Fréttablaðið - 13.09.2011, Blaðsíða 40
13. september 2011 ÞRIÐJUDAGUR24
BAKÞANKAR
Kolbeins
Óttarssonar
Proppé
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
krossgáta
LÁRÉTT
2. dylja, 6. hætta, 8. iðn, 9. næra, 11.
ónefndur, 12. liðsemi, 14. krafsa, 16.
bardagi, 17. lík, 18. fálm, 20. tveir
eins, 21. heimili.
LÓÐRÉTT
1. þræðir í vefnaði, 3. hvort, 4.
drottinsvik, 5. beita, 7. ákvörðun, 10.
einkar, 13. gláp, 15. nabbi, 16. ái, 19.
í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. fela, 6. vá, 8. fag, 9. ala,
11. nn, 12. fylgd, 14. klóra, 16. at, 17.
nár, 18. fum, 20. ðð, 21. inni.
LÓÐRÉTT: 1. ívaf, 3. ef, 4. landráð, 5.
agn, 7. ályktun, 10. all, 13. gón, 15.
arða, 16. afi, 19. mn.
Farðu og plokkaðu þig Heiður
– þú spilar með berum.
Haha! Náði
mér niðri á
þér!
Hvað er málið?
Af hverju bendir
hann á jörðina?
Ætti hann
frekar að
lakka á sér
neglurnar?
Auð-
vitað!
Má ég
smakka
salatið?
Palli, maturinn verður
til eftir tíu mínútur.
Ég held að þú sért orðinn nógu
gamall til að sýna smá stillingu,
ekki satt?
Hvort var þetta já
eða nei?
Náði þér
Hannes!
Haha!
Mikið hefur verið rætt og ritað um árás hryðjuverkamanna á skotmörk í
Bandaríkjunum 11. september 2001. Skyldi
engan undra; um hræðilega atburði var að
ræða sem haft hafa mikil áhrif á heims-
byggðina. Nú, tíu árum síðar, er hins vegar
grátlegast að líta yfir farinn veg og sjá
þau tækifæri sem glatast hafa til að gera
heiminn sem við öll búum í að betri stað.
Þeim var fórnað á altari eigin hagsmuna,
hefndarþorsta og gamaldags heimsmyndar.
Leiðtoga heimsins skorti áræði og þor til að
breyta til hins betra.
ÞAR eru Íslendingar engin undantekning.
Stjórnvöld hér á landi studdu hefndarárás
Bandaríkjanna á Afganistan. Árás sem
var illa skipulögð og – líkt og svo oft áður
– algjörlega laus við áætlun um hvað tæki
við þegar, og ef, vopnin hljóðnuðu. Sam-
kvæmt skýrslu frá Sameinuðu þjóðunum
féllu 2.777 almennir borgarar í Afganistan
árið 2010. Fyrstu sex mánuði ársins 2011
eru þeir 1.462. Óbreyttir borgarar sem féllu
í árásum hryðjuverkamannanna á Banda-
ríkin voru 2.977. Enginn þeirra saklausu
borgara sem fallið hafa í Afganistan bar
ábyrgð á þeim árásum. Þeim var fórn-
að á altari hagsmuna Bandaríkjanna.
Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn.
INNRÁSIN í Írak er síðan sér-
kapítuli út af fyrir sig. Þeir
íslenskir ráðamenn sem hana
studdu munu seint geta þvegið
skammarstimpilinn af sér. Ekki þurfti nema
grunnskólaþekkingu á heimsmálum til að
sjá í gegnum málatilbúnað innrásaraðila.
Því miður bjuggu þeir sem um véluðu ekki
yfir þeirri þekkingu. Eða bjuggu yfir henni
en kusu að ljúga.
INNRÁSARAÐILAR hafa ekki einu sinni
haft fyrir því að telja saman hve mörg sak-
laus mannslíf aðgerðir þeirra hafa kostað.
Sömu aðilar og vita upp á hár hve margir
Bandaríkjamenn féllu 11. september yppta
öxlum og telja mannfall í Írak hjóm eitt. Töl-
urnar þar eru á bilinu 100 þúsund til rúm-
lega 1 milljón, allt eftir því hver telur og
hvernig mannfall er skilgreint. Þetta studdu
formenn Framsóknar- og Sjálfstæðis flokks,
innblásnir af lygum hagsmunaaðila. Og hafa
ekki enn svarað fyrir.
HEIMURINN breyttist 11. september 2001
er viðkvæði sem heyrist oft. Því miður er
það ekki rétt. Sannleikurinn er nefnilega
sá að heimurinn breyttist ekkert. Gamal-
dags hugsunarháttur ofbeldis og skiptingar
í „okkur“ og „hina“ festist í sessi. Það eina
sem breyttist var birtingarmynd þess hugs-
unarháttar.
OG jú, fyrir þau hundruð þúsunda sem hafa
fallið fyrir vestrænum vopnum breyttist
heimurinn vissulega. Þau voru myrt með
blessun alþjóðasamfélagsins. Hvenær þeim
verður reistur minnisvarði er hins vegar
ekki vitað.
Hinn óbreytti heimur
Heimir & Kolla
vakna með þér í bítið
Fréttir, fróðleikur
og frábær tónlist
alla virka morgna
kl. 6.50 – 9.00
Þráinn á tökkunum og
Gissur með fréttirnar
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu
fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um
veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði.
Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur
upp á að bjóða.