. frá, 4. markmið, 5. stykki,
7. bergtegund, 10. spil, 13. ískur, 15.
sefun, 16. tímabils, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mats, 6. ól, 8. fat, 9. lín,
11. kk, 12. ópíum, 14. aurar, 16. ár,
17. gró, 18. rís, 20. ku, 21. stam.
LÓÐRÉTT: 1. póló, 3. af, 4. takmark,
5. stk, 7. líparít, 10. níu, 13. urg, 15.
róun, 16. árs, 19. sa.
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Hvernig
flugnaspaðinn
var fundinn upp
Jæja... ?
Ætlar þú að
taka nýtt
tímabil?
Já, biddu fyrir
þér! Það er
svo gott að
vera kominn
aftur af stað!
Heimalærdómurinn er augljós-
lega allt of mikill. Hafið þið reynt
að semja við kennarana?
Auðvitað!
Alla
daga!
Stöðugt!
Við hvert
tækifæri!
Að væla er það
sama og að semja,
er það ekki?
Ég hef löngum verið þeirrar bjargföstu trúar að heimurinn fari ekki versnandi.
Þegar fólk býsnast yfir að allt hafi verið
betra í gamladaga glotti ég drýgindaleg
við tönn. Ég bara kaupi ekki að betra hafi
verið að „tjilla“ í rökum og köldum moldar-
kofa, teygandi spenvolga mjólk, hlustandi á
langafa þylja Hávamál enn einu sinni en að
hanga á Ölstofunni með ískaldan Bríó, vafr-
andi á internetinu á nýja iPadinum.
UNDANFARIN misseri hefur mjög verið
haft á orði að opinberri umræðu fari hrak-
andi. Trú sannfæringu minni kinkaði ég
því yfirlætislega kolli þegar ég rakst á 90
ára gömul ummæli um lágkúru íslenskrar
orðræðu sem rituð voru í Morgunblaðið árið
1921 í tengslum við deilur um uppbyggingu
íslensks tónlistarlífs: „Ungur maður kemur
og vill hefja það til vegs og gengis og fer
geyst. Hinum, sem fyrir eru, líst ekki á
blikuna og segja að ekkert sé hægt að
gera. Hinn segir, að það skuli verða
gert. Hinir segja að hann sé auli. Og
svo byrja skammirnar.“
Á DÖGUNUM myndaðist hins
vegar sprunga í gegnheila sann-
færingu mína. Skrif fréttavefsins
amx.is um fjöldamorð Anders Brei-
vik í Noregi hafa vakið óhug með
lesendum. Fyrstu viðbrögð smá-
fuglanna, hóps hægri-harðlínu-
manna sem skrifar dálkinn Fuglahvísl, við
harmleiknum voru að nýta hann í pólitískan
skotgrafahernað. Í stað þess að taka undir
samúðarkveðjur sem Össur Skarphéðinsson
sendi norsku þjóðinni sökuðu þeir utanríkis-
ráðherra um hræsni og sögðu að hann „þætt-
ist“ aðeins harmi sleginn yfir atburðunum.
Hann væri nefnilega sjálfur hálfgerður
hryðjuverkamaður því hann hefði lýst yfir
stuðningi við ríki Palestínu nokkrum dögum
fyrr. Og enn stóð á samúðarkveðjum smá-
fuglanna. Af því sem næst kom mátti helst
ráða að smáfuglunum þætti aðaltragedía
árásarinnar vera sú að fjölmiðlar segðu
morðingjann hægrimann. Í sjálfhverfri
grein leiddu þeir að því líkur að Breivik ætti
heldur að flokka sem jafnaðarmann.
Í SKRIF smáfuglanna skortir alla mann-
lega samkennd, virðingu og það sem mestu
skiptir í vitibornum umræðum: glóru. Lyga-
og hatursspýja þeirra fær hörðustu stuðn-
ingsmenn tjáningarfrelsisins til að efast. En
rétt eins og Norðmenn hyggjast ekki leyfa
einum morðóðum brjálæðingi að breyta
gildum sínum eða samfélagsskipan má ekki
leyfa nokkrum illum tungum að grafa undan
einni grunnstoða lýðræðisins. Svo lengi sem
vondar skoðanir brjóta ekki í bága við lög
ber að standa vörð um tjáningarfrelsi þeirra
sem láta þær í ljós. Við lesendur getum hins
vegar vængstýft smáfuglana með því að
hunsa vefinn amx.is.
Smáfuglar vængstýfðir
Aha?
Ég fékk númer hjá barna-
píu sem á að vera alveg
frábær. Frá-
bært.
Ég bað hana um að
koma í smá starfsviðtal
í kvöld.
Hún á að vera mjög ljúf,
mjög áreiðanleg og mjög
sanngjörn.
Jæja, tvö „mjög”
af þremur er
nokkuð gott.
...Og ég
rukka 5.000
kall á tímann
plús ferða-
kostnað.
Ný fjölmiðlakönnun Capacent Gallup
staðfestir vinsældir Fréttablaðsins.
Rúmlega 72% íbúa höfuðborgarsvæðisins
á aldrinum 18-49 lesa að meðaltali hvert
tölublað Fréttablaðsins - nær þrefalt fleiri
en lesa næsta dagblað þar á eftir.
Fólkið í
landinu les
Fréttablaðið
Allt sem þú þarft...
Prentmiðlakönnun Capacent Gallup.
Apríl til júní 2011, meðallestur á tölublað.
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á Vísi.
Fylgstu með Pepsideildinni í Boltavaktinni á Vísi. Beinar textalýsingar
allra leikja, útvarpslýsing á leik í hverri umferð í Boltavarpinu og
umfjöllun strax að loknum leik. Myndbönd með viðtölum öll
mörkin í sjónvarpi Vísis. Vertu á Boltavaktinni með Vísi í sumar.