Fréttablaðið - 03.08.2011, Blaðsíða 6
3. ágúst 2011 MIÐVIKUDAGUR6
UMFERÐ UM HVALFJARÐARGÖNG Á
mánudag var umferð um Hringveginn
6,5 prósentum minni í ár en í fyrra.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SAMGÖNGUR Umferð á vegum
landsins um verslunarmanna-
helgina dróst saman um rúm tólf
prósent á milli ára, samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni.
Upplýsingarnar byggja á tölum
frá sex völdum talningarstöðum
á Hringveginum út frá
höfuðborgar svæðinu.
Umferðin austur fyrir fjall
reyndist 13,3 prósentum minni en
um sömu helgi fyrir ári. Norður
fyrir varð samdrátturinn 10,5
prósent. Þá reyndist umferðin á
mánudeginum, frídegi verslunar-
manna, 6,5 prósentum minni en í
fyrra. - sv
Minni umferð um helgina:
Umferð dróst
saman um 12%
Í ÓREGLU Vallabíur á Tasmaníu éta af
ópíumökrum þar sem framleidd eru
hráefni í ýmiss konar lyf. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÁSTRALÍA Akurhringir á ópíum-
ræktarsvæðum á eyjunni Tasman-
íu eru ekki af völdum gesta frá
öðrum hnetti, eins og sumir gætu
haldið, heldur dýra í óreglu.
Í frétt BBC er haft eftir ríkis-
saksóknara Tasmaníu að valla-
bíur, lítil pokadýr náskyld
kengúrum, hafi orðið uppvísar af
valmúaáti á ópíumökrum, þar sem
framleitt er hráefni í lyf.
Eftir að hafa gætt sér á valmú-
anum komast þær í mikla vímu og
hoppa í hringi þar til þær lognast
út af í lyfjamóki.
Ekki er um víðtækt vandamál
að ræða, en þó hefur orðið vart við
að önnur dýr, svo sem kindur, séu
líka að gæða sér á ólyfjaninni. - þj
Akurhringir í Tasmaníu:
Lyfjuð pokadýr,
ekki geimverur
Datt á andlitið
Á dansleik í Íþróttahúsinu á Torfnesi
á Ísafirði varð það slys um nýliðna
helgi að einn gesta, sem fór upp á
sviðið, datt fram af því og lenti illa á
andlitinu. Meiðsli hans voru talin það
alvarleg að hann var fluttur með þyrlu
LHG á sjúkrahús í Reykjavík.
LÖGREGLUMÁL
SÓMALÍA, AP Sameinuðu þjóðirn-
ar (SÞ) og hjálparstofnanir segja
að enn sé þörf á frekari aðstoð
til nauðstaddra á þurrkasvæðun-
um í Austur-Afríku. Tólf millj-
ónir manna eru í lífshættu vegna
fæðuskorts og ríkir hungursneyð
í tveimur héruðum Sómalíu, sem
hefur orðið verst úti í þurrkunum.
Bresku hjálparsamtökin Oxfam
segja að hungursneyðin sé að
aukast hratt og að framlög hrökkvi
skammt til að vinna gegn versn-
andi ástandi.
Mannúðarmálaskrifastofa SÞ
segir jafnframt í yfirlýsingu að ef
ekki komi til stóraukin framlög frá
alþjóðasamfélaginu muni hungurs-
neyðin breiðast út til fimm eða sex
sómalískra héraða í viðbót.
SÞ telja að enn vanti 1.400 millj-
ónir Bandaríkjadala til að sporna
við neyðinni.
Samkvæmt síðustu tölum frá
Matvælaaðstoð SÞ (WFP) koma
um 3.200 sómalískir flóttamenn
yfir landamærin til Eþíópíu og
Keníu á degi hverjum og hafast
nú við rúmlega 700 þúsund menn
konur og börn við gríðarlega bágar
aðstæður.
Þar að auki hefur um ein og
hálf milljón flóttamanna leitað til
höfuð borgarinnar Mogadisjú. - þj
Ekkert lát á þjáningum flóttafólks á neyðarsvæðum í austurhluta Afríku:
Ástandið versnar enn í Sómalíu
LÍÐA SKORT Þessi börn sem liggja á
sjúkrahúsi í Mogadisjú eru meðal þeirra
milljóna sem bíða hjálpar vegna neyðar-
ástandsins í Austur-Afríku. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
STÆRSTI
HÚSNÆÐISVEFUR
LANDSINS
...ég sá það á Vísi
Ótrúlegt
úrval íbúða til sölu
eða leigu!
STJÓRNSÝSLA Tvær til þrjár vikur gætu enn liðið áður
en ríkislögmaður tekur ákvörðun um hvort dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur frá síðustu viku, í máli
Sólheima gegn ríkinu, verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Niðurstaða dómsins var að ríkinu hefði verið
óheimilt að skera niður framlög til Sólheima árið
2009 um fjögur prósent, eða sem nemur ellefu millj-
ónum króna.
Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hafði
óskað eftir fundi með ríkislögmanni til að ræða
málið, en Anna Sigrún Baldursdóttir, aðstoðarmaður
ráðherra, sagði í samtali við Fréttablaðið að þess í
stað hefði verið fundað innan ráðuneytisins.
Niðurstaðan hafi verið sú að meta málið, meðal
annars með tilliti til annarra þjónustusamninga sem
í gildi eru.
Málið er unnið í samstarfi við ríkislögmann, sem
mun, að sögn Önnu Sigrúnar, bíða niðurstöðu ráðu-
neytisins áður en ákvörðun um áfrýjun verður tekin.
Í samtali við Fréttablaðið í síðustu viku sagði Guð-
mundur Ármann Pétursson, framkvæmdastjóri Sól-
heima, að hann vonaðist til þess að málalok yrðu
sem allra fyrst. - þj
Velferðarráðuneytið skoðar úrskurð héraðsdóms um Sólheima:
Óvissa um áfrýjun Sólheimadóms
ÓVÍST UM ÁFRÝJUN Tvær til þrjár vikur geta enn liðið áður
en ljóst verður hvort dómi í Sólheimamáli verður áfrýjað.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
NOREGUR Norskur hóteleigandi
dulbýr sig sem stöðumælavörður
til þess að sekta ferðamenn. Hótel-
eigandinn, Per Garen, sektaði
hjón um nær 11 þúsund íslenskar
krónur fyrir að leggja bíl á stæði
við Videseter-hótel á Strynefjalli.
Samkvæmt frétt á vef norska
ríkisútvarpsins kveðst Garen hafa
varið miklu fé í bílastæðið, sem er
í eigu norsku vegagerðarinnar.
Garen vakti athygli fyrr í sumar
fyrir að rífa niður farsímamastur
á lóð hótelsins. Hann kvaðst meðal
annars óttast geislun. - ibs
Hóteleigandi í dularklæðum:
Sektar ferða-
menn á stæði
Fékkst þú endurgreitt frá skatt-
inum í ár?
Já 55%
Nei 45%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Þekkir þú einhvern sem hefur
orðið fyrir kynferðisbroti á
útihátíð?
Segðu skoðun þína á vísir.is
SAMFÉLAGSMÁL Páll Scheving
Ingvars son, formaður Þjóðhátíðar-
nefndar, vill láta setja upp eftir-
litsmyndavélar í Herjólfsdal fyrir
næstu Þjóðhátíð. Hann segir slíkt
geta haft forvarnargildi og aðstoð-
að lögregluna í rannsóknum á
afbrotum sem eigi sér stað.
Fimm nauðg-
anir voru til-
k y n nt a r t i l
neyðarmóttöku
sjúkrahúsa
eftir Þjóð hátíð
í ár og hafa
tvær þeirra
verið kærðar
til lögreglu. Í
einu tilviki var
maður handtek-
inn í Herjólfsdal og úrskurðaður
í gæsluvarðhald fram á föstudag.
Í öðru máli hefur lögregla mann
grunaðan en ekki í haldi.
„Ég held að sá tímapunktur
sé kominn að setja upp eftirlits-
myndakerfi í Herjólfsdal. Svæðið
er ekki stórt. Það yrði öflug for-
vörn og getur aðstoðað við að upp-
lýsa mál,“ segir Páll og bætir við
að nefndin líti nauðgunarmálin
grafalvarlegum augum. Næsta
skref sé að fara yfir málin, skoða
hvernig þau séu vaxin og sjá
hvernig brugðist hafi verið við
þeim. Hann segir aðkomu Stíga-
móta eða Nei-hreyfingarinnar
mögulega á næstu Þjóðhátíð.
Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, segir of snemmt að
segja til um hvort nauðgunar málin
hafi verið fleiri en þau sem nú
þegar hefur verið tilkynnt um. „Á
þessum tíma vitum við aldrei neitt.
Þær sem koma til okkar gera það
miklu seinna. Engin þeirra hefur
haft samband enn sem komið er,“
segir Guðrún og bætir við að verði
þjónustu Stígamóta óskað á næstu
Þjóðhátíð, verði slíkt vel tekið til
greina.
„Forvarnastarf á að vera sýnilegt
á hátíðum sem þessum. Það getur
bæði haft forvarnagildi og svo
getur það skapað traust þeirra sem
á þurfa að halda,“ segir hún.
Finnborg Salome Steinþórs dóttir,
talskona Nei-hreyfingarinnar,
tekur undir orð Guðrúnar og segir
það ólíðandi að fólk sé ekki óhult á
útihátíðum. Hún segir það vissulega
koma til greina að Nei-hreyfingin
mæti á næstu útihátíð í Vestmanna-
eyjum, verði þess óskað.
Ein nauðgun var tilkynnt eftir
helgina á Akureyri og ein tilraun til
nauðgunar til lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. sunna@frettabladid.is
Eftirlitsmyndavélar
settar upp í Dalnum
Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, vill setja upp mynda-
vélar í Herjólfsdal fyrir næstu Þjóðhátíð. Þær hafi forvarnargildi og geti að-
stoðað við rannsóknir. Stígamót og Nei-hreyfingin útiloka ekki að mæta næst.
PÁLL SCHEVING
INGVARSSON
ÞJÓÐHÁTÍÐ Í VESTMANNAEYJUM Formaður Þjóðhátíðarnefndar vill láta setja upp
eftirlitsmyndavélar í Herjólfsdal fyrir næstu Þjóðhátíð. MYND/ÓSKAR P. FRIÐRIKSSON
Forvarnastarf á
að vera sýnilegt á
hátíðum sem þessum. Það
getur bæði haft forvarnagildi
og svo getur það skapað
traust þeirra sem þurf á að
halda.
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR
TALSKONA STÍGAMÓTA
SVÍÞJÓÐ Sænsk yfirvöld hafa
sett kúabú í einangrun vegna
miltisbrandssýkingar. Búið er í
nágrenni Odensbacken sunnan
við Örebro í miðhluta Svíþjóðar.
Frá þessu er greint á vef Lands-
sambands kúabænda.
Tuttugu kýr eru dauðar vegna
miltisbrandsins og hafa hræin
verið send til eyðingar. Áður voru
dýr sem drápust af miltisbrandi
urðuð en þar sem bakterían sem
veldur sjúkdómnum lifir lengi í
jarðvegi er hræjunum nú eytt.
Kýrnar tuttugu gengu á landi
þar sem unnið var í jarðvegi og
er talið að smitið sé frá hræi sem
urðað hafði verið á svæðinu. - sv
Miltisbrandur á sænsku búi:
Tuttugu kýr
hafa drepist
KJÖRKASSINN