Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 51

Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 51
ÞRIÐJUDAGUR 13. september 2011 35 Verum skynsöm! Það er ekki lengur nauðsynlegt að eiga stóran og eyðslufrekan jeppa. Möguleiki á að fá stærri bíla tímabundið gegn vægu gjaldi. Engin útborgun! Komdu í Bílaland Breiðhöfða, kíktu á úrvalið og kannaðu kosti þess að leigj´ann. Leigð’ann! www. avis.is sími 591 4000 Bjóðum takmarkað magn af bifreiðum, árgerð 2010, til langtímaleigu. Einföld og sveigjanleg leið til að leysa bílaþörf fyrirtækja og heimila. 5,9 l /100 km*VW Polo 1.2 Leigð´ann Samtals á mán:* 49.900 Leigutími 12 mánuðir 6,0 l /100 km*Hyundai i20 1.4 Leigð´ann Samtals á mán:* 49.900 Leigutími 12 mánuðir 6,1 l /100 km*Hyundai i30 1.4 Leigð´ann Samtals á mán:* 54.900 Leigutími 12 mánuðir 6,4 l /100 km*VW Golf 1.4 Leigð´ann Samtals á mán:* 74.900 Leigutími 12 mánuðir 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 29 30 31 1 2 3 4 SUN MÁN ÞRI MIÐ FIM FÖS LAU Jeppi Skíði Ak . Jeppi Skíði Ak .JeppiSkíði Ak. VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo VW Polo Innifalið í „leigð’ann“ Tryggingar Bifreiðagjöld Vetrar- og sumardekk Olíuskipti Allt hefðbundið viðhald 20.000 km á ári * FÓTBOLTI Það vakti að vonum mikla athygli á sunnudag þegar Heimir Hallgrímsson tilkynnti að hann myndi láta af þjálfun ÍBV-liðs- ins í lok tímabilsins. Það kemur eflaust mörgum á óvart enda hefur ÍBV verið á stöðugri uppleið undir stjórn Heimis. Tímasetning tilkynningarinnar vekur einnig athygli en ÍBV er í blóðugri baráttu um Íslandmeistaratitilinn við KR. „Þetta var farið að kvisast út enda sagði ég stjórninni frá ákvörðun minni fyrir mánuði. Því vildum við segja fréttina áður en aðrir færu að slúðra um málið,“ segir Heimir, en ÍBV hefur þegar gefið út að Magnús Gylfason taki við liðinu. Eftir stendur samt spurningin af hverju Heimir sé að hætta. Minn tími er liðinn í Eyjum „Ég er búinn að skila mínu til félagsins og ég ætla ekki að vera ellidauður þjálfari ÍBV. Minn tími er einfaldlega kominn hér. Strák- arnir hafa gott af nýju blóði. Mér finnst þetta líka frábær tími til að stíga til hliðar. Það er allt önnur umgjörð, staða og allt annað lið en þegar ég tók við á sínum tíma. Ég tel mig því skila ansi góðu búi,“ segir Heimir, en hann tók við lið- inu af Guðlaugi Baldurssyni er það féll árið 2006. Heimir var með liðið í tvö ár í 1. deild en eftir að ÍBV komst upp aftur hefur það verið á mikilli siglingu. Var mjög nálægt því að vinna titilinn í fyrra og er aftur í baráttunni núna. Nú þegar eru farnar af stað sögusagnir um að Heimir sé að fara hingað og þangað. Hann segir allar þær sögur vera rangar enda hafi hann ekki rætt við nein félög enn sem komið er. Hann muni þó hlusta, komi áhugaverð tilboð. „Ég hef ekkert verið að velta mér upp úr framhaldinu en von- andi fæ ég að þjálfa einhvers staðar. Það er engin flétta eða neitt í gangi hjá mér. Það er sann- leikurinn. Ég tel mig vera að gera félaginu greiða með því að láta vita í tíma svo það geti gert sínar ráðstafanir. Ég er að hugsa um hagsmuni ÍBV og tel mig hafa komið heiðarlega fram,“ segir Heimir, en hann hefur enga trú á því að þetta mál trufli ÍBV-liðið í lokaleikjum mótsins. Það væri gaman að prófa eitthvað nýtt Heimir ætlar að skoða sín mál eftir tímabilið en hefur alls ekki tekið neina ákvörðun um að flytja upp á land. Hann er tannlæknir í Vestmannaeyjum og það er það eina sem liggur fyrir í dag. „Ég vona að ég sé ekki hættur að þjálfa. Kannski býðst eitthvað skemmtilegt og þá skoða ég það. Ég hef aldrei verið að þjálfa pen- inganna vegna og er ekkert að fara á taugum. Það er bara léttir fyrir mig að þetta mál sé komið út svo ég geti lagt það til hliðar,“ segir Heimir, sem þekkir aðeins að þjálfa í Eyjum. „Það gæti verið gaman að prófa eitthvað nýtt. Hið eina sem er á ferilskránni hjá mér er ÍBV. Yngri flokkar, kvenna- og karla- lið. Eins og ég segi skoða ég það sem kemur upp en ég get sagt af fullum heiðarleika að ég er ekki með neitt annað tilboð í höndunum sem stendur,“ segir Heimir. Hann nennti ekki að svara símtölum í gær, en síminn hringdi mikið hjá honum þá. „Ég hefði líklega svarað hefði komið símtal frá Englandi,“ segir Heimir léttur og hlær við. henry@frettabladid.is Aldrei þjálfað peninganna vegna Heimir Hallgrímsson mun láta af þjálfun ÍBV í lok sumars. Hann segist ekki vera með tilboð frá neinu öðru félagi í höndunum. Heimir er ekki hættur að þjálfa og mun skoða þau tilboð sem hann fær. ÞEKKIR SINN VITJUNARTÍMA Heimir segir að ÍBV-liðið hafi gott af því að fá nýjan þjálfara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FÓTBOLTI Brasilíski markvörður- inn Heurelho Gomes mun að öllum líkindum yfirgefa Totten- ham þegar félagaskiptaglugginn opnast á ný í janúar. Harry Redknapp, knattspyrnu- stjóri Tottenham, hefur gefið til kynna í enskum fjölmiðlum að markvörðurinn eigi sér ekki framtíð hjá Lundúnaliðinu. - sáp Heurelho Gomes: Fer frá Spurs FÓTBOLTI Newcastle skreið upp í fjórða sæti ensku úrvalsdeildar- innar í gær er liðið náði marka- lausu jafntefli gegn QPR á úti- velli. Leikurinn var fjörugur en leikmönnum var fyrirmunað að skora. Joey Barton var fyrirliði gegn sínu gamla félagi og hélt ró sinni að mestu allan leikinn. QPR er í ellefta sæti deildar- innar. Heiðar Helguson var ekki í leikmannahópi QPR að þessu sinni. - hbg Jafnt hjá QPR og Newcastle: Newcastle í fjórða sætið FYRIRLIÐI Joey Barton var fyrirliði QPR gegn sínu gamla liði. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.