Fréttablaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 32
34 3. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR
Að standa utan hernaðarbanda-laga kann að virðast flókið og
erfitt mál við fyrstu sýn. Þjóð
sem velur þann kost neyðist til
að horfast í augu við heiminn og
taka mikilvægar bindandi ákvarð-
anir á eigin ábyrgð og á eigin for-
sendum.
Nýliðin öld er talin blóðug-
ust allra frá upphafi og þarf
ekki mikla söguþekkingu til að
sjá hvernig hernaðarbandalög
hafa leyst upp og skriðið saman
á ný í nýrri mynd. Það voru m.a.
„hámenntuðustu“ þjóðir heims
sem sendu blómann úr heilum
kynslóðum ungra manna út í
opinn dauðann í tveimur heims-
styrjöldum. Og enn eru þau að.
Því stríð leysa hvorki tímabund-
inn vanda né langtímavanda. Það
hafa þau aldrei gert – þvert á móti
– þau undirbúa jarðveginn fyrir
áframhaldandi styrjaldir og geta
aðeins hnikað til valda hlutföllum
og auðæfum – enda leikurinn til
þess gerður. Innan hernaðar-
bandalaga er hinum smærri og
valdaminni þjóðum, að ekki sé
minnst á þær óvopnuðu, skák-
að fram og til baka að vild, lönd
þeirra og lofthelgi notuð sem
þurfa þykir án þess að þær séu
spurðar álits. Enginn spyr hvort
það íþyngi samvisku okkar og
sálar friði að hryllileg voðaverk
séu unnin í fjarlægum löndum í
okkar nafni, og við yrðum heldur
ekki spurð þó víglínan færðist
okkur nær. Er þetta sú staða sem
við kjósum? Höfum við val?
Fjölmargar þjóðir í Evrópu hafa
lýst yfir varanlegu hlutleysi (t.d.
Austurríki, Sviss, Svíþjóð, Finn-
land og Írland) og ýmsar fleiri
(svo sem Costa Rica, Malta, Japan
og Panama) hafa bundið ævarandi
hlutleysi í stjórnarskrár sínar og
lög. Hlutleysi landa er af ýmsum
toga og liggja að baki margvís-
legar og ólíkar sögulegar ástæð-
ur, þrýstingur risavaxinna grann-
ríkja, milliríkjasamningar eftir
stórátök o.fl. og víst er að túlkun á
hugtakinu hefur verðið breytileg
og teygjanleg á stundum. Ýmsar
raddir eru t.d. uppi nú um óljósa
og breytta stöðu sumra hlutlausra
Evrópuríkja eftir inngöngu þeirra
í ESB sem hefur eins og menn vita
eigin stefnu í utanríkismálum.
Hagsmunirnir eru margvíslegir
sem marka slóð hvers ríkis, og
hver þjóð verður ein og óhrædd að
taka ákvarðanir um hlutverk sitt.
Blikur eru nú á lofti, ef til vill
fleiri en nokkurn tíma áður. Ofan
á ófrið og stríðsrekstur víða um
heim bætist nú við áður óþekkt-
ur háski sem stafar af hirðu-
leysi mannanna í umgengni við
náttúruna. Yfirvofandi vatns- og
matarskortur með til heyrandi
fólksflutningum og óöryggi er
í uppsiglingu. Og það í slíkum
mæli að augu venjulegs fólks
um allan heim eru farin að opn-
ast fyrir þeirri fráleitu stöðu að
ómældu fjármagninu sem dælt er
í grimmileg yfirráð og hernaðar-
leiki þjóða er ekki aðeins kastað
á glæ, heldur eykur það stórlega
sundrungu og böl en bætir einskis
manns vanda.
Friðsamleg afstaða og bræðra-
lag þjóða eru mannanna verk
engu síður en sóun og grimmd.
Samstaða og samábyrgð í baráttu
gegn fátækt, sjúkdómum og mis-
rétti eru það líka. Og til eru mörg
lýsandi dæmi um vopnlaust andóf,
friðsamlega baráttu manna eins
og Gandhis sem með hugrekki og
einurð breytti gangi sögunnar til
frambúðar með hugsjónir einar
að vopni.
Sérhver ferð hefst á einu skrefi
og hver þjóð með sjálfsvirðingu
verður að taka það skref á eigin
fótum með skýra og markvissa
stefnu fyrir augum. Íslendingar
geta lagt sinn skerf til bræðralags
þjóðanna og bæst í vaxandi hóp
þeirra sem velja veg friðar. Það
geta þeir með því að lýsa því yfir
að þeir fari ekki með ófriði á hend-
ur öðrum þjóðum, lýsa land sitt
herlaust og vopnlaust og með því
að taka sér stöðu utan hernaðar-
bandalaga. Síðasta ákvæðið er
mikilvægast, bæði sem fordæmi
og vegna þess að án þess falla
hin dauð og ómerk og við verðum
áfram leiksoppar annarra þjóða.
Hvað varðar spurninguna um
hvað til bragðs skuli taka sé á
okkur ráðist, er endanlegt svar
vandfundið. Meginstoð er í þeirri
staðreynd að alþjóðalög viður-
kenna og skilgreina rétt þjóða
til hlutleysis. Ekki má ráðast inn
í hlutlaust ríki og það á rétt á að
grípa til varna án þess að fyrir-
gera hlutleysisrétti sínum segir
m.a. í Haag-sáttmálanum. Það ríki
sem bindur hlutleysi í stjórnar-
skrá hlýtur að gera það með vand-
lega yfirveguðum hætti í sam-
ræmi bæði við alþjóðalög, eigin
forsendur og vilja þjóðarinnar.
Ekki er hægt að taka önnur svör
gild en okkar eigin. Hvern ætti að
spyrja ráða? Hernaðaröflin sem
standa í „vörnum“ nótt sem nýtan
dag og eiga alla sína hagsmuni
undir því að viðhalda óbreyttu
ástandi? Ættum við að leita svara
hjá þjóðunum sem sjá „varnirn-
ar“ með eigin augum í limlestum
líkum sinna nánustu, hrundum
borgum og sviðinni jörð?
Engin leið er fær önnur en
leið ábyrgðar, sátta og samvinnu
ef menn ætla ekki að fyrirgera
mennsku sinni eins og skáldið
Harold Pinter sagði í frægri
Nóbelsverðlauna ræðu sinni árið
2005.
Gerum okkur ekki kvíðann að hlíf
Hernaður
Guðrún
Hannesdóttir
bókasafnsfræðingur og
rithöfundur
Og til eru mörg lýsandi dæmi um vopn-
laust andóf, friðsamlega baráttu manna
eins og Gandhis sem með hugrekki og
einurð breytti gangi sögunnar til frambúðar með hug-
sjónir einar að vopni.
ENSKI
BOLTINN
STÆRRI
Samfélagsskjöldurinn 7. ágúst Man. City - Man. Utd.
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
EN ALLT
HEFST 13. ÁGÚST