Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING eldunartæki13. SEPTEMBER 2011 ÞRIÐJUDAGUR 3 Rönning heimilistæki starfrækir þrjár verslanir á landinu, í Skútuvogi í Reykjavík, á Akureyri og á Reyðarfirði. Hjá Rönning er áhersla lögð á heildarþjónustu við viðskiptavini. Við seljum tvö vörumerki í heimilis-tækjum hjá Rönning, Fagor og Gorenje,“ útskýrir Ragnar Her-mannsson, rekstrarstjóri Rönn- ing heimilistækja í Skútuvogi. „Það er skemmtileg saga á bak við Fagor-fyrir- tækið en það var stofnað af presti í Baska- héraðinu á Spáni. Hann safnaði samskot- um til að stofna fyrirtæki í héraðinu sem framleiddi eitthvað sem íbúarnir þyrftu á að halda. Í dag eru Fagor-heimilistækin seld um allan heim,“ segir Ragnar. Öll eld- unartæki hjá Rönning eru frá Gorenje, rót- grónu fyrirtæki sem leggur áherslu á gæði. „Gorenje var stofnað á sjötta áratugnum og er í Slóveníu. Það framleiðir öll sín heimilis- tæki á sama stað, ólíkt mörgum fyrirtækjum sem dreifa framleiðslunni eftir því hvað þau þurfa að borga fyrir vinnuafl í hverju landi,“ segir Ragnar, en Gorenje hefur einnig unnið með þekktum hönnuðum við framleiðslu heimilistækjanna. „Gorenje hefur það fram yfir aðra fram- leiðendur. Fyrirtækið hefur meðal ann- ars unnið með ítölsku hönnunarstofunni Pinin farina, en sú stofa hefur hannað bíla fyrir Ferrari. Línan þeirra er heildstæð og falleg en Rönning er eina verslunin hér á landi með þá línu,“ segir Ragnar. Þá er Gorenje einnig í samstarfi við franska hönn- uðinn Ora-Ito og fást tvær línur heimilis- tækja eftir hann hjá Rönning. „Hönnunar- línurnar henta fólki vel sem er að leita að öðruvísi útlit í eldhúsinu. Fólk horfir meira í heildstæðar línur í dag frekar en einstök tæki. Við erum einnig með góða samninga við þjónustuverkstæði og sjáum sjálf um alla varahluti í öll tæki í hverri línu,“ segir Ragnar og leggur áherslu á góða þjónustu við viðskiptavini. „Okkar mottó er að selja fólki það sem það vill en ekki eitthvað sem það hefur enga þörf fyrir. Við seljum þér ekki ofn með átta eða tíu kerfum á, þegar þú notar bara þrjú eða fjögur,“ segir Ragnar. Fyrirtækið Johann Rönning var stofn- að árið 1933 og Rönning heimilistæki árið 1987. Ragnar segir starfsfólk Rönning fylgj- ast vel með og reglulega bætist nýjar línur í vöruúrvalið. „Við erum alltaf með augun opin fyrir nýjungum. ATAG er til að mynda nýtt merki á markaðnum sem er væntanlegt í Rönning. Sú lína er með mjög sérstöku og skemmtilegu útliti og henni fylgir átta ára ábyrgð á varahlutum séu fjórar vörur úr línunni keyptar. Um áramótin koma einnig tvær nýjar línur frá Gorenje þar sem meðal annars verður hægt að fá ofn með snjall- símaviðmóti. Þá verður einnig hægt að fá heimilis tæki með díóðuljósum þar sem er hægt að velja um sjö mismunandi liti og breyta stemmingunni í eldhúsinu eftir því. Það eru því spennandi tímar fram undan hjá Rönning.“ Heildarútlit í eldhúsið Með hverju seldu heimilistæki hjá Rönning fylgir bók með húsráðum og leiðbeiningum um notkun hvers tækis. Til dæmis hvernig matvæli geymast best í ísskápnum og hvernig meðhöndla á þvott svo eitthvað sé nefnt. Meðalheimili hendir yfir 100 kílóum af grænmeti og öðrum matvæl- um á ári. Ár eftir ár. Þennan risavaxna haug má að nokkru leyti skrifa á ranga meðferð við geymslu matvæla. Lestu um kælisvæðin þrjú í bók- inni Brrrhh sem fylgir með Gorenje-kæliskápum. Í bókinni er ekki reynt að bregða ljósi á þá fjölmörgu eiginleika nútíma ísskápa sem hjálpa til við að halda matnum óskemmdum. Sjónum er hins vegar beint að kælisvæðunum þremur sem finna má í flestum ísskápum: +8°C, +5°C, 0°C. Þessi þrískipting skiptir höfuðmáli upp á geymslu matvæla. Húsráð og leiðbeiningar Ragnar Hermannsson, rekstarstjóri Rönning, segir hönnunarlínurnar frá Gorenje henta fólki sem vilji heildarútlit í eldhúsið. MYND/ANTON Ora Ito White línan fæst hjá Rönning. MYND/RÖNNING Neytendur geta sparað sér umtalsverðar upphæðir í matarinnkaupum með því að geyma matvæli á réttan hátt. Leiðbein- ingabók fylgir öllum Gorenje-ísskápum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.